Gary Martin: Þurfti ekki að hugsa mig tvisvar um 17. júlí 2012 13:45 Gary Martin. Guðmundur Bjarki Halldórsson
Allt stefnir í að Gary Martin, enski framherji úrvalsdeildarliðs ÍA verði orðinn leikmaður KR áður en langt um líður. Forráðamenn KR hafa lagt fram formlegt tilboð í leikmanninn sem Skagamenn fara nú yfir. Líklegt þykir að samkomulag um kaupin náist, hugsanlega strax á morgun. Sjálfur talar leikmaðurinn eins og hann sé á förum frá Akranesi. "Það er erfitt að kveðja ÍA. Ég hef átt góðan tíma með félaginu, stuðningsmenn liðsins hafa verið frábærir en svona er fótboltinn. Menn fara á milli liða, þannig er það bara", sagði Gary Martin í viðtali við Hjört Hjartarson í Boltanum á X-inu í morgun. Gary hefur ekki farið leynt með að honum líði illa á Akranesi. Þar leiðist honum skelfilega enda sé þar lítið um að vera. "Félagið hefur reynst mér vel, það er lífið utan vallar sem hefur ekki gengið sem skyldi. Ég er búinn að vera á Íslandi síðan í janúar, samfleytt. Ég fer í ræktina klukkan 10 á morgnana, síðan á sama kaffihúsið 4-5 sinnum og svo á æfingu hálfsex. Þetta er sama rútínan dag eftir dag, viku eftir viku. "Gary fékk fyrst að vita af áhuga KR á sunnudaginn. Hann segir það hafa verið auðvelda ákvörðun að hefja samningaviðræður við Íslandsmeistarana. "Doddi [Þórður Guðjónsson, framkvæmdarstjóri ÍA] sagði mér að KR hefði lagt fram kauptilboð í mig og spurði mig um leið hvort ég hefði áhuga á að ganga í þeirra raðir. Ég sagði umsvifalaust já, ég þurfit ekki einu sinni að hugsa mig um. Að mínu mati er KR með besta lið landsins og þar vil ég spila." Gary Martin hefur ekki rætt við forráðamenn KR, fyrst þurfa félögin að komast að samkomulagi um kaupverð. Gary kom til ÍA á miðju tímabili, 2010. Hann lék 9 leiki með liðinu í 1.deildinni það ár og skoraði 10 mörk. Hann átti stóran þátt í að ÍA tryggði sér sigur í 1.deildinni en þá skoraði hann 9 mörk í 16 leikjum auk þess að leggja upp fjölmörg mörk fyrir félaga sína. Gary hefur ekki verið eins iðinn við kolann í sumar en hann er búinn að skora þrjú mörk í fyrstu 11 leikjum tímabilsins.
Pepsi Max-deild karla Mest lesið Spænski knattspyrnumaðurinn er látinn Fótbolti „Eyðilagður“ yfir sögulegum titli ítalska ungstirnisins Formúla 1 Handtóku fjórtán ára strák eftir uppátæki hans á fótboltaleik Sport Bellingham fáklæddur í nýrri auglýsingaherferð Calvin Klein Fótbolti Óhugnanlegt atvik á Tenerife: Líðan mannsins alvarleg en stöðug Fótbolti Alvarlegar fréttir af Jesus de Miguel Fótbolti LeBron James fékk sér sopa af vínglasi áhorfanda í miðjum leik Körfubolti Finnar neita að spila við Rússland á HM Sport Spurðu stuðningsmenn Man. United hvaða leikmenn eigi skilið að vera áfram Enski boltinn Hafrún heiðraði mömmu sína og frænku Fótbolti Fleiri fréttir Fer frá Stjörnunni í FH Gummi Ben væri svo til í að spila með KR í dag Halldór tekinn til starfa með nýja teyminu Hansen með freistandi tilboð frá Akureyri Marc McAusland tekur við Njarðvík Pálmi Rafn tekur hanskana af hillunni og semur við Njarðvík Klefinn þagnaði: „Eiginlega bara mjög óþægilegt“ Njarðvík sagði upp samningi við Smit Sveinbjörn Másson sæmdur silfurmerki KSÍ Gylfi tekur við Víkingi Emil skrifar undir hjá Fram Grótta í sambandi við Davíð Smára „Magnús er þjálfari Aftureldingar og verður það áfram“ Emil Atlason á leið í Fram Israel frá Fram „Á stuttum tíma eru mínir nánustu vinir farnir“ Víkingar láta Einar Guðna fara Hallgrímur kveður KA Heimir ráðinn til ÍA og kostaði nokkrar milljónir Var klár í samkeppnina við Ingvar Flauta Péturs á hilluna Engin uppalin spilaði með Fram „Ég hef sjaldan, ef nokkurn tímann, kynnst öðru eins félagi og Víkingi“ Heimir farinn frá Fylki Einn dyggasti sonur ÍBV semur við Val „Á meðan liðið er að vinna skiptir ekki máli hvort að ég skori eða einhver annar“ Ásgeir Páll kveður Keflavík og Ísland Arnar spenntur og „no komment“ frá Magnúsi „Neyði menn ekki til að vera hérna“ Aron Þórður hættur Sjá meira