Fjögur og hálft ár síðan stelpurnar mættu Rúmeníu Óskar Ófeigur Jónsson í Vrsac skrifar 5. desember 2012 15:15 Mynd/Stefán
Íslenska kvennalandsliðið í handbolta mætir Rúmeníu í kvöld í öðrum leik sínum á Evrópumótinu í Serbíu en íslenska liðið tapaði illa fyrir sterku liði Svartfjallalands í gær. Ísland hefur ekki mætt Rúmeníu hjá A-landsliðum kvenna síðan í júní 2008 þegar þjóðirnar mættust í tveimur umspilsleikjum um sæti á EM 2008. Rúmenar unnu báða leikina örugglega, fyrst 37-23 í Laugardalshöllinni og svo 33-23 út í Rúmeníu. Rúmenska landsliðið endaði síðan í fimmta sætinu á EM 2008. Níu leikmenn í íslenska liðinu í dag spiluðu þessa leiki en það voru þær Arna Sif Pálsdóttir (seinni leikur), Karen Knútsdóttir (seinni leikur), Rakel Dögg Bragadóttir, Stella Sigurðardóttir, Dagný Skúladóttir, Anna Úrsúla Guðmundsdóttir (fyrri leikur), Rut Jónsdóttir (fyrri leikur), Hrafnhildur Ósk Skúladóttir og Hanna Guðrún Stefánsdóttir. Hanna Guðrún Stefánsdóttir var markhæst í báðum leikjum með fimm mörk en Dagný skoraði einnig fimm mörk í fyrri leiknum. Ísland vann síðast Rúmeníu á æfingamóti í Hollandi í október 2005 eða fyrir meira en sjö árum síðan. Íslenska liðið vann þann leik 27-26. Hrafnhildur Ósk Skúladóttir, Hanna Guðrún Stefánsdóttir og Anna Úrsúla Guðmundsdóttir voru allar með í þeim leik og skoruðu þær tvær síðarnefndu fjögur mörk í leiknum.
Mest lesið Uppgjörið: KR - ÍA 5-1 | Markahæstir í sögunni Íslenski boltinn Stöðvaði leikinn og skutlaði sér á eftir gæs Íslenski boltinn Stórmerkileg byrjun Freys hjá Rosenborg Fótbolti Arteta heitt í hamsi: „Þetta er óásættanlegt“ Enski boltinn Manchester-borg er blá eftir tíu manna sigur Enski boltinn Kemur fyrirliða KR til varnar: „Talar beint frá hjartanu“ Íslenski boltinn „Hver einasti maður ákveðið að við færum beint niður“ Íslenski boltinn Andri Lucas svaraði fautaskap með marki Enski boltinn Uppgjörið: FH - KA 3-0 | FH-ingar fjórum stigum frá fallsvæðinu Íslenski boltinn Þróttarar brutu bikarinn Íslenski boltinn Fleiri fréttir Íslendingarnir fóru ekki mjúkum höndum um lærisveina Rúnars „Við höfum óbilandi trú á okkur sjálfum “ Uppgjörið: HK - ÍR 18-20 | Tæpur sigur ÍR í Kópavoginum Haukar á flugi Sautján mörk Gunnars dugðu skammt Fram á toppinn og flautumark á Selfossi Haukur leiddi endurkomu Löwen Danskt stórlið búið að klófesta Elínu Klöru ÍBV samdi við bandarískan hermann „Pirraðastur er ég yfir þessum tíu lokamínútum“ Uppgjörið: Afturelding - FH 33-33 | Allt jafnt eftir háspennuleik Þórsarar komnir á blað Sextán íslensk mörk í Meistaradeildinni Kanalausir Eyjamenn unnu Suðurlandsslaginn Reynir að skáka og máta „einn efnilegasta þjálfara í heimi“ ÍBV fær bandarískan liðsauka Íslendingaliðin ekki í vandræðum í Meistaradeildinni Fullkomin skotnýting Bjarka Más í spennutrylli Meistaradeildin spiluð með nýju fyrirkomulagi Guðjón Valur með augastað á landsliðsmanni Íslands ÍBV hreppir Magnús Dag frá KA „Eru og voru ekki mínir bestu vinir“ Aron og Kúveit redda strákunum okkar eftir svik Egypta Tveir nýliðar í landsliðshópnum Hættur hjá danska landsliðinu eftir samskipti við unga leikmenn Freyr frábær í stórsigri á ÍBV Varamaður Ómars hetja Magdeburgar Skoraði fimmtán mörk Díana og Elín Rósa töpuðu í Meistaradeildinni Afturelding vann síðari hálfleikinn sem var leikinn tveimur dögum eftir þann fyrri Sjá meira