Viðskipti innlent

LV hafnar vangaveltum um lögbrot

Stjórn Lífeyrissjóðs verzlunarmanna hafnar afdráttarlaust þeim vangaveltum sem fram koma í skýrslu Rannsóknarnefndar lífeyrissjóðanna um að sjóðurinn hafi brotið lög með kaupum á gjaldeyristryggingum árið 2008.

Í tilkynningu frá LV kemur fram að sjóðurinn, ásamt öðrum lífeyrissjóðum, hafi ekki brotið lög með gerð gjalmiðlavarnarsamninga.

„Samningar þeir sem hér um ræðir eru svokallaðir afleiðusamningar. Heimild til slíkra samninga er í lífeyrissjóðalögunum (lög. 129/1997). Á grundvelli þeirra var heimild til gjalmiðlavarnasamninga í fjárfestingastefnu sjóðsins á hverjum tíma."

Þannig hafi þeir afleiðusamningar sem LV gerði við viðskiptabankana verið hefðbundnir framvirkir samningar um sölu á gjaldeyri miðað við gengisvísitölu íslensku krónunnar. „Samningarnir voru í eðli sínu hugsaðir til langs tíma."

Í hádegisfréttum Stöðvar 2 kemur fram að Rannsóknarnefndin gagnrýnir þá ákvörðun að hafa skammtímagróða að leiðarljósi.

Þessu er stjórn Lífeyrissjóðs verzlunarmanna ekki sammála. „Gjaldmiðlavarnir lífeyrissjóðsins byggðu á langtímasjónarmiðum í þágu hagsmuna sjóðfélaga en ekki skammtímasjónarmiðum og væntingum um skjótfenginn gróða. "

Fleiri fréttir

Sjá meira

×