Íslendingar á villigötum í stjórnarskrármálinu BBI skrifar 30. ágúst 2012 14:58 Ágúst Þór Árnason er formaður lagadeildar Háskólans á Akureyri.
Fræðimennirnir Ágúst Þór Árnason og Skúli Magnússon telja Íslendinga á villigötum við endurskoðun á stjórnarskrá lýðveldisins. Í dag birtist grein eftir Skúla í Fréttablaðinu um skoðun þeirra félaga á málinu. Þar kemur fram að þeir hafa sett fram tillögu að endurskoðaðri stjórnarskrá sem finna má á heimasíðunni stjornskipun.is.Of mikill hraði Í Rannsóknarskýrslu Alþingis kemur meðal annars fram að lagasetning á Íslandi hafi oft og tíðum verið óvönduð. Það er átalið í skýrslunni. „Og endurnýjun stjórnarskrár er lagasetning sem ber að vanda sérstaklega til," segir Ágúst. „Ef við tökum Norðmenn sem dæmi. Þeir ákváðu fyrir fimm árum að fara í endurskoðun á sinni 200 ára gömlu stjórnarskrá. Stefnan er sú að breytingarnar komist í gegn árið 2014. Og þeir eru þó aðeins að endurskoða einn kafla í stjórnarskránni," segir Ágúst. Þannig taka Norðmenn sér nokkur ár í að endurskoða mannréttindakafla stjórnarskrárinnar en þann kafla höfum við Íslendingar þegar endurskoðað. Ágúst telur að asinn sé of mikill á Íslandi, en hér fékk stjórnlagaráð fáeina mánuði til að vinna að endurskoðun á stjórnarskránni. Sá tími hefði hugsanlega dugað til að vinna tillögu að breytingu á afmörkuðum þætti hennar. „Stjórnarskrár skipta víðast hvar á Vesturlöndum miklu máli. Það er tekið mark á þeim og dæmt eftir því sem stendur í þeim, Ísland er þar engin undantekning" segir Ágúst.Skúli Magnússon hefur starfað sem ritari við EFTA dómstólinn að undanförnu.Gerbreyting Þegar lög fá að standa um nokkurt skeið skapast festa í dómaframkvæmd. Þannig verður smátt og smátt skýrara hvað felst í lögunum, hvað þau þýða. Þar sem stjórnarskráin hefur fengið að standa í hart nær 70 ár er fyrirsjáanleiki dóma sem byggja á ákvæðum hennar verulegur. Ágúst segir að hver smávægileg breyting geti kallað á óvissu, hvað þá ef farið er út í það að umbylta stjórnarskránni í heild sinni. „Við teljum að það eigi ekki að fara út í róttækar breytingar á stjórnarskránni án þess að leggjast í víðtækar rannsóknir á þörfinni á slíkri aðgerð. Það er eiginlega lykilatriði," segir Ágúst. Hann bendir á að tillögur þeirra Skúla séu ekki hugsaðar sem fullbúin stjórnarskrá. Tilgangur þeirra sé fyrst og síðast að hvetja til umræðu um endurskoðun stjórnarskrárinnar.Ekki að hnýta í stjórnlagaráð Ágúst tekur fram að skrifum þeirra sé ekki beint gegn stjórnlagaráði. „Vinna þeirra sem áttu sæti í ráðinu stendur fyrir sínu. Við erum ekki að draga úr mikilvægi stjórnlagaráðs og þeirra hugmynda sem þar komu til umræðu. Við teljum bara að þar sé um eitt skref í lengri vegferð að ræða" segir Ágúst. Ágúst og Skúli eru báðir virtir fræðimenn á sviði lögfræði.
Tengdar fréttir Tillögurnar eru ný útfærsla af gömlu stjórnarskránni Eiríkur Bergmann, stjórnlagaráðsmeðlimur, tekur nýjum tillögum Skúla Magnússonar og Ágústs Þórs Árnasonar til stjórnskipunarlaga fagnandi. Hann telur þó að tillögur þeirra séu í raun aðeins ný útfærsla af núverandi stjórnarskrá landsins. 30. ágúst 2012 10:36 Aðrar tillögur til nýrrar stjórnarskrár Tveir fræðimenn lögðu í dag fram nýjar heildstæðar tillögur til stjórnarskrár fyrir Ísland. Frumvarpið er hugsað sem „valkostur í stjórnarskrármálinu" og skrifa tvímenningarnir 30. ágúst 2012 09:46 Mest lesið Hellisheiði lokuð í báðar áttir vegna umferðarslyss Innlent Lögðu andstæðingunum vafasöm orð í munn með gervigreind Erlent Margrét Löf vill komast í opið fangelsi Innlent Lögreglan hafði afskipti af tugum ökumanna Innlent Vísar jöfnum höndum til mikilvægi samtals og almennra hegningarlaga Innlent Vilja kanna fækkun útibúa Borgarbókasafnsins Innlent Segja upp 34 áskriftum og opna stæðin almenningi Innlent Nauðgaði fatlaðri konu og gripinn í Leifsstöð Innlent „Við munum tryggja það að hún muni ekki gleymast“ Innlent Gríðarleg sjúkdómsbyrði meðal niðurstaðna Innlent Fleiri fréttir Hellisheiði lokuð í báðar áttir vegna umferðarslyss Vilja kanna fækkun útibúa Borgarbókasafnsins Verklok í Þverholti færast frá sumri til áramóta Vísar jöfnum höndum til mikilvægi samtals og almennra hegningarlaga Lögreglan hafði afskipti af tugum ökumanna Ítalski baróninn á ekki vatnið Tvö umferðarslys og þrír fluttir á sjúkrahús Ómar lagði úrskurðarnefnd vegna tölvupóstsins óvenjulega Skúmaskotum Mjóddarinnar fækkað í forvarnarskyni Segir flugeldasöluna ekki í hættu Tilkynning um kæru óskýr og Bandero fer ekki fet Mál sonar þingmannsins komið til héraðssaksóknara „Við munum tryggja það að hún muni ekki gleymast“ Hættir við að aflétta ráðningarbanni vegna manndráps Bein útsending: Gera samfélagsmiðlar okkur hamingjusöm? Vill bæta eftirlit með lyfjagjöfum aldraðra Fjarvera Þorgerðar á pari við forvera hennar Gríðarleg sjúkdómsbyrði meðal niðurstaðna Eftirsjá að Eggerti: „Lífið heldur áfram“ Nauðgaði fatlaðri konu og gripinn í Leifsstöð Dóttir Kolbrúnar skrifar undir harða viðvörun um leigubremsuna Árásir hófust áður en gallarnir voru lagfærðir Margrét Löf vill komast í opið fangelsi Telur rök Háskólans á Akureyri ekki haldbær Taka strætóstöðina í Mjódd í gegn eftir ofbeldisatvik Breytingar í Mjódd til að bregðast við ofbeldi Þarf að leita annað eftir að hafa ekki fengið fangaklefa Segja upp 34 áskriftum og opna stæðin almenningi Vantar sex milljónir til að halda Edduna Guðmundur Ingi lét fjarlægja blett af fæti Sjá meira
Tillögurnar eru ný útfærsla af gömlu stjórnarskránni Eiríkur Bergmann, stjórnlagaráðsmeðlimur, tekur nýjum tillögum Skúla Magnússonar og Ágústs Þórs Árnasonar til stjórnskipunarlaga fagnandi. Hann telur þó að tillögur þeirra séu í raun aðeins ný útfærsla af núverandi stjórnarskrá landsins. 30. ágúst 2012 10:36
Aðrar tillögur til nýrrar stjórnarskrár Tveir fræðimenn lögðu í dag fram nýjar heildstæðar tillögur til stjórnarskrár fyrir Ísland. Frumvarpið er hugsað sem „valkostur í stjórnarskrármálinu" og skrifa tvímenningarnir 30. ágúst 2012 09:46