Vikið burt en hætti fyrir sjö mánuðum 20. desember 2012 06:00 Unnur gunnarsdóttir
Sigurður Jóhannesson, sem Fjármálaeftirlitið (FME) vék í vikunni úr stjórn lífeyrissjóðsins Stapa vegna þekkingar- og reynsluleysis, hætti í stjórninni fyrir sjö mánuðum. Þetta má sjá á heimasíðu Stapa og er tíundað í yfirlýsingu frá Samtökum atvinnulífsins (SA) sem birt var í gær, en Sigurður sat í stjórninni fyrir hönd samtakanna. SA gera alvarlegar athugasemdir við tilkynningu FME um málið og benda á að Sigurði hafi aðeins verið gert að víkja sem varamaður í stjórninni. Í tilkynningu sem birt var á vef FME á þriðjudag kom fram að Sigurði hefði verið vikið einhliða frá sem stjórnarmanni í Stapa hinn 6. desember síðastliðinn. Ástæða brottvikningarinnar var sögð sú að hann teldist ekki uppfylla ákveðin hæfisskilyrði og að honum hefði verið tilkynnt um það snemma í október. Þar sem hann hefði „ekki orðið við kröfu stjórnar stofnunarinnar um að láta af störfum“ hefði FME vikið honum einhliða frá. Á heimasíðu Stapa má hins vegar sjá að Sigurður vék úr stjórn Stapa á síðasta aðalfundi sjóðsins, sem haldinn var 8. maí, og nýr stjórnarmaður var settur í hans stað. Í yfirlýsingu frá SA um málið segir að „sú ákvörðun FME að víkja Sigurði úr varastjórn virðist merki um sérreglu gagnvart honum þar sem hann er eini varastjórnarmaðurinn sem vitað er um að gerð hafi verið krafa um að standist hæfismat stjórnarmanna“. - þsj
Mest lesið Mikil eftirspurn eftir notuðum Toyota bílum Samstarf Ráða Önnu Rut til að skapa rými fyrir Ármann Viðskipti innlent Bein útsending: Niðurstöður Íslensku ánægjuvogarinnar kunngjörðar Viðskipti innlent Þau eru tilnefnd til UT-verðlauna Ský Viðskipti innlent Kaupsamningum fækkaði tímabundið vegna vaxtamálsins Viðskipti innlent Vara við súkkulaðirúsínum Neytendur Segja skilið við Kringluna Viðskipti innlent Hrafnhildur til Pipar\TBWA Viðskipti innlent Er þrælfyndin og skemmtileg þótt Viðskiptablaðið hafi sagt annað Atvinnulíf Innleiðing stefnu: „Keppikefli að gera sjálfan mig óþarfan“ Atvinnulíf Fleiri fréttir Segja skilið við Kringluna Rúmur helmingur íbúða til sölu nýbyggingar Hálfum milljarði ódýrara að keyra vinnsluna á olíu Davíð ráðinn til að stýra Almenningssamgöngum höfuðborgarsvæðisins Hrafnhildur til Pipar\TBWA Þau eru tilnefnd til UT-verðlauna Ský Ráða Önnu Rut til að skapa rými fyrir Ármann Bein útsending: Niðurstöður Íslensku ánægjuvogarinnar kunngjörðar Kaupsamningum fækkaði tímabundið vegna vaxtamálsins Setja stefnuna á seinni hluta árs Niceair aflýsir jómfrúarfluginu Opinber útboð á árinu fyrir 221 milljarð króna Gagnrýna að ræða eigi pitsaostsmálið við Bændasamtökin Heiðar kjörinn stjórnarformaður Íslandsbanka Stækka aðrennslisgöng Sultartangastöðvar Kolefnisgjöld gætu bætt sex þúsund kalli við flugkostnað heimila „Biðröðin er löng“ Ákvörðunin á ábyrgð stjórnenda Icelandair en ekki flugmanna Hætta flugi til Istanbúl eftir að flugmenn drógu undanþágu til baka Grillhúsinu á Sprengisandi lokað Spá blússandi verðbólgu næstu mánuði Bein útsending: Skattadagurinn 2026 „Þennan vítahring þarf að rjúfa“ Of mikið A-vítamín í barnavítamíninu Veitti Vélfagi leyfi til að greiða laun Leggja til að Heiðar verði stjórnarformaður Íslandsbanka Skrá Styrkás í Kauphöllina á næsta ári Eigandinn greiddi sér hundruð milljóna í arð Leita að nafni á farþegamiðstöð fyrir skemmtiferðaskip Kappahl og Newbie opna á Íslandi Sjá meira