Tillögurnar eru ný útfærsla af gömlu stjórnarskránni BBI skrifar 30. ágúst 2012 10:36 Eiríkur Bergmann.
Eiríkur Bergmann, stjórnlagaráðsmeðlimur, tekur nýjum tillögum Skúla Magnússonar og Ágústs Þórs Árnasonar til stjórnskipunarlaga fagnandi. Hann telur þó að tillögur þeirra séu í raun aðeins ný útfærsla af núverandi stjórnarskrá landsins. „Strax árið 1944 var ákveðið að Íslendingar myndu setja sér sína eigin stjórnarskrá. Sú endurskoðun hefur nú loksins litið dagsins ljós með frumvarpi Stjórnlagaráðs. Pólitískur raunveruleiki okkar er sá að annað hvort verður byggt á tillögum Stjórnlagaráðs eða að áfram verður stuðst við gömlu dönsku stjórnarskrána með aðeins smávægilegum breytingum," segir Eiríkur. Skúli og Ágúst birtu í dag heildstæðar tillögur til nýrrar stjórnarskrár og kölluðu „valkost í stjórnarskrármálinu". Eiríkur fagnar innilega allri umræðu sem skapast um stjórnarskrármálið. „Það er frábært að fólk láti sig þetta mál varða," segir hann. Honum finnst hins vegar tillögur Skúla og Ágústs frekar íhaldssamar. „Þær eru svona bútasaumur við gömlu stjórnarskrána," segir hann.Skúli Magnússon og Ágúst Þór.Of langt gengið? Skúli og Ágúst virðast telja stjórnlagaráð hafa gengið of langt í endurskoðun sinni. Hlutar af gömlu stjórnarskránni sem aldrei hafi valdið ósætti séu teknir í gegn og þeim gerbreytt. Það geti valdið óvissu. Þetta telja Skúli og Ágúst óþarft og setja fram hófstilltari breytingatillögu. Eiríkur segir ekki rétt að stjórnlagaráð hafi gengið of langt. „Nákvæmlega sömu rök hefði einnig mátt færa fram þegar þýska stjórnarskráin var endurskoðuð eða jafnvel sú bandaríska á sínum tíma," bætir hann við. Honum finnst þetta því ómakleg gagnrýni á frumvarp stjórnlagaráðs. Hann segir að breytingatillögur stjórnlagaráðs séu rækilega miðaðar við stjórnskipunarhefðir í nágrannalöndunum. Því muni ekki skapast umtalsverð óvissa enda hafi þegar fengist víðtæk reynsla af umræddum ákvæðum í löndunum í kringum okkur.Þjóðaratkvæðagreiðsla Eiríkur telur að tillögur Skúla og Ágústs séu vel fallnar til þess að skapa umræðu. Fráleitt væri hins vegar að ímynda sér að tillagan færi í þjóðaratkvæðagreiðslu eða eitthvað slíkt. „Neinei, með fullri virðingu fyrir störfum Skúla og Ágústs þá getur ekki bara hver sem er trommað með sínar tillögur í þjóðaratkvæðagreiðslu. Stjórnlagaráð var kjörið til að smíða frumvarp og því verður vitaskuld aðeins kosið um það frumvarp," segir hann.
Tengdar fréttir Aðrar tillögur til nýrrar stjórnarskrár Tveir fræðimenn lögðu í dag fram nýjar heildstæðar tillögur til stjórnarskrár fyrir Ísland. Frumvarpið er hugsað sem „valkostur í stjórnarskrármálinu" og skrifa tvímenningarnir 30. ágúst 2012 09:46 Mest lesið Búið að opna Hellisheiði á ný Innlent „Niðurstaðan er sú að hann setti þetta aftur á“ Erlent Leigubílstjóri lét hnefana tala Innlent Brutu kynferðislega gegn börnum en sluppu við refsingu Innlent Sáttameðferð sé ekki alltaf rétta leiðin Innlent Allir á uppsagnarfresti og enginn getur svarað Innlent Ákærður fyrir að nauðga sautján ára stúlku en neitar sök Erlent Margrét Löf vill komast í opið fangelsi Innlent Lögðu andstæðingunum vafasöm orð í munn með gervigreind Erlent Saka Kanadamenn um afskipti af kosningunum Erlent Fleiri fréttir Allir á uppsagnarfresti og enginn getur svarað Brutu kynferðislega gegn börnum en sluppu við refsingu Sáttameðferð sé ekki alltaf rétta leiðin Leigubílstjóri lét hnefana tala Búið að opna Hellisheiði á ný Vilja kanna fækkun útibúa Borgarbókasafnsins Verklok í Þverholti færast frá sumri til áramóta Vísar jöfnum höndum til mikilvægi samtals og almennra hegningarlaga Lögreglan hafði afskipti af tugum ökumanna Ítalski baróninn á ekki vatnið Tvö umferðarslys og þrír fluttir á sjúkrahús Ómar lagði úrskurðarnefnd vegna tölvupóstsins óvenjulega Skúmaskotum Mjóddarinnar fækkað í forvarnarskyni Segir flugeldasöluna ekki í hættu Tilkynning um kæru óskýr og Bandero fer ekki fet Mál sonar þingmannsins komið til héraðssaksóknara „Við munum tryggja það að hún muni ekki gleymast“ Hættir við að aflétta ráðningarbanni vegna manndráps Bein útsending: Gera samfélagsmiðlar okkur hamingjusöm? Vill bæta eftirlit með lyfjagjöfum aldraðra Fjarvera Þorgerðar á pari við forvera hennar Gríðarleg sjúkdómsbyrði meðal niðurstaðna Eftirsjá að Eggerti: „Lífið heldur áfram“ Nauðgaði fatlaðri konu og gripinn í Leifsstöð Dóttir Kolbrúnar skrifar undir harða viðvörun um leigubremsuna Árásir hófust áður en gallarnir voru lagfærðir Margrét Löf vill komast í opið fangelsi Telur rök Háskólans á Akureyri ekki haldbær Taka strætóstöðina í Mjódd í gegn eftir ofbeldisatvik Breytingar í Mjódd til að bregðast við ofbeldi Sjá meira
Aðrar tillögur til nýrrar stjórnarskrár Tveir fræðimenn lögðu í dag fram nýjar heildstæðar tillögur til stjórnarskrár fyrir Ísland. Frumvarpið er hugsað sem „valkostur í stjórnarskrármálinu" og skrifa tvímenningarnir 30. ágúst 2012 09:46