Stefnir í metsumar í hvalaskoðun BBI skrifar 14. júlí 2012 17:18 Mynd/Elding
Það stefnir í metsumar í ár hjá hvalaskoðunarfyrirtækinu Eldingu sem gerir út frá Reykjavíkurhöfn. Sé bara horft á sumarið er útlit fyrir 20% aukningu frá því í fyrra. Sé veturinn tekinn með í reikninginn blasir við 40-50% aukning en veturinn var sérlega góður í ár. „Svo já það stefnir í metsumar hjá okkur," segir Rannveig Grétarsdóttir, framkvæmdastjóri Eldingar. „Ekki nema hvalirnir hverfi bara. Þetta er búið að vera skelfilegt núna síðustu daga. En alla vega eru bókanirnar góðar." Fyrirtækið veltir um 400 milljónum á ársgrundvelli. Í fréttum í vikunni kom fram að hrefnuveiðimenn eiga erfiðara með að sjá hrefnur í Faxaflóa og hafa áhyggjur af því að aukin makrílganga við landið hafi slæm áhrif á hrefnustofninn. „Maður veit raunverulega ekki hvaða áhrif markíllinn hefur á hrefnuna," segir Rannveig en efast þó hálfpartinn um að þau séu svo slæm. „Við teljum að hrefnuveiðarnar hafi miklu meiri áhrif en makríllinn. Það hefur verið makríll hér áður," segir hún. Rannsóknir sem gerðar voru við Háskóla Íslands benda til þess að það séu sömu hrefnurnar sem koma til Íslands á ári hverju. Þannig sé hægt að þekkja hvalina sem koma hér ár frá ári. Starfsmenn eldingar halda því fram að í raun séu ekki svo margir hvalir sem venja komur sínar í Faxaflóann. Því telja þeir höggvið alvarlegt skarð í stofninn á svæðinu með því að veiða úr honum. Starfsmenn Eldingar telja að veiðarnar hafi töluvert meiri áhrif á hrefnustofninn en makríllinn og segjast finna mikinn mun á stofninum frá því veiðarnar hófust. Bæði hafi hrefnurnar verið færri og styggari síðan.
Mest lesið Segir Viðreisn í krísu og útilokar ekki að hætta stuðningi Innlent „Noregur sökkar“ Erlent „Jón Gnarr er ein mesta prímadonna Íslandssögunnar“ Innlent Stjórnarskráin trompi alltaf bókun 35 Innlent Ekki boðaður á stjórnarfundi: „Þetta hefur aldrei gerst áður í sögu Landsvirkjunar“ Innlent Lægðin fyrr á ferðinni Veður Vučić játar ósigur Erlent Ekki sjálfsagt að bóka flug með löngum fyrirvara Innlent „Ég er bara svolítið sár“ Innlent Musk segi ósatt um Starlink Erlent Fleiri fréttir Segir Viðreisn í krísu og útilokar ekki að hætta stuðningi Stjórnarskráin trompi alltaf bókun 35 Engin trygging fyrir því að peningarnir nýtist í innviði „Jón Gnarr er ein mesta prímadonna Íslandssögunnar“ Skoðar að hækka framlag til Loftbrúarinnar Upplifa endurtekið áfall vegna dómsins „Fylgir því mikil skömm að eiga foreldri í fangelsi“ Vonast eftir betri vetri en þeim síðasta: „Við eigum það bara skilið“ Ekki boðaður á stjórnarfundi: „Þetta hefur aldrei gerst áður í sögu Landsvirkjunar“ Umdeildur sýknudómur þegar haft alvarlegar afleiðingar Skiljanlega skiptar skoðanir á stærstu kerfisbreytingu í áratug Fluttur á bráðamóttöku eftir líkamsárás í Skeifunni Hörður Arnarsson og náttúru- og innviðagjald á Sprengisandi Bóndinn segist stoltur stunda blóðmerahald Ekki sjálfsagt að bóka flug með löngum fyrirvara Glefsaði í vegfaranda við matvöruverslun Jólageitin risin Sjö þúsund krónur séu ekki nóg Landsbyggðin „brjáluð“ vegna málsins Leggjast gegn sameiningu lögregluembætta „Ég er bara svolítið sár“ „Landsbyggðin brjáluð“ og draugar í Laugardal Vilja hækka samræðisaldur Telja brýnt að endurskoða fækkun lögregluembætta Óljóst hvers vegna þeir hittust í „völundarhúsi“ bílastæðahússins „Góður rjúpnatúr snýst ekkert um veiða sem flestar rjúpur“ Sigmar snýr aftur Umferðarslys á Breiðholtsbrautinni Mátti reka mann sem hótaði að slíta af honum höfuðið Klukkuturninn snýr aftur á Hlemm Sjá meira