Kúabjöllur Norðmanna bannvara á EM í Serbíu Sigurður Elvar Þórólfsson skrifar 5. desember 2012 08:45 Heidi Löke, línumaður Noregs, skorar hér gegn Serbum á EM í gær. Nordic Photos / Getty Images
Evrópumeistaralið Noregs, sem Þórir Hergeirsson þjálfar, hóf titilvörnina á Evrópumeistaramóti kvenna í handbolta í Serbíu í gær með 28-26 sigri gegn gestjöfunum frá Serbíu. Norðmenn voru með fimm marka forskot í hálfleik en heimaliðið náði að jafna metin þegar átta mínútur voru eftir af leiknum. Katrine Lunde Haraldsen markvörðu norska liðsins bjargaði málunum fyrir Noreg á lokamínútum leiksins. Að venju er gríðarlega stór hópur sem fylgir norska landsliðinu á þetta mót. Kúabjöllur hafa verið helsta einkenni stuðningsmanna Noregs í gegnum tíðina en í Serbíu ríkir „kúabjöllubann" í keppnishöllunum. Gríðarlega strangt öryggiseftirlit er á keppnisstöðunum og fá áhorfendur ekki að taka með sér flögg, fána, myndavélar og kúabjöllur svo eitthvað sé nefnt. Í Serbíu er bannað að taka slíka hluti með sér á flesta íþróttaviðburði – enda er það vel þekkt að áhofendur kasti öllu lauslegu inn á keppnisvellina ef þeim mislíkar það sem fer þar fram. Kúabjöllurnar hafa verið einkenni stuðningsmanna norska handboltalandsliðsins frá því á Ólympíuleikunum í Seoul árið 1988 eða í 24 ár. Það er ekki öll von úti um að kúabjöllutónar verði hluti af EM stemningunni hjá Norðmönnum á þessu stórmóti. Samkvæmt frétt NRK verða kúabjöllurnar skoðaðar af öryggisvörðum keppninnar í dag – og að þeirri úttekt verður tekin ákvörðun hvort þær verði leyfðar í keppnishöllunum á EM.
Mest lesið Uppgjörið: KR - ÍA 5-1| Markahæstir í sögunni Íslenski boltinn Stöðvaði leikinn og skutlaði sér á eftir gæs Íslenski boltinn Stórmerkileg byrjun Freys hjá Rosenborg Fótbolti Arteta heitt í hamsi: „Þetta er óásættanlegt“ Enski boltinn Kemur fyrirliða KR til varnar: „Talar beint frá hjartanu“ Íslenski boltinn „Hver einasti maður ákveðið að við færum beint niður“ Íslenski boltinn Manchester United - Manchester City | Baráttan um Manchester-borg Enski boltinn Andri Lucas svaraði fautaskap með marki Enski boltinn Uppgjörið: FH - KA 3-0 | FH-ingar fjórum stigum frá fallsvæðinu Íslenski boltinn Þróttarar brutu bikarinn Íslenski boltinn Fleiri fréttir Íslendingarnir fóru ekki mjúkum höndum um lærisveina Rúnars „Við höfum óbilandi trú á okkur sjálfum “ Uppgjörið: HK - ÍR 18-20 | Tæpur sigur ÍR í Kópavoginum Haukar á flugi Sautján mörk Gunnars dugðu skammt Fram á toppinn og flautumark á Selfossi Haukur leiddi endurkomu Löwen Danskt stórlið búið að klófesta Elínu Klöru ÍBV samdi við bandarískan hermann „Pirraðastur er ég yfir þessum tíu lokamínútum“ Uppgjörið: Afturelding - FH 33-33 | Allt jafnt eftir háspennuleik Þórsarar komnir á blað Sextán íslensk mörk í Meistaradeildinni Kanalausir Eyjamenn unnu Suðurlandsslaginn Reynir að skáka og máta „einn efnilegasta þjálfara í heimi“ ÍBV fær bandarískan liðsauka Íslendingaliðin ekki í vandræðum í Meistaradeildinni Fullkomin skotnýting Bjarka Más í spennutrylli Meistaradeildin spiluð með nýju fyrirkomulagi Guðjón Valur með augastað á landsliðsmanni Íslands ÍBV hreppir Magnús Dag frá KA „Eru og voru ekki mínir bestu vinir“ Aron og Kúveit redda strákunum okkar eftir svik Egypta Tveir nýliðar í landsliðshópnum Hættur hjá danska landsliðinu eftir samskipti við unga leikmenn Freyr frábær í stórsigri á ÍBV Varamaður Ómars hetja Magdeburgar Skoraði fimmtán mörk Díana og Elín Rósa töpuðu í Meistaradeildinni Afturelding vann síðari hálfleikinn sem var leikinn tveimur dögum eftir þann fyrri Sjá meira