Atvinnumál í forgang Anna Margrét Guðjónsdóttir skrifar 6. nóvember 2012 06:00 Aukin fjárfesting og verðmætasköpun í atvinnulífinu er eitt brýnasta verkefni næstu ára. Þannig sköpum við störf og bætum afkomu heimilanna í landinu. Ég hef starfað að atvinnuþróunarmálum víða um land drjúgan hluta starfsævinnar og hef nú ákveðið að gefa kost á mér í 3.–4. sæti á lista Samfylkingarinnar í Reykjavík í þeirri trú að reynsla mín og starfskraftar nýtist við að fylgja eftir metnaðarfullri atvinnustefnu okkar jafnaðarmanna. Systurhreyfingar okkar á Norðurlöndunum hafa leitt uppbyggingu einhverra samkeppnishæfustu samfélaga heims þar sem áherslan er jöfnum höndum á menntun, rannsóknir, öflugt velferðarkerfi og blómlegt athafnalíf. Hér þurfum við að byrja á að bæta starfsumhverfi lítilla og meðalstórra fyrirtækja og gera stoðkerfi og nýsköpunarstuðning einfaldari og skilvirkari. Í gegnum aðildarviðræður við ESB tengjumst við hinu öfluga atvinnuþróunarstarfi sambandsins og leggjum grunn að lausn til framtíðar í gjaldmiðilsmálum og betra starfs- og samkeppnisumhverfi íslenskra fyrirtækja. Þingflokkur jafnaðarmanna þarf að búa að þekkingu og reynslu á þessari hlið Evrópusamvinnunnar. Sem sjálfstætt starfandi ráðgjafi hef ég á undanförnum árum unnið með mörgum aðilum að undirbúningi Evrópuverkefna og miðlun reynslu. Á þessu kjörtímabili hef ég verið 1. varaþingmaður Samfylkingarinnar í Suðurkjördæmi og nokkrum sinnum tekið sæti á Alþingi auk þess að vera formaður utanríkismálanefndar Samfylkingarinnar og varaformaður fulltrúaráðs flokksins í Reykjavík. Í störfum mínum að atvinnuþróunarmálum og á vettvangi stjórnmálanna hef ég sannfærst um að bestum árangri náum við með samvinnu sem nær þvert á alla landshluta og dregur fram styrkleika og sérstöðu hvers og eins. Við erum ein þjóð og samstaðan gefur okkur kjark og sjálfstraust til að takast á við verkefnin fram undan og eiga gefandi samstarf við aðrar þjóðir. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Mest lesið Hver á arfinn? Gunnar Ármannsson Skoðun Í hvaða vitleysu erum við stödd? Ragnheiður Stephensen Skoðun Skuggamansal á Íslandi Sævar Þór Jónsson Skoðun Landsleikar RÚV! Sigurlín Margrét Sigurðardóttir Skoðun Grateful Dead á Sæbrautinni Júlíus Valsson Skoðun Skattlagning til velsældar Hannes Lúðvíksson Skoðun Við erum ekki jafn ömurleg og við höldum Þorsteinn Tjörvi Sigurðsson Skoðun Baráttan er ekki búin Mordekaí Elí Esrason Skoðun Noregur styrkir EES – Ísland verður að fylgja Rögnvaldur Guðmundsson Skoðun Til hamingju Reykjanesbær með leikskólana okkar Guðný Birna Guðmundsdóttir Skoðun Skoðun Skoðun Opið bréf til Húnboga Þórs Árnasonar Margrét Rut Eddudóttir skrifar Skoðun Hvar eru þingmenn NV-kjördæmis? Sigurður Páll Jónsson skrifar Skoðun Noregur styrkir EES – Ísland verður að fylgja Rögnvaldur Guðmundsson skrifar Skoðun Landsleikar RÚV! Sigurlín Margrét Sigurðardóttir skrifar Skoðun Við erum ekki jafn ömurleg og við höldum Þorsteinn Tjörvi Sigurðsson skrifar Skoðun Bjórinn sem slapp við suðurferðina Elís Pétur Elísson skrifar Skoðun Í hvaða vitleysu erum við stödd? Ragnheiður Stephensen skrifar Skoðun Skattlagning til velsældar Hannes Lúðvíksson skrifar Skoðun Baráttan er ekki búin Mordekaí Elí Esrason skrifar Skoðun Hver á arfinn? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Að tala um dauðann er að tala um lífið Ingrid Kuhlman skrifar Skoðun Til hamingju Reykjanesbær með leikskólana okkar Guðný Birna Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Skuggamansal á Íslandi Sævar Þór Jónsson skrifar Skoðun Grateful Dead á Sæbrautinni Júlíus Valsson skrifar Skoðun Þjóðarsjúkrahúsið seinkar Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Er gervigreindin spegill mannkyns Kristján Logason skrifar Skoðun Er Þórarinn Tyrfings nýja framtíð Vogs? Bergþóra Haralds Eiðsdóttir skrifar Skoðun Tólf ára ákvað ég að gera bíó Arnar Benjamín Kristjánsson skrifar Skoðun Hvað segja gögnin í raun um ásakanir á hendur séra Friðriki Theódór S. Halldórsson skrifar Skoðun Það er sárt að tapa kosningum Heimir Már Pétursson skrifar Skoðun Er enn þess virði að leggja á sig langt háskólanám? Gunnar Alexander Ólafsson skrifar Skoðun Engin fjölskylda á að þurfa að standa ein Eydís Ásbjörnsdóttir skrifar Skoðun Þegar reglurnar gilda ekki jafnt Ágúst Karlsson skrifar Skoðun Utanríkisstefna án ábyrgðar? Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar Skoðun PISA-skellur en hvað svo? Inga Sæland skrifar Skoðun Hver verndar velferð barna þegar náttúran blandar kynjunum? Jón Þór Ólafsson skrifar Skoðun Einhliða bergmálshellir og heimildir sem hrynja Lilja Benatov Hjartar skrifar Skoðun KEMUR TÓLFAN? Hilmar Jökull Stefánsson skrifar Skoðun Ábyrgðinni má ekki útvista til tækninnar Karen Ósk Nielsen Björnsdóttir skrifar Sjá meira
Aukin fjárfesting og verðmætasköpun í atvinnulífinu er eitt brýnasta verkefni næstu ára. Þannig sköpum við störf og bætum afkomu heimilanna í landinu. Ég hef starfað að atvinnuþróunarmálum víða um land drjúgan hluta starfsævinnar og hef nú ákveðið að gefa kost á mér í 3.–4. sæti á lista Samfylkingarinnar í Reykjavík í þeirri trú að reynsla mín og starfskraftar nýtist við að fylgja eftir metnaðarfullri atvinnustefnu okkar jafnaðarmanna. Systurhreyfingar okkar á Norðurlöndunum hafa leitt uppbyggingu einhverra samkeppnishæfustu samfélaga heims þar sem áherslan er jöfnum höndum á menntun, rannsóknir, öflugt velferðarkerfi og blómlegt athafnalíf. Hér þurfum við að byrja á að bæta starfsumhverfi lítilla og meðalstórra fyrirtækja og gera stoðkerfi og nýsköpunarstuðning einfaldari og skilvirkari. Í gegnum aðildarviðræður við ESB tengjumst við hinu öfluga atvinnuþróunarstarfi sambandsins og leggjum grunn að lausn til framtíðar í gjaldmiðilsmálum og betra starfs- og samkeppnisumhverfi íslenskra fyrirtækja. Þingflokkur jafnaðarmanna þarf að búa að þekkingu og reynslu á þessari hlið Evrópusamvinnunnar. Sem sjálfstætt starfandi ráðgjafi hef ég á undanförnum árum unnið með mörgum aðilum að undirbúningi Evrópuverkefna og miðlun reynslu. Á þessu kjörtímabili hef ég verið 1. varaþingmaður Samfylkingarinnar í Suðurkjördæmi og nokkrum sinnum tekið sæti á Alþingi auk þess að vera formaður utanríkismálanefndar Samfylkingarinnar og varaformaður fulltrúaráðs flokksins í Reykjavík. Í störfum mínum að atvinnuþróunarmálum og á vettvangi stjórnmálanna hef ég sannfærst um að bestum árangri náum við með samvinnu sem nær þvert á alla landshluta og dregur fram styrkleika og sérstöðu hvers og eins. Við erum ein þjóð og samstaðan gefur okkur kjark og sjálfstraust til að takast á við verkefnin fram undan og eiga gefandi samstarf við aðrar þjóðir.
Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar