Íslenski boltinn

Sex marka jafnteflsleikur í Árbænum - myndir

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Mynd/Ernir
Fylkir og Stjarnan gerðu 3-3 jafntefli á Fylkisvelli í Árbæ í kvöld þegar liðin mættust í 13. umferð Pepsi-deildar karla. Stjörnumenn komust þrisvar yfir í leiknum en Fylkismenn jöfnuðu í öll skiptin. Ingimundur Níels Óskarsson tryggði Fylki að lokum stig með jöfnunarmarki átta mínútum fyrir leikslok.

Stjörnumenn áttu möguleika á að komast upp að hlið KR-inga á toppnum en öll þessi jafntefli eru farin að verða liðin dýrkeypt í toppbaráttu deildarinnar.

Ernir Eyjólfsson, ljósmyndari Fréttablaðsins og Vísis, var á leik Fylkis og Stjörnunnar í kvöld og náði þessum skemmtilegu myndum. Myndirnar má sjá í albúminu hér að neðan. Hægt er að sjá myndirnar stærri með því að smella á þær.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×