Hugmyndin um graðara Alþingi er góð Lýður Árnason skrifar 27. ágúst 2012 06:00 Ólafur Hauksson átelur í nýlegri grein í Fréttablaðinu kosningaákvæðið í frumvarpi stjórnlagaráðs. Segir það gelda Alþingi og fylla það af villiköttum. Að mati greinarhöfundar mun þetta gerast þar sem ekki sé talað um stjórnmálaflokka í kosningaákvæðinu heldur samtök frambjóðenda. Í síðari yfirreið stjórnlagaráðs í vor lá fyrir athugasemd í þessa veru og ákvað ráðið að breyta orðalaginu í samræmi við núgildandi kosningalög frá 2000 en þar segir (32. grein): Með stjórnmálasamtökum er í lögum þessum átt við samtök sem bjóða eða boðið hafa fram við alþingiskosningar. Í frumvarpinu sem birtist kjósendum í haust mun því standa stjórnmálasamtök en ekki samtök frambjóðenda. Áhyggjur Ólafs af þessu eru því ástæðulausar. Persónukjör í frumvarpi stjórnlagaráðs segir Ólafur flókið en því má líkja við konfektkassa (framboðslista) sem þú annaðhvort velur eins og nú tíðkast allan eða tínir úr þá mola sem þér hugnast best. M.ö.o. má segja að prófkjör flokkanna færist til þín í kjörklefanum, kjósandi góður. Ólafur telur það galla að sá frambjóðandi sem flesta krossa hlýtur, þ.e. sá konfektmoli sem flestum þykir bestur, verði að þingmanni. Þetta þótti stjórnlagaráði einmitt eftirsótt enda í samræmi við ákall þjóðfundar. Í lok greinar sinnar geldur Ólafur varhug við hinu beina lýðræði sem frumvarp stjórnlagaráðs inniber. Sitt sýnist hverjum um ágæti þessa en afstaða stjórnlagaráðs er borðliggjandi sú að auka áhrifamátt almennings í stjórnskipuninni. Að mati ráðsins mun beint lýðræði ekki skerða störf þingsins heldur gegna hlutverki aðhalds og leiðbeiningar. Landsmenn geta svo velt fyrir sér hvort þörf sé á þessu eður ei. Annað í frumvarpinu tiltók Ólafur sem sallafínt og læt ég þetta því nægja að sinni. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Tengdar fréttir Hugmyndin um að gelda Alþingi er vond Tillaga stjórnlagaráðs um fyrirkomulag Alþingiskosninga er vægast sagt vond. Reyndar sker hún sig úr, því flestallt annað í frumvarpi stjórnlagaráðs að nýrri stjórnarskrá er sallafínt. 22. ágúst 2012 06:00 Mest lesið Hamfarir Hildar Haraldur F. Gíslason Skoðun Sjálflærðir sérfræðingar í leikskólamálum Ingibjörg Sólrún Ágústsdóttir Skoðun Nýr golfvöllur í Reykjavík Magnea Gná Jóhannsdóttir Skoðun Lægri húsnæðisvextir með evru (staðfest) Dagur B. Eggertsson Skoðun Vatnsaflsvirkjanir eru æði Þorgerður María Þorbjarnardóttir Skoðun Innritun í framhaldsskóla – samspil fagmennsku og sanngirni Magnús Þór Jónsson Skoðun Hvar er forgangsröðun ríkisstjórnarinnar? Dagmar Valsdóttir Skoðun Foreldrahús Kristín Davíðsdóttir Skoðun Íslensk orka er svarið við olíukrísunni Jóhann Páll Jóhannsson Skoðun Mitt uppáhalds stefnumál? Systkinaforgangur Bjarnveig Birta Bjarnadóttir Skoðun Skoðun Skoðun Mitt uppáhalds stefnumál? Systkinaforgangur Bjarnveig Birta Bjarnadóttir skrifar Skoðun Ekki benda á mig Guðmundur Stefán Gunnarsson skrifar Skoðun Vönduð niðurstaða Feneyjanefndarinnar Pawel Bartoszek skrifar Skoðun Horfumst í augu við staðreyndir Eyþór Fannar Sveinsson skrifar Skoðun Hafa skal náttúruvernd í heiðri allar stundir! Elva Rakel Jónsdóttir,Guðmundur Þ. Guðmundsson,Rakel Garðardóttir,Rán Flygenring,Stefán Jón Hafstein skrifar Skoðun Vatnsaflsvirkjanir eru æði Þorgerður María Þorbjarnardóttir skrifar Skoðun Innritun í framhaldsskóla – samspil fagmennsku og sanngirni Magnús Þór Jónsson skrifar Skoðun Hamfarir Hildar Haraldur F. Gíslason skrifar Skoðun Græna gangan - göngum fyrir hafið Guðrún Hallgrímsdóttir,Maríanna Traustadóttir skrifar Skoðun 10 loforð til ungs fólks á besta stað í heimi, Hafnarfirði Viktor Pétur Finnsson skrifar Skoðun Lýðheilsa er undirstaða sterks samfélags Kolbrún Magnúsdóttir skrifar Skoðun Sjálflærðir sérfræðingar í leikskólamálum Ingibjörg Sólrún Ágústsdóttir skrifar Skoðun Ég lofa að líta ekki undan Ingibjörg Magnúsdóttir skrifar Skoðun Nýr golfvöllur í Reykjavík Magnea Gná Jóhannsdóttir skrifar Skoðun Þegar bygging er ekki orðin að húsi: Ný nálgun í tryggingum framkvæmda Heiður Huld Hreiðarsdóttir skrifar Skoðun Lýðfullveldi Aðalstein Júlíus Magnússon skrifar Skoðun Árangur á vakt Framsóknar í Suðurnesjabæ Anton Guðmundsson skrifar Skoðun Hvar er forgangsröðun ríkisstjórnarinnar? Dagmar Valsdóttir skrifar Skoðun Lægri húsnæðisvextir með evru (staðfest) Dagur B. Eggertsson skrifar Skoðun Foreldrahús Kristín Davíðsdóttir skrifar Skoðun Börn án verndar: ofbeldi milli systkina sem fellur á milli kerfa Þórdís Bjarnleifsdóttir skrifar Skoðun Íslensk ofbeldismenning og réttarríkið Hjörvar Sigurðsson skrifar Skoðun Lykill að jöfnum tækifærum Isabel Alejandra Diaz skrifar Skoðun Jöfnuður, ábyrgð og uppbygging Stefán Þór Eysteinsson skrifar Skoðun „Selfies“ eru ekki hagsmunagæsla Jóhann Ingi Óskarsson skrifar Skoðun Dónaskapur Reykjavíkurborgar Lárus Blöndal Sigurðsson skrifar Skoðun Sterkari saman Sindri S. Kristjánsson skrifar Skoðun Popúlismi formanns VR Sólveig Anna Jónsdóttir skrifar Skoðun Snúum Reykjavík við Björg Magnúsdóttir skrifar Skoðun #ÉGLOFA að láta ekki allt brenna til kaldra kola Alfa Jóhannsdóttir skrifar Sjá meira
Ólafur Hauksson átelur í nýlegri grein í Fréttablaðinu kosningaákvæðið í frumvarpi stjórnlagaráðs. Segir það gelda Alþingi og fylla það af villiköttum. Að mati greinarhöfundar mun þetta gerast þar sem ekki sé talað um stjórnmálaflokka í kosningaákvæðinu heldur samtök frambjóðenda. Í síðari yfirreið stjórnlagaráðs í vor lá fyrir athugasemd í þessa veru og ákvað ráðið að breyta orðalaginu í samræmi við núgildandi kosningalög frá 2000 en þar segir (32. grein): Með stjórnmálasamtökum er í lögum þessum átt við samtök sem bjóða eða boðið hafa fram við alþingiskosningar. Í frumvarpinu sem birtist kjósendum í haust mun því standa stjórnmálasamtök en ekki samtök frambjóðenda. Áhyggjur Ólafs af þessu eru því ástæðulausar. Persónukjör í frumvarpi stjórnlagaráðs segir Ólafur flókið en því má líkja við konfektkassa (framboðslista) sem þú annaðhvort velur eins og nú tíðkast allan eða tínir úr þá mola sem þér hugnast best. M.ö.o. má segja að prófkjör flokkanna færist til þín í kjörklefanum, kjósandi góður. Ólafur telur það galla að sá frambjóðandi sem flesta krossa hlýtur, þ.e. sá konfektmoli sem flestum þykir bestur, verði að þingmanni. Þetta þótti stjórnlagaráði einmitt eftirsótt enda í samræmi við ákall þjóðfundar. Í lok greinar sinnar geldur Ólafur varhug við hinu beina lýðræði sem frumvarp stjórnlagaráðs inniber. Sitt sýnist hverjum um ágæti þessa en afstaða stjórnlagaráðs er borðliggjandi sú að auka áhrifamátt almennings í stjórnskipuninni. Að mati ráðsins mun beint lýðræði ekki skerða störf þingsins heldur gegna hlutverki aðhalds og leiðbeiningar. Landsmenn geta svo velt fyrir sér hvort þörf sé á þessu eður ei. Annað í frumvarpinu tiltók Ólafur sem sallafínt og læt ég þetta því nægja að sinni.
Hugmyndin um að gelda Alþingi er vond Tillaga stjórnlagaráðs um fyrirkomulag Alþingiskosninga er vægast sagt vond. Reyndar sker hún sig úr, því flestallt annað í frumvarpi stjórnlagaráðs að nýrri stjórnarskrá er sallafínt. 22. ágúst 2012 06:00
Skoðun Hafa skal náttúruvernd í heiðri allar stundir! Elva Rakel Jónsdóttir,Guðmundur Þ. Guðmundsson,Rakel Garðardóttir,Rán Flygenring,Stefán Jón Hafstein skrifar
Skoðun Þegar bygging er ekki orðin að húsi: Ný nálgun í tryggingum framkvæmda Heiður Huld Hreiðarsdóttir skrifar
Skoðun Börn án verndar: ofbeldi milli systkina sem fellur á milli kerfa Þórdís Bjarnleifsdóttir skrifar