Innlent

Verdi á fjölunum - Keppast um hylli hefðarkonu

Sígaunasonur og greifi keppast um hylli fagrar hefðarkonu í einu frægasta óperuverki Verdis, Il trovatore, sem nú er á fjölum íslensku óperunnar. Hugrún Halldórsdóttir og Baldur Hrafnkell myndatökumaður fóru í fyrradag á frumsýningu óperunnar átakanlegu.

Í helstu hlutverkum eru Jóhann Friðgeir Valdimarsson í hlutverki Manrico, Hulda Björk Garðarsdóttir í hlutverki Leonoru, Alina Dubik og Elsa Waage sem skipta með sér hlutverki Azucenu, Viðar Gunnarsson syngur hlutverk Ferrando og hinn virti alþjóðlegi baritónsöngvari Anooshah Golesorkhi er í hlutverki Luna greifa.

Þá heldur bandaríski hljómsveitarstjórinn Carol Crawford um tónsprotann, og er þetta í fyrsta sinn sem kona er hljómsveitarstjóri í óperuuppfærslu hjá Íslensku óperunni.

Ítarlega frétt um verkið má sjá í meðfylgjandi myndskeiði, en það er vert að vara þá við sem ekki þekkja verkið, en hafa hug á að sjá það, að ýmsu er ljóstrað upp um það í myndskeiðinu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×