Síðasta útkall Þór Jakobsson skrifar 18. október 2012 06:00 Orðum mínum beini ég til „lýðveldisbarna“, núlifandi Íslendinga sem voru á Þingvöllum við stofnun lýðveldisins Íslands 17. júní 1944. Í kjölfar fagnaðar lýðveldisbarna í blíðskaparveðri í Almannagjá á Þingvöllum 17. júní í fyrra var ákveðið að safna endurminningum frá 17. júní 1944, hinum sögufræga degi fyrir 68 árum er lýðveldið Ísland var stofnað. Stefnt var að því að fá um 50 minningarpistla. Mér hafa nú borist rúmlega 40 slík minningabrot, sum stutt en önnur ítarleg og fer það eins og gefur að skilja mjög eftir aldri fólks árið 1944 og minni manna núna að öllum þessum árum liðnum. Ekki vil ég hætta söfnuninni fyrr en pistlarnir eru orðnir um 50 talsins og er grein þessi eins konar lokaútkall. Það vantar herslumuninn og væri ánægjulegt að fá um tug pistla til að reka smiðshöggið á söfnunina. Að svo búnu er stefnt að söfnun mynda til fróðleiks með minningum lýðveldisbarna og útgáfa er síðan fyrirhuguð fyrri hluta árs 2014, fyrir 70 ára afmæli lýðveldisins. Ég hef hitt allmarga sem kunnað hafa frá þessum eftirminnilega degi að segja en hafa síðan guggnað við að skrifa nokkrar línur og senda. Skora ég því á aðstandendur að hjálpa til. Það hefur verið fengur að hverjum pistli sem hefur borist og giska ég að fleiri hefðu frá einhverju skemmtilegu að segja. Myndin af 17. júní 1944 með skynjun barnsins og unga fólksins yrði fyrir bragðið enn fyllri. Slíkur dagur rennur aldrei upp aftur. Við vonum að Ísland þurfi aldrei aftur að endurheimta sjálfstæði sitt. Hvert lítið minningarbrot frá stofnun lýðveldisins er því mikils virði. Lýðveldisbörn, vinsamlega sendið mér sem fyrst línur eða pistil. Best væri sending á netinu, sjá netfang hér með nafni mínu. Bréf í pósti gengur þó líka. thor.jakobsson@gmail.com Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Mest lesið Hver á arfinn? Gunnar Ármannsson Skoðun Í hvaða vitleysu erum við stödd? Ragnheiður Stephensen Skoðun Skuggamansal á Íslandi Sævar Þór Jónsson Skoðun Grateful Dead á Sæbrautinni Júlíus Valsson Skoðun Baráttan er ekki búin Mordekaí Elí Esrason Skoðun Skattlagning til velsældar Hannes Lúðvíksson Skoðun Til hamingju Reykjanesbær með leikskólana okkar Guðný Birna Guðmundsdóttir Skoðun Er Þórarinn Tyrfings nýja framtíð Vogs? Bergþóra Haralds Eiðsdóttir Skoðun Þjóðarsjúkrahúsið seinkar Sigurður Sigurðsson Skoðun Hvað segja gögnin í raun um ásakanir á hendur séra Friðriki Theódór S. Halldórsson Skoðun Skoðun Skoðun Við erum ekki jafn ömurleg og við höldum Þorsteinn Tjörvi Sigurðsson skrifar Skoðun Bjórinn sem slapp við suðurferðina Elís Pétur Elísson skrifar Skoðun Í hvaða vitleysu erum við stödd? Ragnheiður Stephensen skrifar Skoðun Skattlagning til velsældar Hannes Lúðvíksson skrifar Skoðun Baráttan er ekki búin Mordekaí Elí Esrason skrifar Skoðun Hver á arfinn? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Að tala um dauðann er að tala um lífið Ingrid Kuhlman skrifar Skoðun Til hamingju Reykjanesbær með leikskólana okkar Guðný Birna Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Skuggamansal á Íslandi Sævar Þór Jónsson skrifar Skoðun Grateful Dead á Sæbrautinni Júlíus Valsson skrifar Skoðun Þjóðarsjúkrahúsið seinkar Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Er gervigreindin spegill mannkyns Kristján Logason skrifar Skoðun Er Þórarinn Tyrfings nýja framtíð Vogs? Bergþóra Haralds Eiðsdóttir skrifar Skoðun Tólf ára ákvað ég að gera bíó Arnar Benjamín Kristjánsson skrifar Skoðun Hvað segja gögnin í raun um ásakanir á hendur séra Friðriki Theódór S. Halldórsson skrifar Skoðun Það er sárt að tapa kosningum Heimir Már Pétursson skrifar Skoðun Er enn þess virði að leggja á sig langt háskólanám? Gunnar Alexander Ólafsson skrifar Skoðun Engin fjölskylda á að þurfa að standa ein Eydís Ásbjörnsdóttir skrifar Skoðun Þegar reglurnar gilda ekki jafnt Ágúst Karlsson skrifar Skoðun Utanríkisstefna án ábyrgðar? Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar Skoðun PISA-skellur en hvað svo? Inga Sæland skrifar Skoðun Hver verndar velferð barna þegar náttúran blandar kynjunum? Jón Þór Ólafsson skrifar Skoðun Einhliða bergmálshellir og heimildir sem hrynja Lilja Benatov Hjartar skrifar Skoðun KEMUR TÓLFAN? Hilmar Jökull Stefánsson skrifar Skoðun Ábyrgðinni má ekki útvista til tækninnar Karen Ósk Nielsen Björnsdóttir skrifar Skoðun Gervigreindin kaupir ekki það sem hún skilur ekki Jens Gunnarsson skrifar Skoðun Fólkið á bak við öruggt flug Elísabet Heiða Valdemarsdóttir skrifar Skoðun Fjöldi opinberra starfsmanna - deilt um keisarans skegg Ingvar Freyr Ingvarsson skrifar Skoðun Stafrænt heilbrigðiskerfið byggt á skilvirkni Hilmar Ingimundarson skrifar Sjá meira
Orðum mínum beini ég til „lýðveldisbarna“, núlifandi Íslendinga sem voru á Þingvöllum við stofnun lýðveldisins Íslands 17. júní 1944. Í kjölfar fagnaðar lýðveldisbarna í blíðskaparveðri í Almannagjá á Þingvöllum 17. júní í fyrra var ákveðið að safna endurminningum frá 17. júní 1944, hinum sögufræga degi fyrir 68 árum er lýðveldið Ísland var stofnað. Stefnt var að því að fá um 50 minningarpistla. Mér hafa nú borist rúmlega 40 slík minningabrot, sum stutt en önnur ítarleg og fer það eins og gefur að skilja mjög eftir aldri fólks árið 1944 og minni manna núna að öllum þessum árum liðnum. Ekki vil ég hætta söfnuninni fyrr en pistlarnir eru orðnir um 50 talsins og er grein þessi eins konar lokaútkall. Það vantar herslumuninn og væri ánægjulegt að fá um tug pistla til að reka smiðshöggið á söfnunina. Að svo búnu er stefnt að söfnun mynda til fróðleiks með minningum lýðveldisbarna og útgáfa er síðan fyrirhuguð fyrri hluta árs 2014, fyrir 70 ára afmæli lýðveldisins. Ég hef hitt allmarga sem kunnað hafa frá þessum eftirminnilega degi að segja en hafa síðan guggnað við að skrifa nokkrar línur og senda. Skora ég því á aðstandendur að hjálpa til. Það hefur verið fengur að hverjum pistli sem hefur borist og giska ég að fleiri hefðu frá einhverju skemmtilegu að segja. Myndin af 17. júní 1944 með skynjun barnsins og unga fólksins yrði fyrir bragðið enn fyllri. Slíkur dagur rennur aldrei upp aftur. Við vonum að Ísland þurfi aldrei aftur að endurheimta sjálfstæði sitt. Hvert lítið minningarbrot frá stofnun lýðveldisins er því mikils virði. Lýðveldisbörn, vinsamlega sendið mér sem fyrst línur eða pistil. Best væri sending á netinu, sjá netfang hér með nafni mínu. Bréf í pósti gengur þó líka. thor.jakobsson@gmail.com
Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar