Sveigjanleg skólaskil Sölvi Sveinsson skrifar 6. október 2012 06:00 Skólaskýrsla 2012 er nýkomin út, ýtarlegasta ritið sem hér kemur út árlega um skólamál, og Samband íslenskra sveitarfélaga á hrós skilið fyrir framtakið. Ég staldraði við tölur um leikskóla í ljósi frétta um að sáralítil aðsókn væri í nám fyrir leikskólakennara. Tölurnar eru býsna sláandi. 95% fimm ára barna eru í leikskóla og yngri börnum fjölgar hratt. Jafnframt hefur dvalartími barna lengst. Í leikskólum sveitarfélaga eru 59% barna 7-8 tíma á dag, en 31% níu tíma eða lengur; það er langur vinnudagur. Í sjálfstætt reknum leikskólum eru 67% barna 7-8 tíma á dag, en 26% níu tíma eða lengur. Hálfsdagsbörnum hefur fækkað niður í 1%. Það er dagljóst að leikskólakennarar eru allt of fáir, og ég óttast að fimm ára nám með tilheyrandi kostnaði rími ekki vel við ýmis starfskjör sem boðið er upp á, t.d. laun. Jafnframt fjölgar þeim grunnskólum sem bjóða upp á nám fyrir fimm ára börn þannig að skilin milli leik- og grunnskóla verða að vera sveigjanleg. Grunnskólalög eru afdráttarlaus hvað varðar lengd grunnskólans, hann er tíu ár. Á hvaða skólastigi eru þá fimm ára börn sem fylgja skilgreindri námskrá grunnskóla? Illu heilli urðu skil milli grunn- og framhaldsskóla skarpari þegar fjarnám var afnumið í sparnaðarskyni, en margir nemendur 10. bekkjar nýttu sér það. Ég held að það sé tímabært að skoða þetta allt í samhengi. Það hlýtur að vera nemendum til hagsbóta að hafa skil skólastiganna fljótandi, ef ég má orða það svo, með því móti einu fá einstaklingar hæfilega ögrandi nám, sem hvetur þá til frekari fróðleiksleitar og skilnings. 95% nemenda eru í skóla frá fimm ára aldri upp í 18 ár, flestir lengur. Þetta eiga menn að hafa í huga. Hvert skólastig er alls ekki sér á báti, heldur hluti af heild – sem því miður er ekki heild! Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Mest lesið Hver á arfinn? Gunnar Ármannsson Skoðun Í hvaða vitleysu erum við stödd? Ragnheiður Stephensen Skoðun Skuggamansal á Íslandi Sævar Þór Jónsson Skoðun Landsleikar RÚV! Sigurlín Margrét Sigurðardóttir Skoðun Grateful Dead á Sæbrautinni Júlíus Valsson Skoðun Skattlagning til velsældar Hannes Lúðvíksson Skoðun Noregur styrkir EES – Ísland verður að fylgja Rögnvaldur Guðmundsson Skoðun Við erum ekki jafn ömurleg og við höldum Þorsteinn Tjörvi Sigurðsson Skoðun Baráttan er ekki búin Mordekaí Elí Esrason Skoðun Hvar eru þingmenn NV-kjördæmis? Sigurður Páll Jónsson Skoðun Skoðun Skoðun Opið bréf til Húnboga Þórs Árnasonar Margrét Rut Eddudóttir skrifar Skoðun Hvar eru þingmenn NV-kjördæmis? Sigurður Páll Jónsson skrifar Skoðun Noregur styrkir EES – Ísland verður að fylgja Rögnvaldur Guðmundsson skrifar Skoðun Landsleikar RÚV! Sigurlín Margrét Sigurðardóttir skrifar Skoðun Við erum ekki jafn ömurleg og við höldum Þorsteinn Tjörvi Sigurðsson skrifar Skoðun Bjórinn sem slapp við suðurferðina Elís Pétur Elísson skrifar Skoðun Í hvaða vitleysu erum við stödd? Ragnheiður Stephensen skrifar Skoðun Skattlagning til velsældar Hannes Lúðvíksson skrifar Skoðun Baráttan er ekki búin Mordekaí Elí Esrason skrifar Skoðun Hver á arfinn? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Að tala um dauðann er að tala um lífið Ingrid Kuhlman skrifar Skoðun Til hamingju Reykjanesbær með leikskólana okkar Guðný Birna Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Skuggamansal á Íslandi Sævar Þór Jónsson skrifar Skoðun Grateful Dead á Sæbrautinni Júlíus Valsson skrifar Skoðun Þjóðarsjúkrahúsið seinkar Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Er gervigreindin spegill mannkyns Kristján Logason skrifar Skoðun Er Þórarinn Tyrfings nýja framtíð Vogs? Bergþóra Haralds Eiðsdóttir skrifar Skoðun Tólf ára ákvað ég að gera bíó Arnar Benjamín Kristjánsson skrifar Skoðun Hvað segja gögnin í raun um ásakanir á hendur séra Friðriki Theódór S. Halldórsson skrifar Skoðun Það er sárt að tapa kosningum Heimir Már Pétursson skrifar Skoðun Er enn þess virði að leggja á sig langt háskólanám? Gunnar Alexander Ólafsson skrifar Skoðun Engin fjölskylda á að þurfa að standa ein Eydís Ásbjörnsdóttir skrifar Skoðun Þegar reglurnar gilda ekki jafnt Ágúst Karlsson skrifar Skoðun Utanríkisstefna án ábyrgðar? Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar Skoðun PISA-skellur en hvað svo? Inga Sæland skrifar Skoðun Hver verndar velferð barna þegar náttúran blandar kynjunum? Jón Þór Ólafsson skrifar Skoðun Einhliða bergmálshellir og heimildir sem hrynja Lilja Benatov Hjartar skrifar Skoðun KEMUR TÓLFAN? Hilmar Jökull Stefánsson skrifar Skoðun Ábyrgðinni má ekki útvista til tækninnar Karen Ósk Nielsen Björnsdóttir skrifar Sjá meira
Skólaskýrsla 2012 er nýkomin út, ýtarlegasta ritið sem hér kemur út árlega um skólamál, og Samband íslenskra sveitarfélaga á hrós skilið fyrir framtakið. Ég staldraði við tölur um leikskóla í ljósi frétta um að sáralítil aðsókn væri í nám fyrir leikskólakennara. Tölurnar eru býsna sláandi. 95% fimm ára barna eru í leikskóla og yngri börnum fjölgar hratt. Jafnframt hefur dvalartími barna lengst. Í leikskólum sveitarfélaga eru 59% barna 7-8 tíma á dag, en 31% níu tíma eða lengur; það er langur vinnudagur. Í sjálfstætt reknum leikskólum eru 67% barna 7-8 tíma á dag, en 26% níu tíma eða lengur. Hálfsdagsbörnum hefur fækkað niður í 1%. Það er dagljóst að leikskólakennarar eru allt of fáir, og ég óttast að fimm ára nám með tilheyrandi kostnaði rími ekki vel við ýmis starfskjör sem boðið er upp á, t.d. laun. Jafnframt fjölgar þeim grunnskólum sem bjóða upp á nám fyrir fimm ára börn þannig að skilin milli leik- og grunnskóla verða að vera sveigjanleg. Grunnskólalög eru afdráttarlaus hvað varðar lengd grunnskólans, hann er tíu ár. Á hvaða skólastigi eru þá fimm ára börn sem fylgja skilgreindri námskrá grunnskóla? Illu heilli urðu skil milli grunn- og framhaldsskóla skarpari þegar fjarnám var afnumið í sparnaðarskyni, en margir nemendur 10. bekkjar nýttu sér það. Ég held að það sé tímabært að skoða þetta allt í samhengi. Það hlýtur að vera nemendum til hagsbóta að hafa skil skólastiganna fljótandi, ef ég má orða það svo, með því móti einu fá einstaklingar hæfilega ögrandi nám, sem hvetur þá til frekari fróðleiksleitar og skilnings. 95% nemenda eru í skóla frá fimm ára aldri upp í 18 ár, flestir lengur. Þetta eiga menn að hafa í huga. Hvert skólastig er alls ekki sér á báti, heldur hluti af heild – sem því miður er ekki heild!
Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar