Rúnar: Eins og menn hafi tapað trúnni | Mistök að breyta bikarkeppninni Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 24. september 2012 11:38
Rúnar Kristinsson, þjálfari KR, var í ítarlegu viðtali hjá Hirti Hjartarsyni í Boltanum á X-inu í dag. Þar segir hann að það hafi verið mistök að færa úrslitaleik bikarkeppninnar fram í ágústmánuð. KR-ingar hafa gefið mikið eftir á lokaspretti Pepsi-deildar karla en liðið tapaði í gær fyrir Fylki, 3-2. „Það væri gott að vera með reið svör á höndum fyrir mig sem þjálfara. Það er erfitt að svara þessu," sagði Rúnar. „Það er ljóst að við höfum ekki staðið okkur vel að undanförnu. Þetta byrjaði eftir þennan leik gegn FH sem allir töluðu um. Okkur gekk vel í þeim leik en eftir hann voru sex umferðir eftir og staðan ágæt - þó svo að FH ætti leik til góða." „Þá var ljóst að við þurftum að vinna næsta leik en hann var gegn Fram. Það gekk ekki eftir og FH vann leikinn sem liðið átti inni. Þá var eins og að mínir menn hefðu tapað trúnni. Við áttum svo slakan leik gegn Selfossi og þá datt allur botn úr þessu, því miður." Rúnar segir að sínum mönnum hafi gengið vel í upphafi móts, þó svo að liðið hafi ekki endilega verið að spila vel. „Við vorum að bíða eftir því að þetta myndi hrökkva í gang hjá okkur. Við áttum mjög góðan leik gegn ÍA í upphafi seinni umferðarinnar og þá hélt ég að við værum komnir í gang. En það reyndist ekki raunin." KR varð bikarmeistari og Rúnar minnir á að liðið hafi einnig orðið deildabikarmeistari og meistari meistaranna. „En eftir þetta skipsbrot gegn Fram hefur leiðin legið niður á við. Andlega hliðin hefur ekki verið nægilega sterk og sjálfstraustið ekki til staðar." KR stóð í ströngu í sumar enda fór liðið alla leið í bikarúrslitin og tók þátt í Evrópukeppni. Rúnar segir að það hafi verið mistök að færa bikarúrslitaleikinn fram í ágúst eins og var gert fyrir fáeinum árum síðan. „Ég var sammála breytingunni á sínum tíma en hef nú skipt um skoðun. Leikjaálagið fyrir lið sem eru bæði í bikarnum og Evrópukeppninni á sama tíma verður allt of mikið og íslensk lið eiga einfaldlega ekki leikmannahópa til að takast á við allt þetta." „Það er vissulega skemmtilegra að hafa bikarúrslitaleikinn í ágúst [en í lok september] en engu að síður tel ég að þetta hafi verið rangt." Viðtalið má heyra í heild sinni hér fyrir ofan. Það hefst þegar um fimm mínútur eru liðnar af upptökunni.
Pepsi Max-deild karla Mest lesið Óhuganlegt atvik á Tenerife: Líðan mannsins alvarleg en stöðug Fótbolti Ronaldo var skilinn eftir heima Fótbolti Segir að Cristiano Ronaldo hafi verið búinn árið 2021 Enski boltinn Eiður fær enn hlýjar þakkir á Anfield Enski boltinn Fremsta afreksfólk Íslands fær 600 þúsund í verktakalaun Sport Hjörvar gaf Ljungberg búning íslenska handboltalandsliðsins Enski boltinn Gísli kom af fjöllum þegar talið barst að Ljungberg Sport Fjórtán ára drengur gaf sig fram við lögreglu Sport Þjálfari Hákonar grét eftir leik Fótbolti Lést aðeins tveimur árum eftir að hún varð Evrópumeistari Sport Fleiri fréttir Fer frá Stjörnunni í FH Gummi Ben væri svo til í að spila með KR í dag Halldór tekinn til starfa með nýja teyminu Hansen með freistandi tilboð frá Akureyri Marc McAusland tekur við Njarðvík Pálmi Rafn tekur hanskana af hillunni og semur við Njarðvík Klefinn þagnaði: „Eiginlega bara mjög óþægilegt“ Njarðvík sagði upp samningi við Smit Sveinbjörn Másson sæmdur silfurmerki KSÍ Gylfi tekur við Víkingi Emil skrifar undir hjá Fram Grótta í sambandi við Davíð Smára „Magnús er þjálfari Aftureldingar og verður það áfram“ Emil Atlason á leið í Fram Israel frá Fram „Á stuttum tíma eru mínir nánustu vinir farnir“ Víkingar láta Einar Guðna fara Hallgrímur kveður KA Heimir ráðinn til ÍA og kostaði nokkrar milljónir Var klár í samkeppnina við Ingvar Flauta Péturs á hilluna Engin uppalin spilaði með Fram „Ég hef sjaldan, ef nokkurn tímann, kynnst öðru eins félagi og Víkingi“ Heimir farinn frá Fylki Einn dyggasti sonur ÍBV semur við Val „Á meðan liðið er að vinna skiptir ekki máli hvort að ég skori eða einhver annar“ Ásgeir Páll kveður Keflavík og Ísland Arnar spenntur og „no komment“ frá Magnúsi „Neyði menn ekki til að vera hérna“ Aron Þórður hættur Sjá meira