Af Kaupahéðni og Kaupaörvari Jón Sigurður Eyjólfsson skrifar 15. desember 2012 06:00 Kaupahéðinn man sinn fífil fegurri hér í spænskum suðurhéruðum og væri sjálfsagt lagstur í kör ef ekki nyti ötuls vinar við. Þann vin mætti kalla Kaupaörvar, en hlutverk hans er að beita meðulum sem örva menn til að kaupa. Eru þessi meðul svo römm að sum hver jafnast á við víagra og breyta kaupgetuleysi í hinn mesta kaupmátt. Kaupaörvar virðist þó enginn spekingur en þessi trikk sem hann beitir kúnna Kaupahéðins eru svo bjánaleg að oftast er eins og að hann sé að höfða til fólks af öðrum hnöttum þar sem gáfnavísitala og skónúmer fara saman. Ég hef orðið óþægilega var við þetta í jólavertíðinni hér syðra. Til dæmis var ég á göngu á nöturköldu kvöldi með konu minni þegar ung og fögur kona í mínipilsi stekkur á okkur. Reyndar var þetta frekar örpils, sem er alveg í takt við trikkin hans Örvars. Hún var líka í svo fleginni og þröngri skyrtu að það virtist aðeins tímaspursmál hvenær brjóstin myndu skjótast upp úr. Mín fyrstu viðbrögð voru að búast til að hlýja þessari ungu konu en var fljótur að átta mig á því að aðstæður til slíkra góðgerðarmála voru afar óhentugar. Inni í móðunni sem kom upp úr hrollkaldri konunni mátti heyra að hún vildi að við færum inn í ilmvatnsbúðina sem var þar fyrir framan, til að sveifla veskjum. Hvernig í ósköpunum dettur mönnum í hug að ég vilji líta inn hjá kaupmönnum sem henda starfsfólki sínu hálfnöktu út á guð og gaddinn? Svipað var upp á teningnum þegar vestfirsku garnirnar voru farnar að gaula en þá brá ég mér með hálfum huga og tómum maga ásamt konunni á amerískan skyndibitastað. Þegar ég var búinn að panta blasti við mér eitthvað sem leit út eins og brúnt matarkex inni í mjúkum tvíbökum. Ég þurfti að rifja það upp með sjálfum mér að ég hafði pantað eitthvað sem kalla mætti risahamborgara. Ríflega var hins vegar veitt af frönskum kartöflum, sem brögðuðust eins og besti pappír, og gosskammturinn hefði hæglega dugað til að gera prúðan pabbadreng að öskrandi villingi. Ég er svo sem ekkert á bömmer þó að Kaupaörvar hafi náð að ginna mig í garnagaulinu. En það var fullt á þessum stað, rétt eins og hjá þessum kaldlynda ilmvatnskaupmanni. Það er það sem ég er að bömmerast yfir. Hvernig stendur á því að þessi nautheimskulegu trikk svínvirka? Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Mest lesið Grateful Dead á Sæbrautinni Júlíus Valsson Skoðun Skuggamansal á Íslandi Sævar Þór Jónsson Skoðun Hver á arfinn? Gunnar Ármannsson Skoðun Þjóðarsjúkrahúsið seinkar Sigurður Sigurðsson Skoðun Er Þórarinn Tyrfings nýja framtíð Vogs? Bergþóra Haralds Eiðsdóttir Skoðun Hvað segja gögnin í raun um ásakanir á hendur séra Friðriki Theódór S. Halldórsson Skoðun Er gervigreindin spegill mannkyns Kristján Logason Skoðun Tólf ára ákvað ég að gera bíó Arnar Benjamín Kristjánsson Skoðun Til hamingju Reykjanesbær með leikskólana okkar Guðný Birna Guðmundsdóttir Skoðun Að tala um dauðann er að tala um lífið Ingrid Kuhlman Skoðun Skoðun Skoðun Baráttan er ekki búin Mordekaí Elí Esrason skrifar Skoðun Hver á arfinn? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Að tala um dauðann er að tala um lífið Ingrid Kuhlman skrifar Skoðun Til hamingju Reykjanesbær með leikskólana okkar Guðný Birna Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Skuggamansal á Íslandi Sævar Þór Jónsson skrifar Skoðun Grateful Dead á Sæbrautinni Júlíus Valsson skrifar Skoðun Þjóðarsjúkrahúsið seinkar Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Er gervigreindin spegill mannkyns Kristján Logason skrifar Skoðun Er Þórarinn Tyrfings nýja framtíð Vogs? Bergþóra Haralds Eiðsdóttir skrifar Skoðun Tólf ára ákvað ég að gera bíó Arnar Benjamín Kristjánsson skrifar Skoðun Hvað segja gögnin í raun um ásakanir á hendur séra Friðriki Theódór S. Halldórsson skrifar Skoðun Það er sárt að tapa kosningum Heimir Már Pétursson skrifar Skoðun Er enn þess virði að leggja á sig langt háskólanám? Gunnar Alexander Ólafsson skrifar Skoðun Engin fjölskylda á að þurfa að standa ein Eydís Ásbjörnsdóttir skrifar Skoðun Þegar reglurnar gilda ekki jafnt Ágúst Karlsson skrifar Skoðun Utanríkisstefna án ábyrgðar? Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar Skoðun PISA-skellur en hvað svo? Inga Sæland skrifar Skoðun Hver verndar velferð barna þegar náttúran blandar kynjunum? Jón Þór Ólafsson skrifar Skoðun Einhliða bergmálshellir og heimildir sem hrynja Lilja Benatov Hjartar skrifar Skoðun KEMUR TÓLFAN? Hilmar Jökull Stefánsson skrifar Skoðun Ábyrgðinni má ekki útvista til tækninnar Karen Ósk Nielsen Björnsdóttir skrifar Skoðun Gervigreindin kaupir ekki það sem hún skilur ekki Jens Gunnarsson skrifar Skoðun Fólkið á bak við öruggt flug Elísabet Heiða Valdemarsdóttir skrifar Skoðun Fjöldi opinberra starfsmanna - deilt um keisarans skegg Ingvar Freyr Ingvarsson skrifar Skoðun Stafrænt heilbrigðiskerfið byggt á skilvirkni Hilmar Ingimundarson skrifar Skoðun Hvað þarf barn í grunnskóla að kunna til að fá 10 í grunnskóla? Þorsteinn Mar Gunnlaugsson skrifar Skoðun Reykjalundur endurhæfir – Endurhæfum Reykjalund Svana Helen Björnsdóttir skrifar Skoðun Að ganga út eða ganga inn Indriði Þröstur Gunnlaugsson skrifar Skoðun Gulur september: Helst góð geðheilsa í hendur við góða stjórnun? Katrín Þrastardóttir skrifar Sjá meira
Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar
Skoðun Hvað þarf barn í grunnskóla að kunna til að fá 10 í grunnskóla? Þorsteinn Mar Gunnlaugsson skrifar
Skoðun Gulur september: Helst góð geðheilsa í hendur við góða stjórnun? Katrín Þrastardóttir skrifar