Jón eða séra Jón Hulda Bjarnadóttir skrifar 5. desember 2012 06:00 Fyrir skömmu var lagt fram frumvarp sem miðar að því að banna alfarið íslenskar áfengisauglýsingar. Tilgangurinn er að vernda heilsu landans. Hversu sanngjarnt er það fyrir hinn íslenska framleiðanda að mega setja pening í löglega íslenska framleiðslu, sem framleidd er undir íslenskri löggjöf og virku íslensku eftirliti, en að mega ekki koma henni á framfæri? Tvískinnungur gæti mögulega verið heiti á þeirri stöðu sem er komin upp. Ef heilsa landans er höfð að leiðarljósi þarf þá ekki að banna sælgætis-, gos- og bílaauglýsingar svo eitthvað sé nefnt? Þar skapast vissulega hætta af óbeinni mengun eða jafnvel hætta á varanlegum skaða og sjúkdómum til framtíðar litið. Og hversu raunhæft er að framfylgja boðum og bönnum sem við búum við? Er forræðishyggjunni engin takmörk sett? Og hversu raunhæft er að fara fram með þessum hætti? Auglýsingar á fótboltabúningumÞær áfengisauglýsingar sem ég verð vör við eru fyrst og fremst erlendar og birtast þær á innfluttum fótboltabúningum fyrir börn, á fótboltakappleikjum sem iðulega rúlla á skjánum um helgar hjá bóndanum og þegar ég kaupi mér erlend tímarit sem eru ætluð hinum ýmsu markhópum. Þau kaupi ég hérlendis sem erlendis. Því þyrfti löggjafinn að ganga svo miklu lengra til að tryggja að neytandinn verði aldrei var við áfengisauglýsingar og til að tryggja sanngjarna nálgun. Það mætti til dæmis banna íþróttaútsendingarnar, banna innflutta neytendavöru sem er merkt áfengisvörumerki og svo mætti skella Internetinu í lás. Þá reyndar væri ríkisstjórnin búin að slá tvær flugur í einu höggi þar sem það á líka að fara að leggja fram frumvarp sem bannar erlend happdrætti á Netinu. Það þarf þó ekki nema að labba út á næsta götuhorn til að spila fjárhættuspil og ágóðinn rennur til háskólans og ýmissa samtaka hérlendis svo sem SÁÁ og Rauða krossins. Tvískinnungur enn og aftur? Eða kannski er eðlilegt að framkvæmd og forvörn sé sinnt á sitthvorum endanum. Áhrif á val vörumerkisNeytandinn mun halda áfram að velja sér þá vöru sem er sýnilegust en að öðru leyti mun hann haga sér eins samkvæmt rannsóknum, þar sem áfengisauglýsingar hvorki auka né minnka áfengisneyslu. Þær hafa áhrif á val vörumerkis hverju sinni. Hvers á þá íslenski iðnaðurinn að gjalda ef hann má ekki auglýsa en bara hinir? Ef við segjum að Jón sé hinn íslenski framleiðandi en séra Jón erlendi áfengisrisinn sem keppir á alþjóðamarkaði þá er augljóst á hvorn Jóninn mun halla í þessum efnum. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Mest lesið Grateful Dead á Sæbrautinni Júlíus Valsson Skoðun Skuggamansal á Íslandi Sævar Þór Jónsson Skoðun Hver á arfinn? Gunnar Ármannsson Skoðun Þjóðarsjúkrahúsið seinkar Sigurður Sigurðsson Skoðun Er Þórarinn Tyrfings nýja framtíð Vogs? Bergþóra Haralds Eiðsdóttir Skoðun Hvað segja gögnin í raun um ásakanir á hendur séra Friðriki Theódór S. Halldórsson Skoðun Er gervigreindin spegill mannkyns Kristján Logason Skoðun Tólf ára ákvað ég að gera bíó Arnar Benjamín Kristjánsson Skoðun Til hamingju Reykjanesbær með leikskólana okkar Guðný Birna Guðmundsdóttir Skoðun Að tala um dauðann er að tala um lífið Ingrid Kuhlman Skoðun Skoðun Skoðun Baráttan er ekki búin Mordekaí Elí Esrason skrifar Skoðun Hver á arfinn? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Að tala um dauðann er að tala um lífið Ingrid Kuhlman skrifar Skoðun Til hamingju Reykjanesbær með leikskólana okkar Guðný Birna Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Skuggamansal á Íslandi Sævar Þór Jónsson skrifar Skoðun Grateful Dead á Sæbrautinni Júlíus Valsson skrifar Skoðun Þjóðarsjúkrahúsið seinkar Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Er gervigreindin spegill mannkyns Kristján Logason skrifar Skoðun Er Þórarinn Tyrfings nýja framtíð Vogs? Bergþóra Haralds Eiðsdóttir skrifar Skoðun Tólf ára ákvað ég að gera bíó Arnar Benjamín Kristjánsson skrifar Skoðun Hvað segja gögnin í raun um ásakanir á hendur séra Friðriki Theódór S. Halldórsson skrifar Skoðun Það er sárt að tapa kosningum Heimir Már Pétursson skrifar Skoðun Er enn þess virði að leggja á sig langt háskólanám? Gunnar Alexander Ólafsson skrifar Skoðun Engin fjölskylda á að þurfa að standa ein Eydís Ásbjörnsdóttir skrifar Skoðun Þegar reglurnar gilda ekki jafnt Ágúst Karlsson skrifar Skoðun Utanríkisstefna án ábyrgðar? Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar Skoðun PISA-skellur en hvað svo? Inga Sæland skrifar Skoðun Hver verndar velferð barna þegar náttúran blandar kynjunum? Jón Þór Ólafsson skrifar Skoðun Einhliða bergmálshellir og heimildir sem hrynja Lilja Benatov Hjartar skrifar Skoðun KEMUR TÓLFAN? Hilmar Jökull Stefánsson skrifar Skoðun Ábyrgðinni má ekki útvista til tækninnar Karen Ósk Nielsen Björnsdóttir skrifar Skoðun Gervigreindin kaupir ekki það sem hún skilur ekki Jens Gunnarsson skrifar Skoðun Fólkið á bak við öruggt flug Elísabet Heiða Valdemarsdóttir skrifar Skoðun Fjöldi opinberra starfsmanna - deilt um keisarans skegg Ingvar Freyr Ingvarsson skrifar Skoðun Stafrænt heilbrigðiskerfið byggt á skilvirkni Hilmar Ingimundarson skrifar Skoðun Hvað þarf barn í grunnskóla að kunna til að fá 10 í grunnskóla? Þorsteinn Mar Gunnlaugsson skrifar Skoðun Reykjalundur endurhæfir – Endurhæfum Reykjalund Svana Helen Björnsdóttir skrifar Skoðun Að ganga út eða ganga inn Indriði Þröstur Gunnlaugsson skrifar Skoðun Gulur september: Helst góð geðheilsa í hendur við góða stjórnun? Katrín Þrastardóttir skrifar Sjá meira
Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar
Skoðun Hvað þarf barn í grunnskóla að kunna til að fá 10 í grunnskóla? Þorsteinn Mar Gunnlaugsson skrifar
Skoðun Gulur september: Helst góð geðheilsa í hendur við góða stjórnun? Katrín Þrastardóttir skrifar