Umfjöllun, viðtöl og einkunnir: KR - ÍBV 3-2 Henry Birgir Gunnarsson á KR-velli skrifar 15. maí 2012 13:46 Mynd/Daníel
Íslandsmeistarar KR unnu sinn fyrsta sigur í sumar er ÍBV kom í heimsókn. Lokatölur 3-2 þar sem Kjartan Henry skoraði úr þrem vítaspyrnum og Hannes Þór varði víti frá ÍBV í uppbótartíma. KR-ingar byrjuðu fyrri hálfleik með nokkrum látum og sóttu grimmt án þess þó að uppskera mikið. Bjarni Guðjónsson komst einna næst því að skora með glæsilegu skoti frá miðju. Bjarni hefur áður sannað að hann kann að skora af því færi en Abel varði glæsilegt skot Bjarna vel. Leikurinn jafnaðist út en Kjartan Henry braut ísinn með marki úr víti. Mawejje braut þá klaufalega á Kjartani sem var að hlaupa úr teignum. Afar klaufalega gert. Kjartan skoraði af öryggi úr vítinu. Rétt fyrir hálfleik fékk KR annað víti. Boltinn fór þá í hönd Brynjars Gauta utan teigs en línuvörðurinn flaggaði víti. Rangur dómur en Kjartan Henry var ekki að velta sér upp úr því og skoraði með eins spyrnu og í fyrra vítinu. Afar öruggt. Eyjamenn mættu sjóðheitir til síðari hálfleik. Olsen átti gott skot að marki sem Hannes varði út í teig. Þar kom varamaðurinn Spear á vettvang og afgreiddi boltann í netið. Eyjamenn fljótir að koma sér aftur inn í leikinn. KR-ingar voru nokkuð lengi að finna taktinn í síðari hálfleik og Eyjamenn líklegri til þess að jafna en KR að bæta við. Eftir um 15 mínútur í seinni hálfleik voru KR-ingar mættir aftur og tóku stjórn á leiknumá nýjan leik. Eyjamenn samt beittir og náðu fínum skyndisóknum. Úr einni slíkri jöfnuðu Eyjamenn leikinn. Mawejje fékk boltann einn í teignum og afgreiddi færið með stæl. Vörn KR út á túni. Enn og aftur var KR að missa niður unnin leik. Þeir lögðu ekki árar í bát og hófu að sækja af krafti. Korteri fyrir leikslok fengu þeir þriðja vítið. Rasmus braut á Óskari Erni. Kjartan steig aftur á punktinn og setti hann núna í hitt hornið en Abel hélt hann myndi setja hann aftur í sama hornið. Svo var ekki og Kjartan kominn með þrennu af vítapunktinum. Mikil dramatík var undir lokin. ÍBV fékk vítaspyrnu í uppbótartíma eftir að Rhys Weston hafði brotið af sér. Matt Garner tók spyrnuna en Hannes Þór gerði sér lítið fyrir og varði spyrnuna. Skömmu síðar var flautað til leiksloka. Ótrúlegur leikur. Þetta var líklega slakasti leikur KR í sumar en liðið fékk samt sinn fyrsta sigur. Auðvitað stálheppnir undir lokin. Jákvætt fyrir þá hversu öflugir Kjartan og Óskar Örn hafa verið en varnarleikurinn er vandamál. Weston er í miklum vandræðum með að aðlagast þeirra leik og var í miklu basli í allt kvöld. Guðmundur Reynir var líka að koma inn og virkaði ryðgaður. Einnig lélegt hjá KR að koma með hangandi haus inn í síðari hálfleikinn og andlega hliðin virðist ekki vera í lagi. KR er ekki að loka leikjum og leikmenn liðsins ekki að skila fullum 90 mínútum á fullu gasi. Eyjamenn súrir og svekktir en geta samt tekið margt jákvætt úr leiknum. Hver lykilmaðurinn á fætur öðrum fellur úr leik en þeir sýndu samt karakter og hugrekki með því að taka stjórn á leiknum í síðari hálfleik. Þeir voru ekki fjarri því að fá flott stig í kvöld og það mun koma hjá þeim ef þeir berjast líkt og þeir gerðu í kvöld.Rúnar: Stressaður allan seinni hálfleikinn Rúnar Kristinsson, þjálfari KR, sagði að það væri þungu fargi af sér létt eftir sigurinn á ÍBV í kvöld en hann var langt frá því að vera ánægður með liðið í kvöld. "Ég var mjög stressaður nánast allan síðari hálfleikinn. Við byrjuðum á því að hleypa þeim inn í leikinn og eftir það fannst mér þeir vera miklu betri en við. Við vorum í tómu basli," sagði Rúnar. "Ég hafði ekkert stórar áhyggjur af þessu þó svo við værum bara með eitt stig eftir tvo leiki. Ef við myndum spila eins og upp á Akranesi þá myndum við fá góð úrslit. Við gerðum það samt ekki í dag. Völlurinn í dag var ekki eins góður og hann var upp á Skaga. Vindurinn líka að stríða mönnum. Við stýrðum leiknum í fyrri hálfleik en þeir í þeim síðari." KR-ingar hafa verið að missa niður forskot í fyrstu leikjunum og jafnvel verið talað um að þeir séu þreyttir og þungir í seinni hálfleikjum sínum. "Ég er ekki með neinar útskýringar á þessu og veit ekki hvað er að gerast. Við töldum okkur vera nógu sterka til þess að halda stöðu líkt og gegn Stjörnunni og hér í kvöld. Við erum með yfirburði gegn ÍA en missum það líka niður. "Við verðum að vinna í þessu en auðvitað getur það lagst á sálina hjá mönnum þegar lið missir ítrekað niður forskot. Menn fara að hræðast að hafa forystu eins furðulegt og það hljómar. Það er til í fræðunum. "Þetta var ekki góður leikur hjá okkur og ég er nánast hundóánægður með þessi þrjú stig ef þú skilur hvað ég meina," sagði Rúnar og brosti.Magnús Gylfason: Verðum að bíta á jaxlinn "Ég var ekkert farinn að fagna stiginu er við fengum vítið í lokin. Það þarf víst að skora úr þeim. Það hefði verið eðlilegt framhald á því ævintýri sem var í gangi í þessum leik. Að koma til baka sterkir eftir að hafa lent tveim mörkum undir," sagði Magnús Gylfason, þjálfari ÍBV og fyrrum þjálfari KR. "Ég veit ekki hvort þeirra víti voru á silfurfati en mér heyrist á mönnum að einhver þeirra hafi verið það. Ég sá þetta ekki mjög vel en mér fannst tvö þeirra vera mjúk og eitt fáranlegt. Engu að síður var sárgrætilegt að jafna ekki úr vítinu. "Þetta er vissulega þung byrjun hjá okkur. Okkur vantar lykilmenn en ég hef samt verið nokkuð sáttur við spilamennskuna í síðustu tveimur leikjum. Mér fannst strákarnir sýna karakter í dag. Við verðum að halda áfram og bíta á jaxlinn."Kjartan Henry: Hef sjálfstraust á punktinum Kjartan Henry Finnbogason var síógnandi í sóknarleik KR í dag og var svo ískaldur er hann skoraði úr þrem vítaspyrnum. Ansi sérstök þrenna hjá honum. "Ég skoraði úr fjórum vítum í fyrra og meðan ég hef sjálfstraustið þar þá held ég áfram að skora úr þessum vítum," sagði Kjartan Henry en fyrstu tvö vítin voru alveg eins. Abel Dhaira, markvörður ÍBV, hélt að Kjartan myndi einnig taka eins víti í þriðju spyrnunni en þá skaut hann nánast í mitt markið. "Ég sá að hann var farinn ansi snemma af stað og því var öruggara að setja hann bara í mitt markið." Kjartan neitaði því ekki að það væri þungu fargi létt af liðinu að ná sínum fyrsta sigri í sumar. "Það kemur skjálfti í okkur og við fáum á okkur mark snemma í síðari hálfleik. Við hættum að spila okkar bolta en náum sem betur fer að rífa okkur upp aftur. Það þarf karakter til þess að sækja stigin þrjú og okkur tókst það með hjálp alls liðsins. Hannes er frábær í markinu og þetta var vel gert hjá honum að verja."Ian Jeffs: Allir vítadómarnir rangir "Það var ansi súrt að missa af stiginu svona í lokin. Dómarinn dæmdi fjögur víti í dag og mér fannst ekki neitt þeirra vera víti," sagði Ian Jeffs Eyjamaður svekktur í leikslok. "Þegar dæmt var víti vegna hendi á okkar mann þá var hann alltaf utan teigs. Mér fannst Tony líka sparka í boltann áður en hann sparkaði í Kjartan. Þriðja vítið var kannski víti en mér sýndist ekki." Jeffsy var þrátt fyrir tapið nokkuð ánægður með spilamennsku Eyjaliðsins. Það er án fjölmargra lykilmanna og svo datt Þórarinn Ingi Valdimarsson út fyrir þennan leik. Guðmundur Þórarinsson meiddist svo í leiknum. "Mér fannst við eiga skilið að minnsta kosti stig. Ég hef séð KR spila miklu betur en þeir gerðu í dag. Við vörðumst vel í fyrri hálfleik og komum svo úr skotgröfunum í þeim seinni. Það eru allir að tala um hvað okkur vantar marga menn en við höfum sýnt að við erum með sterkan hóp. Við verðum bara að setja upp hausinn og halda áfram veginn."
Pepsi Max-deild karla Mest lesið Íslenskættaða goðsögnin hættir 44 ára að aldri Handbolti Grét alla Reykjanesbrautina Körfubolti Tók upp kvenkyns leikmenn afklæðast í laumi og fær lífstíðarbann Fótbolti Fögnuðu fram á morgun: „Þeir hlæja ekki lengur“ Enski boltinn Hefnist fyrir klúðrið á Old Trafford Enski boltinn Sjáðu Englandsmeistara Arsenal tryllast af fögnuði Enski boltinn „Er týpan sem er til í að taka nýjar áskoranir“ Körfubolti Guðjón Valur pollrólegur yfir stöðunni Handbolti Sleit krossband, reif liðþófa og hlaut beinmar Íslenski boltinn Hugljúf kveðja Önnu: „Sé mann sem gaf þessu félagi af öllu hjarta“ Fótbolti Fleiri fréttir Fyrirliði FH sleit krossband Sleit krossband, reif liðþófa og hlaut beinmar Mikill skellur fyrir Skagamenn sem leita á náðir KSÍ Styrktarleikur í Kópavogi: „Ofboðslega verðmætt og gefur okkur mikið“ Segir starf Jóhannesar ekki í hættu Sjáðu mark Gylfa frá miðju, Sigurjón stöðva KR og drama á Hlíðarenda „Þóttumst vita að við myndum ekki vinna hvern einasta leik“ Uppgjörið: Valur - Breiðablik 3-2 | Dramatískur endurkomusigur hjá Valsmönnum Uppgjörið: FH - KA 1-2 | Dalur FH-inga dýpkar Uppgjör: Þór Ak. - ÍA 1-2 | Lárus sótti sigur í Þorpið Töluverðar tafir vegna stórfurðulegs atviks í Krikanum Uppgjörið: KR - Fram 2-2 | Gestirnir jöfnuðu á síðustu stundu Keflavík - Stjarnan 1-1| Stjarnan slapp með stig frá Keflavík í skemmtilegum leik Glæsimark fyrirliðans kveikti í endurkomu Vestra „Við munum standa þétt við bakið á Ingvari“ Uppgjörið: Þróttur R. - Breiðablik 3-2 | Þróttarar slógu bikarmeistarana úr leik Dregið í Mjólkurbikarnum: Stjarnan og FH mæta nýliðunum „Þess vegna líður okkur svona vel í Laugardalnum“ Eyjakonur og Austfirðingar flugu áfram í átta liða úrslit Bríet treður upp á stórleiknum Víkingar áfram eftir framlengda spennu Bikarævintýri Reyknesinga og Garðbæinga „Ég tek fulla ábyrgð“ „FH er bara á sinni vegferð“ Ingvar á leið í lyfjameðferð við illkynja krabbameini Ægir sló KA út og bikarmeistararnir flengdir Fylkir - FH 5-0 | Heimir pakkaði gömlum lærisveinum saman með Mána fremstan í flokki ÍA vann Grindavík í vítakeppni eftir mikla dramatík Uppgjörið: Stjarnan - KR 2-1 | Stjarnan náði fram hefndum „Tímapunkturinn hefði ekki getað verið mikið verri“ Sjá meira