Alltaf jafnt hjá Stjörnunni og KR á teppinu | Stjarnan aldrei lagt KR Kolbeinn Tumi Daðason skrifar 21. júlí 2012 14:00 Kjartan Henry hefur verið iðinn við kolann í Garðabænum síðustu tvö ár. Hann er hins vegar frá vegna meiðsla. Mynd/Daníel
Stjarnan og KR mætast í toppslag 12. umferðar Pepsi-deildar karla á Samsung-vellinum í Garðabæ í dag. Öllum þremur viðureignum liðanna á teppinu í deildinni hefur lokið með jafntefli. Þá hefur Stjarnan aldrei lagt KR að velli í efstu deild.2009 Stjarnan 1-1 KR Stjarnan kom upp úr 1. deildinni sumarið 2008 og lék á meðal þeirra bestu 2009. Þá skildu liðin jöfn 1-1 í Garðabænum. Tryggvi Bjarnason jafnaði í viðbótartíma fyrir Stjörnuna gegn sínum gömlu félögum. Björólfur Takefusa skoraði mark KR úr vítaspyrnu í fyrri hálfleik.2010 Stjarnan 2-2 KR Baldvin Sturluson kom heimamönnum yfir snemma leiks en Kjartan Henry Finnbogason svaraði með tveimur mörkum í hvorum hálfleik. Ólafur Karl Finsen jafnaði metin fyrir Garðbæinga skömmu fyrir leikslok.2011 Stjarnan 1-1 KR Tryggvi Sveinn Bjarnason var aftur í sviðsljósinu í fyrra þegar hann var rekinn af velli snemma í síðari hálfleiknum fyrir kjánalega tæklingu. Þá leiddu Stjörnumenn 1-0 með marki Jesper Holdt Jensen og höfðu verið mun betri aðilinn. KR-ingar nýttu sér liðsmuninn og Kjartan Henry jafnaði um miðjan hálfleikinn með skallamarki. Fróðlegt verður að sjá hvort og þá hversu mikinn þátt Englendingarnir Mark Doninger og Gary Martin leika með nýjum liðum sínum í dag. Doninger samdi við Stjörnuna út tímabilið en Martin skrifaði undir þriggja og hálfs árs samning við KR. Þá verður spennandi að sjá hvernig KR-ingar bregðast við 7-0 tapinu gegn HJK Helsinki í 2. umferð forkeppni Evrópudeildarinnar á þriðjudaginn. Sá leikur fór einmitt fram á gervigrasi. Leikur Stjörnunnar og KR hefst klukkan 16. Hann er í beinni útsendingu á Stöð 2 Sport og einnig í beinni textalýsingu hér á Vísi. Fréttin er að hluta unnin upp úr umfjöllun Óla Brynjars Halldórssonar á heimasíðu KR, sjá hér.
Pepsi Max-deild karla Mest lesið „Eyðilagður“ yfir sögulegum titli ítalska ungstirnisins Formúla 1 Spike Lee vill ekki sjá sína menn með Trump Körfubolti Óhuganlegt atvik á Tenerife: Líðan mannsins alvarleg en stöðug Fótbolti Ronaldo var skilinn eftir heima Fótbolti Uppgjörið: Valur – Keflavík 87-70 | Valsarar halda áfram á sigurbraut Körfubolti „Ég er með fullkomnunaráráttu“ Sport Hjörvar gaf Ljungberg búning íslenska handboltalandsliðsins Enski boltinn Sara Rún öflug í sigri KR Körfubolti Stjarnan skein skært gegn nýliðunum Körfubolti Annar sigur Everton á Newcastle á innan við viku Enski boltinn Fleiri fréttir Fer frá Stjörnunni í FH Gummi Ben væri svo til í að spila með KR í dag Halldór tekinn til starfa með nýja teyminu Hansen með freistandi tilboð frá Akureyri Marc McAusland tekur við Njarðvík Pálmi Rafn tekur hanskana af hillunni og semur við Njarðvík Klefinn þagnaði: „Eiginlega bara mjög óþægilegt“ Njarðvík sagði upp samningi við Smit Sveinbjörn Másson sæmdur silfurmerki KSÍ Gylfi tekur við Víkingi Emil skrifar undir hjá Fram Grótta í sambandi við Davíð Smára „Magnús er þjálfari Aftureldingar og verður það áfram“ Emil Atlason á leið í Fram Israel frá Fram „Á stuttum tíma eru mínir nánustu vinir farnir“ Víkingar láta Einar Guðna fara Hallgrímur kveður KA Heimir ráðinn til ÍA og kostaði nokkrar milljónir Var klár í samkeppnina við Ingvar Flauta Péturs á hilluna Engin uppalin spilaði með Fram „Ég hef sjaldan, ef nokkurn tímann, kynnst öðru eins félagi og Víkingi“ Heimir farinn frá Fylki Einn dyggasti sonur ÍBV semur við Val „Á meðan liðið er að vinna skiptir ekki máli hvort að ég skori eða einhver annar“ Ásgeir Páll kveður Keflavík og Ísland Arnar spenntur og „no komment“ frá Magnúsi „Neyði menn ekki til að vera hérna“ Aron Þórður hættur Sjá meira