Sexfalt fleiri skjálftar í Kötlu en venjulega Kristján Már Unnarsson skrifar 18. júlí 2012 18:45
Haraldur Sigurðsson eldfjallafræðingur segir að eitthvað mjög óvenjulegt sé að gerast í Kötlu. Fjöldi smáskjálfta á þessu ári nálgist sexhundruð en venjulega mælist langt innan við eitthundrað skjálftar á sama tíma. Hegðun Kötlu var raunar allt annað en venjuleg í fyrrasumar þegar hún skyndilega sendi frá sér svo magnað hlaup að brúna yfir Múlakvísl tók af. Ofan á Mýrdalsjökli sáust þá miklir sigkatlar. En hræringarnar halda áfram og segir enn fremsti eldfjallasérfræðingur þjóðarinnar að fjöldi smáskjálfta á þessu ári sé nú margfalt meiri þarna en venjulega. Haraldur segir að það sem af er þessu ári nálgist skjálftarnir á Kötlusvæðinu að vera sexhundruð en í venjulegum árum á þessu svæði séu þeir langt innan við hundrað á sama árstíma. Hann segir Mýrdalsjökul þekktan fyrir árstíðabundna ísskjálfta. Hann telur ekki ljóst hvort þetta séu viðbrögð jökulsins við mikilli bráðnun vegna hlýinda, sem valdi miklu meiri tíðni ísskjálfta, eða hvort þetta sé vegna aukins jarðhita undir jöklinum, sem orsaki einnig ísskjálfta, eða hvort þetta eigi upptök í jarðskorpunni í sjálfu eldfjallinu. Haraldur telur hugsanlegt að kvika hafi nálgast yfirborð, kvikuinnskot gæti skýrt aukinn jarðhita, og segir ekki hægt að útiloka að eldstöðin sé að búa sig undir gos. „Ég myndi alls ekki útiloka það. Við verðum bara að líta á allar hliðar málains. Það er ekkert eitt svar hérna. Það er greinilegt að það er mjög óvenjulegt ástand þarna. Það er síðan stórt spurningamerki hvort það er tengt hegðun jökulsins og bráðnun eða jarðhita eða hvort það sé tengt einhverjum fyrirbærum sem eru að gerast niðrí skorpunni og eldfjallinu sjálfu," segir Haraldur.
Mest lesið Nemendur vilji ekki vera í skólanum á meðan rektor er við stjórnvölinn Innlent „Það er ekkert hæft í þessu“ Innlent Segist ekki hafa gert mistök við birtingu myndbandsins Erlent Efaðist ekki um að orsökin var bilaður aðflugsgeisli Innlent „Sorglegra en orð fá lýst“ Innlent Kveðst vera í mjög krefjandi stöðu og þurfi tíma til að ná áttum Erlent „Ástandið hefur aldrei verið jafn slæmt“ Innlent Flutningabílar fastir á Þröskuldum Innlent Valgarð Már er látinn Innlent Hlédís Maren fram fyrir Miðflokkinn Innlent Fleiri fréttir Mótorhjól eru bönnuð í Grænlandi Vantrauststillagan stendur þrátt fyrir niðurstöðu siðanefndar Hlédís Maren fram fyrir Miðflokkinn Nemendur vilji ekki vera í skólanum á meðan rektor er við stjórnvölinn Spyr hvort troða eigi gömlu fólki inn á heimili landsmanna Þrír gerðir að heiðursfélögum Sleipnis á Selfossi Viðreisn býður fram undir eigin merkjum á Ísafirði „Það er ekkert hæft í þessu“ Flutningabílar fastir á Þröskuldum Mætti með eggvopn á skemmtistað Efaðist ekki um að orsökin var bilaður aðflugsgeisli Skriður kominn á tuttugu ára gömul áform um nýjan golfvöll á Álftanesi „Ástandið hefur aldrei verið jafn slæmt“ Fósturforeldrar og barnavernd upplifað algjört afskiptaleysi „Sorglegra en orð fá lýst“ „Mikilvægt að geyma þetta ekki inni í sér“ Banaslys á Miklubraut og brotið leikskólakerfi LHÍ ríður á vaðið: Erlendir nemendur greiða milljónir vegna fyrirhugaðrar lagabreytingar Valgarð Már er látinn Starfsmenn Bifrastar hreinsaðir af öllum sökum Yfir áttatíu milljónir í starfslokasamninga og þar af þrettán vegna starfsloka Páls Jóhann Páll fagnar því að ummæli hans séu rifjuð upp Tyrkir vilja sendiráð á Íslandi Fótbrot, kúlur á höfði og bíll á vegriði Sautján ára piltur lést í bílslysi á Miklubraut Opna dyr sínar vegna slyssins á Miklubraut Bakkakot rannsakað og mönnunum boðin áfallaaðstoð „Eftirlit sveitarfélaga með fósturbörnum er brotið“ Níu Íslendingar um borð í flugvél sem hafnaði úti á grasi Rannsókn áfram í fullum gangi þrátt fyrir úrskurðina Sjá meira