Guðmundur: Andinn í höllinni stórkostlegur Eiríkur Stefán Ásgeirsson í London skrifar 29. júlí 2012 11:26 Guðmundur Guðmundsson í leiknum í dag. Mynd/Valli
Landsliðsþjálfaranum Guðmundi Guðmundssyni var greinilega létt eftir sex marka sigur Íslands á Argentínu á Ólympíuleikunum í Lundúnum nú í morgun. „Fyrsti leikurinn á mótum er alltaf erfiður og þetta er ekkert venjulegt mót - þetta eru Ólympíuleikar," sagði Guðmundur. „En þetta var fínt í dag. Við náðum að rúlla liðinu tiltölulega vel og þeir Snorri og Hreiðar áttu mjög góða innkomu í síðari hálfleik." „Snorri hafði góð áhrif á sóknina. Þeir voru farnir að koma framarlega á okkur og þegar við byrjuðum að leysa inn á línuna og spila 4-2 þá gekk sóknin vel." „Markverðirnir stóðu sig vel. Hreiðar var með frábæra innkomu í síðari hálfleik og flottur leikur hjá honum. Svo voru hraðaupphlaupin mjög góð." „Við þurfum samt að laga það sem var ekki eins gott. Varnarleikurinn var mjög kaflaskiptur - náði sér stundum mjög vel á strik en datt svo niður á milli." „Argentínumenn eru erfiðir. Þeir eru klókir og spila langar sóknir sem var erfitt að eiga við. Ég sagði við strákanna að við þyrftum að halda svakalegri einbeitingu til að láta þá ekki svæfa okkur." Stuðningurinn sem íslenska liðið fékk í dag var frábær enda fjölmargir áhorfendur sem sóttu leikinn, þar af margir Bretar sem höfðu líklega aldrei séð handbolta áður. Þeir voru greinilega heillaðir af íþróttinni því þeir létu vel í sér heyra. „Stuðningurinn sem við fengum var stórkostlegur og andinn í höllinni var sérstaklega góður - alveg meiriháttar. Bretar eru heillaðir af þessu sporti og það er smá handboltavakning í landinu og mér skilst á mönnum í breska handboltasambandinu að þeir eru mjög ánægðir þessa dagana."Guðmundur: Andinn í höllinni stórkostlegurLandsliðsþjálfaranum Guðmundi Guðmundssyni var greinilega létt eftir sex marka sigur Íslands á Argentínu á Ólympíuleikunum í Lundúnum nú í morgun. „Fyrsti leikurinn á mótum er alltaf erfiður og þetta er ekkert venjulegt mót - þetta eru Ólympíuleikar," sagði Guðmundur. „En þetta var fínt í dag. Við náðum að rúlla liðinu tiltölulega vel og þeir Snorri og Hreiðar áttu mjög góða innkomu í síðari hálfleik." „Snorri hafði góð áhrif á sóknina. Þeir voru farnir að koma framarlega á okkur og þegar við byrjuðum að leysa inn á línuna og spila 4-2 þá gekk sóknin vel." „Markverðirnir stóðu sig vel. Hreiðar var með frábæra innkomu í síðari hálfleik og flottur leikur hjá honum. Svo voru hraðaupphlaupin mjög góð." „Við þurfum samt að laga það sem var ekki eins gott. Varnarleikurinn var mjög kaflaskiptur - náði sér stundum mjög vel á strik en datt svo niður á milli." „Argentínumenn eru erfiðir. Þeir eru klókir og spila langar sóknir sem var erfitt að eiga við. Ég sagði við strákanna að við þyrftum að halda svakalegri einbeitingu til að láta þá ekki svæfa okkur." Stuðningurinn sem íslenska liðið fékk í dag var frábær enda fjölmargir áhorfendur sem sóttu leikinn, þar af margir Bretar sem höfðu líklega aldrei séð handbolta áður. Þeir voru greinilega heillaðir af íþróttinni því þeir létu vel í sér heyra. „Stuðningurinn sem við fengum var stórkostlegur og andinn í höllinni var sérstaklega góður - alveg meiriháttar. Bretar eru heillaðir af þessu sporti og það er smá handboltavakning í landinu og mér skilst á mönnum í breska handboltasambandinu að þeir eru mjög ánægðir þessa dagana."
Mest lesið Féll úr skíðalyftu og lést Fótbolti Goðsögn fallin frá Enski boltinn Býst ekki við að spila aftur fyrir landsliðið Íslenski boltinn Hótað brottrekstri ef hann færi ekki á börurnar Fótbolti Var frústreraður vegna landsliðsins Fótbolti Zidane sá soninn spila á Afríkumótinu Fótbolti Kynntu Sigurð á slaginu sex á aðfangadag Íslenski boltinn Síðasti dansinn hjá Kelce? Sport Dreymir enn um Evrópu: „Ekki tilbúin að borga það sama“ Sport Kærður af knattspyrnusambandinu Enski boltinn Fleiri fréttir Ekkert spilað í vetur en gæti mætt Íslandi í fyrsta leik á EM Arnar Daði rekinn frá Stjörnunni en áfram þjálfari kvennaliðsins Öll höllin æpti nafn Gísla í spennutrylli Sakaður um niðurlægingu: „Við viljum ekki hafa hann sem þjálfara“ Haukur getur náð hundrað plús hundrað fyrir EM-fríið Rúnar sótti sinn fyrsta sigur sem þjálfari Wetzlar Haukur með sjö mörk og Magdeburg rétt marði botnliðið Rúmlega áttræður Moustafa endurkjörinn forseti IHF með yfirburðum Slæm fjárhagsstaða HSÍ kemur ekki niður á EM Donni fagnaði EM vali með skotsýningu Sigvaldi Björn fjarri góðu gamni í sjaldséðu tapi Kolstad Eva Björk með stórleik í fyrsta sigri Stjörnunnar „Hann er ein stærsta ástæðan fyrir því“ KA-menn fengu góða jólagjöf Flautumark hjá FH og ÍR með þeim í Höllina KA í undanúrslit á kostnað bikarmeistaranna Stærsti leikur ársins í Eyjum fer fram í kvöld „Er því miður kominn í jólafrí“ „Þetta var mjög skrítinn leikur“ Haukakonur í fjórða sætið KA/Þór - Valur 23-30 | Ótrúlegur viðsnúningur gestanna Ómar óstöðvandi og Magdeburg í undanúrslit Ómar Ingi fær meiri ábyrgð og tekur við kyndlinum af Aroni Ekkert stríð við Porto og einstakur Þorsteinn nítjándi maður Síðasta verkefni reyndist dýrt fyrir Sigvalda Teitur fer á EM sem hornamaður í stað Sigvalda Snorri kynnti EM-strákana okkar Hleyptu Þorsteini ekki heim og vilja ekki að hann fari á EM Kári og Logi vilja henda Ými út úr landsliðinu Sagður utan hóps fyrir Bjarka og Orra Sjá meira