Hlynur í ham í flottum útisigri Drekanna Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 26. október 2012 16:31 Mynd/Valli
Sundsvall Dragons er að komast á skrið í sænska körfuboltanum en liðið vann flottan fimmtán stiga útisigur á LF Basket, 92-77, í sjöundu umferð sænsku úrvalsdeildarinnar í kvöld. Þetta var fimmti sigur liðsins í síðustu sex leikjum. Pavel Ermolinskij og félagar hans í Norrköping Dolphins töpuðu á sama tíma og eru ekki að byrja tímabilið vel. Hlynur Bæringsson átti frábæran leik í liði Sundsvall Dragons og endaði leikinn með 26 stig, 15 fráköst og 6 stoðsendingar. Jakob Örn Sigurðarson bætti við 13 stigum, 3 fráköstum og 2 stoðsendingum. Sundsvall Dragons tapaði fyrsta leiknum sínum á tímabilinu en hefur síðan unnið alla leiki sína fyrir utan naumt og sárgrætilegt tap á útivelli á móti toppliði Borås Basket. Hlynur Bæringsson fór á kostum í upphafi leiks og var með 11 stig á fyrstu fimm mínútunum á meðan að Sundsvall komst í 17-6. Hlynur hitti úr öllum fjórum skotum á þessum kafla og gaf líka eina stoðsendingu. Sundsvall var 28-16 yfir eftir fyrsta leikhlutann en LF Basker kom sér inn í leikinn á ný með að vinna næstu sjö mínútur 22-10 og jafna metin í 38-38. Sundsvall-liðið tók þá aftur við sér og var síðan átta stigum yfir í hálfleik, 50-42. Hlynur hitti úr öllum sex skotum sínum og var með 19 stig og 7 fráköst í fyrri hálfleiknum en Jakob skoraði á sama tíma 8 stig. Sundsvall komst 13 stigum yfir, 58-46, eftir tæplega þriggja mínútna leik í seinni hálfleik og var sextán stigum yfir, 72-56, fyrir lokaleikhlutann. Sigurinn var síðan aldrei í hættu í fjórða og síðasta leikhlutanum.Pavel Ermolinskij var frákastahæstur í liði Norrköping Dolphins sem tapaði með 13 stiga mun á útivelli á móti 08-liðinu frá Stokkhólmi, 68-81. Pavel var með 4 stig og 10 fráköst en hitti aðeins úr 1 af 7 skotum sínum. Pavel byrjaði ekki vel og klikkaði á öllum fimm skotunum utan af velli og báðum vítunum í fyrsta leikhlutanum sem Norrköping tapaði 13-21. Pavel var kominn með 4 stig og 7 fráköst í hálfleik en Norrköping var enn sex stigum undir, 33-39. Það munaði aðeins sex stigum á liðunum, 43-37, þegar Norrköping átti annan slæman kafla, fékk á sig tíu stig í röð og lenti 16 stigum undir, 53-37. Eftir það var 08-liðið með sigurinn í hendi sér og vann að lokum með 13 stiga mun.
Körfubolti Mest lesið „Þetta er eins og aftanákeyrsla“ Íslenski boltinn Alisson Becker missti af leikjum Liverpool til að spara sig fyrir HM Enski boltinn Fjörið og fegurðin var í fyrri hálfleik Fótbolti Forseti FIFA móðgaði Ítali Fótbolti Harden handtekinn fyrir ólöglegan vopnaburð Körfubolti Lögreglumenn dulbjuggu sig sem lukkudýr HM fyrir fíkniefnaaðgerð Fótbolti Michael Oliver getur ekki dæmt fyrsta leikinn sinn á HM Fótbolti 36 ára fyrrum NFL-stjarna látin Sport Meistari í fyrsta skipti í 53 ár Körfubolti Beckham fékk sína stjörnu á götuna frægu í Hollywood Fótbolti Fleiri fréttir Meistari í fyrsta skipti í 53 ár Harden handtekinn fyrir ólöglegan vopnaburð Elvari og félögum sópað í sumarfrí Martin nálægt tvennunni en Alba Berlin tapaði fyrsta leiknum Jesús áfram í Stjörnunni Stuðningsmenn Knicks köstuðu eggi í Wembanyama Elvar og félagar fara 2-0 undir heim til Kanaríeyja Baldur tekur eina stærstu stjörnu Stjörnuliðsins yfir á Álftanes Stólarnir ráða Ísak Wíum Ármann fær sæti í Bónus deildinni og framlengir við Jónínu „Heimskasta körfuboltalið í sögu mannkyns“ Söguleg endurkoma Knicks LeBron James um „Geitina“ í NBA: Enginn betri en ég Wembanyama sleppur við refsingu Kolbrún snýr aftur heim og semur við Tindastól Steinar áfram hjá Ármanni Hamar og Þór hætta samstarfi Martin í úrvalsliðinu Martin spilar til úrslita um þýska meistaratitilinn Elvar og félagar lentu í gininu á Börsungum í kvöld „Ég hef alltaf komið sterkari til baka“ „Ég fer í góðu og þeir skilja mína ákvörðun“ KR blæs í herlúðra: Sara Rún og Emma Sóldís í Vesturbæinn Baulað á Trump í New York Spurs minnka muninn í úrslitaeinvíginu Þrefaldur NBA-meistari með Jordan látinn Ekkert teiti því Trump mætir á völlinn Martin á leið í oddaleik Elvar og félagar hentu meisturum Real Madrid úr leik Tryggvi úr leik þrátt fyrir góða frammistöðu Sjá meira