11 ára skáti bjargaði lífi móður sinnar 24. júlí 2012 20:11 Amelía Rún Gunnlaugsdóttir, skáti frá Grundarfirði, fékk í gær bronskross Bandalags íslenskra skára. Það var skátahöfðinginn Bragi Björnsson sem veitti Amelíu krossinn en hann er eitt af hetjudáðamerkjum skátanna og er veittur skáta sem sýnt hefur hreystilega framgöngu er slys ber að garði. Mynd/Landsmót Skáta
Amelía Rún Gunnlaugsdóttir, skáti frá Grundarfirði, fékk í gær bronskross Bandalags íslenskra skára. Það var skátahöfðinginn Bragi Björnsson sem veitti Amelíu krossinn en hann er eitt af hetjudáðamerkjum skátanna og er veittur skáta sem sýnt hefur hreystilega framgöngu er slys ber að garði. Í fréttatilkynningu frá Landsmóti skáta sem fer nú fram á Úlfljótsvatni segir að Amelía Rún, sem átti tólf ára afmæli í gær, hafi unnið þrekvirki í vetur þegar móðir hennar missti meðvitund um miðja nótt á heimili þeirra í Grundarfirði. „Viðbrögð Amelíu voru til fyrirmyndar og stilling hennar vakti athygli starfsfólks Neyðarlínunnar, en þeim og sjúkraflutningamönnum í framhaldinu veitti hún greinargóðar upplýsingar. Framganga Amelíu varð til þess að öll neyðarviðbrögð og aðstoð björgunaraðila urðu skilvirk og björguðu þannig lífi móður stúlkunnar sem nú hefur náð góðri heilsu á ný," segir í tilkynningunni. Við athöfnina í gær sagði skátahöfðinginn meðal annars að leiða mætti líkur að því að skátastarfið og sú þjálfun sem Amelía hefur hlotið þar eigi einhvern þátt í því hve vasklega hún brást við í þessum erfiðu aðstæðum. „Eitt af helstu markmiðum skátastarfs er að þroska börn og ungmenni til þess að verða ábyrgir, sjálfstæðir og hjálpsamir einstaklingar í samfélaginu. Það má því með sanni segja að viðbrögð Amelíu hafi sýnt merki um sanna skátahugsjón en hún er meðal þeirra allra yngstu sem hlotið hafa hetjudáðarmerki skátanna."
Mest lesið Nóg sé komið af Trump Erlent Musk segi ósatt um Starlink Erlent Ekki sjálfsagt að bóka flug með löngum fyrirvara Innlent Bóndinn segist stoltur stunda blóðmerahald Innlent Fluttur á bráðamóttöku eftir líkamsárás í Skeifunni Innlent Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Erlent Sleit sambandi við föður sinn í ljósi ásakana Erlent Arnarhreiður Hitlers sviðin rúst Erlent Hörður Arnarsson og náttúru- og innviðagjald á Sprengisandi Innlent Skiljanlega skiptar skoðanir á stærstu kerfisbreytingu í áratug Innlent Fleiri fréttir Umdeildur sýnkudómur þegar haft alvarlegar afleiðingar Skiljanlega skiptar skoðanir á stærstu kerfisbreytingu í áratug Fluttur á bráðamóttöku eftir líkamsárás í Skeifunni Hörður Arnarsson og náttúru- og innviðagjald á Sprengisandi Bóndinn segist stoltur stunda blóðmerahald Ekki sjálfsagt að bóka flug með löngum fyrirvara Glefsaði í vegfaranda við matvöruverslun Jólageitin risin Sjö þúsund krónur séu ekki nóg Landsbyggðin „brjáluð“ vegna málsins Leggjast gegn sameiningu lögregluembætta „Ég er bara svolítið sár“ „Landsbyggðin brjáluð“ og draugar í Laugardal Vilja hækka samræðisaldur Telja brýnt að endurskoða fækkun lögregluembætta Óljóst hvers vegna þeir hittust í „völundarhúsi“ bílastæðahússins „Góður rjúpnatúr snýst ekkert um veiða sem flestar rjúpur“ Sigmar snýr aftur Umferðarslys á Breiðholtsbrautinni Mátti reka mann sem hótaði að slíta af honum höfuðið Klukkuturninn snýr aftur á Hlemm „Við erum virkilega þreyttir“ Vill efla bókasöfnin með minni yfirbyggingu Hafa lagt sig fram við að eyða óvissunni Nú má heita eftir persónu í Hringadróttinssögu Beiðni skólastjóra kveikti hörð orðaskipti í Hafnarfirði Ráðast í úttekt eftir að starfsmaður lenti í alvarlegu vinnuslysi Ætla að blása til sóknar í bókasöfnum borgarinnar Þakið komið af tilvonandi höfuðstöðvum Nova Hörð andstaða íbúa við rekstur veislusalar Sjá meira