

Foreldrar og forvarnir
Gildi foreldrasáttmála
Sáttmálanálgun sem þessi hefur reynst afar árangursrík í Svíþjóð í því augnamiði að sporna við áfengisnotkun unglinga, þrátt fyrir að verkefnið sé einfalt í framkvæmd og kostnaður mun minni en við að standa fyrir fræðsluátaki meðal nemenda. Reynsla Svía sýnir að skýr afstaða foreldrasamfélagsins gegn áfengisnotkun barna og ungmenna á aldrinum þrettán til sextán ára hefur veruleg áhrif á á unglingadrykkju miðað við skóla sem vinna undir formerkjum annarra forvarnarverkefna auk þess sem afleidd áhrif eru greinanleg í formi fækkaðra afbrota og spellvirkja í þessum aldurshópi.
Öflugt stuðningstæki við uppeldi
Foreldrasáttmáli Heimilis og skóla byggir á sömu hugmynd hvað þennan málaflokk varðar en þeir foreldrar sem undirrita sáttmálann sameinast um að kaupa hvorki tóbak, áfengi eða önnur vímuefni fyrir börn sín né leyfa þeim að neyta þeirra á heimilinu, hvað þá að leyfa eftirlitslaus partí. Íslenski sáttmálinn er í ofanálag mun umfangsmeiri og nær til fleiri atriða en vímuefnaneyslu og er gefinn út sérstaklega fyrir hvert stig grunnskólans auk leiðbeininga og ítarefnis. Foreldrar heita því einnig að standa vörð um lögboðinn útivistartíma, láta skólagöngu barna sinna sig varða, leggja sitt af mörkum til foreldrastarfs, vera meðvitaðir um félagslega stöðu barnsins og gæta þess að það hafi aðeins aðgang að afþreyingarefni sem hæfir aldri þess og þroska, svo fátt eitt sé nefnt. Þannig getur sáttmálinn, ef breið samstaða næst innan foreldrasamfélagsins um að halda hann í heiðri, nýst sem öflugt stuðningstæki í uppeldinu. Ég hvet því alla foreldra og forráðamenn grunnskólabarna sem og áhugafólk um skóla- og uppeldismál að kynna sér Foreldrasáttmálann, en hægt er að nálgast sáttmálann, ítarefni og leiðbeiningar á fræðsluskrifstofu Heimilis og skóla á Suðurlandsbraut 24 eða hala niður af heimasíðu samtakana, www.heimiliogskoli.is.
Skoðun

Til hamingju Íslendingar með nýja Óperu
Andri Björn Róbertsson skrifar

Hvers vegna hatar SFS smábáta? Svarið tengist veiðigjöldum
Kjartan Páll Sveinsson skrifar

„Oft er flagð undir fögru skinni“
Guðmunda G. Guðmundsdóttir skrifar

Orðhengilsháttur og lygar
Elín Erna Steinarsdóttir skrifar

Fjögurra daga vinnuvika – nýr veruleiki?
Sigvaldi Einarsson skrifar

Ráðherra gengur fram án laga
Svanur Guðmundsson skrifar

Hagkvæmur kostur utan friðlands
Jóna Bjarnadóttir skrifar

Gagnsæi og inntak
Halldóra Lillý Jóhannsdóttir skrifar

Sumargjöf
Þórunn Sigurðardóttir skrifar

Hannað fyrir miklu stærri markaði
Hjörtur J. Guðmundsson skrifar

Grafarvogur framtíðar verður til
Sara Björg Sigurðardóttir skrifar

Málþófið um veiðigjöldin vekur miskunnsama Samverja
Sigurjón Þórðarson skrifar

Menntastefna 2030
Guðmundur Ingi Kristinsson skrifar

Ágætu fyrrum samstarfsaðilar á Þjóðminjasafni Íslands
Uggi Jónsson skrifar

Ferðamannaþorpin - Náttúruvá
Þóra B. Hafsteinsdóttir skrifar

Vonarsvæði fyrir framtíðina – ábyrgð stjórnvalda kallar á verndun
Huld Hafliðadóttir,Heimir Harðarson skrifar

Laxaharmleikur
Jóhannes Sturlaugsson skrifar

Lýðræðið í skötulíki!
Lilja Rafney Magnúsdóttir skrifar

Stærðfræðikennari sem kann ekki að reikna? (Og getur ekki lært það!)
Brynjólfur Þorvarðsson skrifar

Íslendingar greiða sama hlutfall útgjalda í mat og Norðurlöndin
Margrét Gísladóttir skrifar

Til varnar jafnlaunavottun
Magnea Marinósdóttir skrifar

Heimaþjónusta og velferðartækni: Lykillinn að sjálfbæru heilbrigðiskerfi
Auður Guðmundsdóttir skrifar

Barnaræninginn Pútín
Gunnar Hólmsteinn Ársælsson skrifar

Um þjóð og ríki
Gauti Kristmannsson skrifar

Málfrelsi og mörk þess á vettvangi lýðræðisins
Helga Vala Helgadóttir skrifar

Sjókvíaeldi á Íslandi fjarstýrt með gervigreind frá Noregi
Ingólfur Ásgeirsson skrifar

Hvers vegna skipta hagsmunir verslanakeðja meira máli en öryggi barna í Ásahverfi Reykjanesbæ?
Ólafur Ívar Jónsson skrifar

Kjarnorkuákvæðið: Neyðarhemill en ekki léttvægt leikfang popúlista
Kristinn Karl Brynjarsson skrifar

Stjórnarandstaðan er vannýtt auðlind
Jón Daníelsson skrifar