Stefán Rafn tryggði Löwen sigur í fyrsta leik Kolbeinn Tumi Daðason skrifar 12. desember 2012 20:23
Rhein-Neckar Löwen er komið í undanúrslit þýska handboltans eftir eins marks sigur í framlengdum leik gegn Magdeburg 34-33. Stefán Rafn Sigurmannsson spilaði sinn fyrsta leik með Löwen en hann gekk í raðir félagins á dögunum frá Haukum. Stefán Rafn skoraði fjögur mörk í leiknum og tryggði heimaliðinu sigur þegar hann kom Löwen í 34-32 mínútu fyrir leikslok. Gestirnir frá Magdeburg minnkuðu muninn en lengra komust þeir ekki. Lærisveinar Guðmundar Þórðar Guðmundssonar halda áfram sigurgöngu sinni. Liðið situr í toppsæti þýsku deildarinnar og nú komið í undanúrslit bikarsins. Gestirnir frá Magdeburg byrjuðu leikinn betur og höfðu yfir í hálfleik 15-14. Þeir héldu frumkvæðinu framan af síðari hálfleik, náðu mest sex marka forystu 22-16 en þá tók Guðmundur leikhlé. Heimamenn minnkuðu muninn jafnt og þétt og komust í fyrsta skipti yfri 27-26 þegar þrjár mínútur lifðu leiks. Gestirnir jöfnuðu og framlengja þurfti leikinn. Í framlengingunni höfðu heimamenn betur sem fyrr segir. Björgvin Páll Gústavsson var í leikmannahópi Magdeburg eftir tíu vikna fjarveru vegna meiðsla. Ekki liggur fyrir hversu mörg skot Björgvin varði í leiknum. Kiel vann öruggan sigur á Bad Schwartau 35-26 þar sem Guðjón Valur Sigurðsson skoraði tvö mörk og Aron Pálmarsson eitt. Flensburg var án Ólafs Gústafssonar þegar liðið slátraði Nordhorn 35-19. Ólafur meiddist á æfingu í gær og óvíst hversu lengi hann verður frá keppni. Ólafur var einmitt fenginn til liðs við Flensburg frá FH vegna mikilla meiðsla í leikmannahópi félagsins. Þá skoraði Ólafur Bjarki Ragnarsson fjögur mörk og Ernir Hrafn Arnarsson tvö fyrir b-deildarlið Emsdetten sem tapaði naumlega 30-29 gegn stórliði Hamburg.
Mest lesið Uppgjörið: Þór - Víkingur 2-1 | Þórsarar fyrstir til að vinna Víkinga Íslenski boltinn Fjórtán ára í byrjunarliði Vals Íslenski boltinn „Sturlað“ að mæta Yamal eftir að hafa baðað hann Fótbolti Bætti heimsmet í míluhlaupi sem hafði staðið í 27 ár Sport Valur - Fram 2-3 | Framarar upp í annað sætið Íslenski boltinn Martínez sleppti aðgerð og spilar meiddur Fótbolti Frakkland - England | Tárin þerruð og tekist á um brons Fótbolti Ætlaði allt um koll að keyra: „Óttuðust að það yrðu óeirðir“ Sport DeChambeau refsað eftir hringinn og dettur niður í fimmta sæti Golf Taylor fagnar ákaft: „Sjáið hvað hún er reið, alveg brjáluð“ Íslenski boltinn Fleiri fréttir Önnum kafinn Arnór óskar Benedikt góðs bata Ungu strákarnir okkar rúlluðu yfir Ísrael Ljóst hvaða lið bíða Vals og FH í breyttri Evrópudeild Missti mátt í hendinni eftir að hafa fengið golfkúlu í höfuðið Landsliðsfólk trúlofar sig: „Ekki flókið já“ Spila um þrettánda sæti eftir tap gegn Noregi Handboltinn hleypir Rússum aftur inn Frábær lokakafli dugði ekki til Sárt tap fyrir Króatíu Hansen leikur í mynd um einelti eftir að hafa sjálfur þurft að þola það Strákarnir áfram í milliriðil á EM „Eitthvað sem maður verður að læra af honum“ Tólf mörk Ágústs en tap gegn meisturunum Upplifun að koma á svæðið og skrifa undir Frábær byrjun hjá ungu strákunum okkar Bjarki Már til franska stórveldisins Sjokkið breyttist í ævintýri Ásthildur Jóna með tíu mörk á HM og Ísland í undanúrslit Forsetabikarsins Segja Breka á leiðinni til Benfica Børge Lund tekur við stórliði Kiel Díana tekur dóttur sína með sér yfir í Fram Fjórar heiðraðar sem spiluðu fyrsta landsleikinn fyrir sjötíu árum Einar hjá Fram næstu þrjú árin Miðar í sölu á HM í handbolta í dag Þrír íslenskir landsliðsmenn tilnefndir til virtra verðlauna Viktor Gísli vann Meistaradeildina með Barcelona Magdeburg fékk bronsið Viktor Gísli í úrslitaleik Meistaradeildarinnar Magdeburg tapaði í undanúrslitum Strákarnir okkar stálheppnir með riðil á HM Sjá meira