Innlent

Geit og lömb á vappi á Suðurnesjum

Tilkynnt var um lausa get á vappi á Suðurnesjum í gær. Þegar lögregla kom á staðinn reyndist um eina geit og tvö lömb að ræða, sem eiga heimkynni sín í litlum húsdýragarði sem er í Víkingaheimum í innri Njarðvík.

„Starfsfólk húsdýragarðsins vildi gleðja dýrin og hafði hleypt þeim í gott og safaríkt gras rétt hjá garðinum, þar sem þau hámuðu í sig undir stöðugu eftirliti starfsmanna.

Málið leystist því að sjálfu sér og þess má geta að landnámsdýrin í húsdýragarðinum hafa glatt augu fjölmargra barna og fullorðinna," segir í tilkynningu frá lögreglu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×