Viðskipti innlent

Samruni í verkfræðigeiranum

BBI skrifar
Mynd/Verkís
Ákveðið hefur verið að sameina Verkís og Almennu verkfræðistofuna undir nafni Verkís. Samningur um það var undirritaður í dag.

Hið sameinaða fyrirtæki verður eitt öflugasta fyrirtækið í verkfræðigeiranum á Íslandi og samruninn veitir jafnframt tækifæri til sóknar erlendis.

Bæði eiga fyrirtækin sér langa sögu á verkfræðimarkaðnum. Verkís varð til árið 2008 með samruna fimm fyrirtækja en elstu rætunar má rekja allt til ársins 1932. Almenna var stofnuð árið 1971 og var arftaki Almenna byggingarfélagsins.

Sameiningin kemur ekki til framkvæmdar fyrr en málsmeðferð er lokið en sameiningin verður tilkynnt Samkeppniseftirlitinu.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×