Góð kosningaþátttaka – sterkara lýðræði Björn Einarsson skrifar 18. október 2012 06:00 Hvers vegna eigum við að fjölmenna í kosningarnar 20. október um tillögur stjórnlagaráðs? Vegna þess að góð þátttaka í kosningunum styrkir lýðræðið og þannig þróum við og þroskum lýðræðið. Þannig höldum við áfram að auka lýðræðið í landinu, og það er langtímamarkmið allra lýðræðissinna. Með því að líkja þessari þjóðaratkvæðagreiðslu við skoðanakönnun, þar sem hún er ekki bindandi, erum við að gera lítið úr lýðræðinu. Eins og bent hefur verið á hafa þjóðaratkvæðagreiðslur áður verið haldnar, án þess að þær hafa verið bindandi, en niðurstöður þeirra hafa alltaf verið virtar í raun af stjórnvöldum. Við búum við fulltrúalýðræði, þar sem stjórnmálamenn eru fulltrúar okkar, vald þeirra kemur frá okkur, fólkinu í landinu. Fulltrúalýðræðið er það eina raunhæfa í okkar sérfræðingasamfélagi. Stjórnmálamennirnir eiga því að stjórna landinu út frá hagsmunum allra landsmanna, með hag samfélagsins að leiðarljósi, en ekki einhverra sérhagsmunahópa. Það er skylda stjórnmálamanna að setja sig inn í málin og sérhæfa sig í efnahagsmálum og öðrum þeim málum sem eru til umfjöllunar hjá Alþingi hverju sinni, svo þeir geti tekið málefnalega rökstudda afstöðu til málanna. Rökstuðningur allra stjórnvaldsákvarðana ætti því að vera skylda stjórnmálamanna. Þróun fulltrúalýðræðisins felst í auknum tengslum og samræðum stjórnmálamanna og almennings, þ.e. í rökræðulýðræðinu (deliberative democracy). Þjóðin á einnig að geta hafnað lögum, sem eru í andstöðu við vilja hennar og geta krafist þjóðaratkvæðis um þau – hvenær sem er. Þjóðin á einnig að geta rekið frá völdum ríkisstjórn og Alþingi, sem hefur misst traust hennar – hvenær sem er. Mikilvægi þjóðaratkvæðagreiðslunnar 20. október um tillögur stjórnlagaráðs liggur í því að fólkið í landinu á að setja fulltrúum sínum leikreglurnar. Stjórnmálamenn eiga ekki að setja sér leikreglurnar sjálfir, Alþingi ætti því ekki að hafa valdið til að setja og breyta stjórnarskrá. Í raun ætti stjórnlagaþing að setja öll stjórnskipunarlög í stjórnarskrá. Slíkt stjórnlagaþing gæti verið undir forsæti forseta lýðveldisins, og verið kallað saman og kosið til eftir þörfum. Það er tilhneiging valdsmanna að halda í völd sín með öllum tiltækum ráðum. Þó hefur lýðræðislöndum fjölgað stöðugt í heiminum á síðustu öld. Samt eru ótrúlega margir sem búa ekki við lýðræði eða lélegt lýðræði. Gerum ekki lítið úr sjálfum okkur með því að mæta ekki á kjörstað. Kjósið eftir ykkar eigin sannfæringu, en fyrir alla muni kjósið. Sýnið lýðræðinu virðingu ykkar, sýnið í verki að þið eruð lýðræðissinnar. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Mest lesið Hver á arfinn? Gunnar Ármannsson Skoðun Í hvaða vitleysu erum við stödd? Ragnheiður Stephensen Skoðun Skuggamansal á Íslandi Sævar Þór Jónsson Skoðun Grateful Dead á Sæbrautinni Júlíus Valsson Skoðun Baráttan er ekki búin Mordekaí Elí Esrason Skoðun Skattlagning til velsældar Hannes Lúðvíksson Skoðun Til hamingju Reykjanesbær með leikskólana okkar Guðný Birna Guðmundsdóttir Skoðun Er Þórarinn Tyrfings nýja framtíð Vogs? Bergþóra Haralds Eiðsdóttir Skoðun Þjóðarsjúkrahúsið seinkar Sigurður Sigurðsson Skoðun Hvað segja gögnin í raun um ásakanir á hendur séra Friðriki Theódór S. Halldórsson Skoðun Skoðun Skoðun Við erum ekki jafn ömurleg og við höldum Þorsteinn Tjörvi Sigurðsson skrifar Skoðun Bjórinn sem slapp við suðurferðina Elís Pétur Elísson skrifar Skoðun Í hvaða vitleysu erum við stödd? Ragnheiður Stephensen skrifar Skoðun Skattlagning til velsældar Hannes Lúðvíksson skrifar Skoðun Baráttan er ekki búin Mordekaí Elí Esrason skrifar Skoðun Hver á arfinn? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Að tala um dauðann er að tala um lífið Ingrid Kuhlman skrifar Skoðun Til hamingju Reykjanesbær með leikskólana okkar Guðný Birna Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Skuggamansal á Íslandi Sævar Þór Jónsson skrifar Skoðun Grateful Dead á Sæbrautinni Júlíus Valsson skrifar Skoðun Þjóðarsjúkrahúsið seinkar Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Er gervigreindin spegill mannkyns Kristján Logason skrifar Skoðun Er Þórarinn Tyrfings nýja framtíð Vogs? Bergþóra Haralds Eiðsdóttir skrifar Skoðun Tólf ára ákvað ég að gera bíó Arnar Benjamín Kristjánsson skrifar Skoðun Hvað segja gögnin í raun um ásakanir á hendur séra Friðriki Theódór S. Halldórsson skrifar Skoðun Það er sárt að tapa kosningum Heimir Már Pétursson skrifar Skoðun Er enn þess virði að leggja á sig langt háskólanám? Gunnar Alexander Ólafsson skrifar Skoðun Engin fjölskylda á að þurfa að standa ein Eydís Ásbjörnsdóttir skrifar Skoðun Þegar reglurnar gilda ekki jafnt Ágúst Karlsson skrifar Skoðun Utanríkisstefna án ábyrgðar? Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar Skoðun PISA-skellur en hvað svo? Inga Sæland skrifar Skoðun Hver verndar velferð barna þegar náttúran blandar kynjunum? Jón Þór Ólafsson skrifar Skoðun Einhliða bergmálshellir og heimildir sem hrynja Lilja Benatov Hjartar skrifar Skoðun KEMUR TÓLFAN? Hilmar Jökull Stefánsson skrifar Skoðun Ábyrgðinni má ekki útvista til tækninnar Karen Ósk Nielsen Björnsdóttir skrifar Skoðun Gervigreindin kaupir ekki það sem hún skilur ekki Jens Gunnarsson skrifar Skoðun Fólkið á bak við öruggt flug Elísabet Heiða Valdemarsdóttir skrifar Skoðun Fjöldi opinberra starfsmanna - deilt um keisarans skegg Ingvar Freyr Ingvarsson skrifar Skoðun Stafrænt heilbrigðiskerfið byggt á skilvirkni Hilmar Ingimundarson skrifar Sjá meira
Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar