Það er bannað að stíga á strik! Guðjón Auðunsson skrifar 20. nóvember 2012 06:00 Ég þekki unga dömu sem heldur því fram að ef hún stígi á strik verði hún ekki prinsessa. Strikin eru mörg sem á vegi hennar verða, en með eftirtekt og gætni forðast hún strikin, og verður hún líklega prinsessa að lokum. Það væri óskandi að núverandi stjórnvöld veittu þeim hættulegu strikum sem á vegi þeirra verða sömu eftirtekt og vöruðust þau. Við hjá Reitum fasteignafélagi höfum fylgst með baráttu ferðaþjónustunnar við fyrirhugaðar skattahækkanir á gistingu, sem boðaðar eru í fjárlagafrumvarpi ársins 2013. Við teljum málið okkur skylt þar sem mörg af helstu hótelfyrirtækjum landsins eru í viðskiptum við félagið, og með því er vegið að rekstrargrundvelli þeirra. Aukin svört vinna Í fyrsta lagi segir sagan okkur að afleiðing mikilla skattahækkana er aukning á svartri atvinnustarfsemi. Það fer ekki fram hjá þeim sem fylgjast með ferðaþjónustu í Reykjavík að gríðarleg fjölgun hefur orðið á íbúðum sem leigðar eru til ferðamanna og ljóst að flestar eru leyfislausar og svo virðist sem svört atvinnustarfsemi sé látin viðgangast átölulaust af hálfu stjórnvalda. Svo virðist sem langstærstur hluti þessarar leyfislausu starfsemi sé skipulagður af erlendum bókunarvélum og í mörgum tilfellum kemur greiðslan fyrir gistinguna ekki einu sinni til landsins. Undanfarið hefur fjölgun íbúðanna verið mæld í hundruðum á hverju misseri. Í öðru lagi hefur það vakið athygli mína í umræðu um hækkun virðisaukaskatts á gistingu að stjórnvöld hafa haldið því fram að slíkur rekstur fái meira endurgreitt en greitt er í útskatt. Fyrrverandi fjármálaráðherra gekk jafnvel svo langt að tala um ríkisstyrkta atvinnugrein. Hægt er að sýna fram á að ef tekið er tillit til þess virðisauka sem verður til í heildarferlinu við að selja ferðamanni gistingu skilar það ferli umtalsverðum virðisaukaskatti í ríkissjóð. Það liggur fyrir að hótel sem leigja hjá fasteignafélögum sbr. Reitum greiða 25,5% virðisaukaskatt af leigu og er honum skilað til ríkisins af fasteignafélaginu eins og lög gera ráð fyrir. Þá á eftir að horfa til þeirrar verðmætisaukningar sem verður í öðrum atvinnugreinum vegna viðskipta við hótelfyrirtæki. Ekki hlustað á rök Í þriðja lagi er óskiljanlegt að stjórnvöld skuli ekki hlusta á þau rök rekstraraðila hótelanna að búið sé að gera samninga við ferðaheildsala um stóran hluta næsta árs og því munu hótelin þurfa að taka mikinn hluta hækkunarinnar á sig. Stjórnvöld eru hvött til að stíga ekki á strik í þessu máli, en hvort þau verða einhvern tímann að prinsessu skal ósagt látið. Skynsamlegast væri að hætta alfarið við þessi áform og leyfa ferðaþjónustunni að dafna og skila sífellt meiru í þjóðarbúið með auknum umsvifum. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Mest lesið Hver á arfinn? Gunnar Ármannsson Skoðun Skuggamansal á Íslandi Sævar Þór Jónsson Skoðun Í hvaða vitleysu erum við stödd? Ragnheiður Stephensen Skoðun Grateful Dead á Sæbrautinni Júlíus Valsson Skoðun Baráttan er ekki búin Mordekaí Elí Esrason Skoðun Er Þórarinn Tyrfings nýja framtíð Vogs? Bergþóra Haralds Eiðsdóttir Skoðun Þjóðarsjúkrahúsið seinkar Sigurður Sigurðsson Skoðun Skattlagning til velsældar Hannes Lúðvíksson Skoðun Til hamingju Reykjanesbær með leikskólana okkar Guðný Birna Guðmundsdóttir Skoðun Hvað segja gögnin í raun um ásakanir á hendur séra Friðriki Theódór S. Halldórsson Skoðun Skoðun Skoðun Í hvaða vitleysu erum við stödd? Ragnheiður Stephensen skrifar Skoðun Skattlagning til velsældar Hannes Lúðvíksson skrifar Skoðun Baráttan er ekki búin Mordekaí Elí Esrason skrifar Skoðun Hver á arfinn? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Að tala um dauðann er að tala um lífið Ingrid Kuhlman skrifar Skoðun Til hamingju Reykjanesbær með leikskólana okkar Guðný Birna Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Skuggamansal á Íslandi Sævar Þór Jónsson skrifar Skoðun Grateful Dead á Sæbrautinni Júlíus Valsson skrifar Skoðun Þjóðarsjúkrahúsið seinkar Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Er gervigreindin spegill mannkyns Kristján Logason skrifar Skoðun Er Þórarinn Tyrfings nýja framtíð Vogs? Bergþóra Haralds Eiðsdóttir skrifar Skoðun Tólf ára ákvað ég að gera bíó Arnar Benjamín Kristjánsson skrifar Skoðun Hvað segja gögnin í raun um ásakanir á hendur séra Friðriki Theódór S. Halldórsson skrifar Skoðun Það er sárt að tapa kosningum Heimir Már Pétursson skrifar Skoðun Er enn þess virði að leggja á sig langt háskólanám? Gunnar Alexander Ólafsson skrifar Skoðun Engin fjölskylda á að þurfa að standa ein Eydís Ásbjörnsdóttir skrifar Skoðun Þegar reglurnar gilda ekki jafnt Ágúst Karlsson skrifar Skoðun Utanríkisstefna án ábyrgðar? Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar Skoðun PISA-skellur en hvað svo? Inga Sæland skrifar Skoðun Hver verndar velferð barna þegar náttúran blandar kynjunum? Jón Þór Ólafsson skrifar Skoðun Einhliða bergmálshellir og heimildir sem hrynja Lilja Benatov Hjartar skrifar Skoðun KEMUR TÓLFAN? Hilmar Jökull Stefánsson skrifar Skoðun Ábyrgðinni má ekki útvista til tækninnar Karen Ósk Nielsen Björnsdóttir skrifar Skoðun Gervigreindin kaupir ekki það sem hún skilur ekki Jens Gunnarsson skrifar Skoðun Fólkið á bak við öruggt flug Elísabet Heiða Valdemarsdóttir skrifar Skoðun Fjöldi opinberra starfsmanna - deilt um keisarans skegg Ingvar Freyr Ingvarsson skrifar Skoðun Stafrænt heilbrigðiskerfið byggt á skilvirkni Hilmar Ingimundarson skrifar Skoðun Hvað þarf barn í grunnskóla að kunna til að fá 10 í grunnskóla? Þorsteinn Mar Gunnlaugsson skrifar Skoðun Reykjalundur endurhæfir – Endurhæfum Reykjalund Svana Helen Björnsdóttir skrifar Sjá meira
Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar
Skoðun Hvað þarf barn í grunnskóla að kunna til að fá 10 í grunnskóla? Þorsteinn Mar Gunnlaugsson skrifar