Um Gagnaveitu Reykjavíkur Ingólfur Bruun skrifar 20. október 2012 06:00 Þann 23. ágúst sl. var lögð fram ný eigendastefna á stjórnarfundi Orkuveitu Reykjavíkur (OR). Í lið 3.4 er fjallað um kjarnastarfsemi OR en hún felst í „rekstri vatnsveitu, hitaveitu, rafveitu og fráveitu, sölu og framleiðslu á rafmagni og heitu og köldu vatni“. Einnig er tiltekið að OR geti „nýtt þekkingu þess í öðrum veiturekstri, s.s. rekstri gagnaveitu, enda þjóni hann markmiðum eigenda og þátttakan hljóti samþykki þeirra“. Það voru mistök að skilgreina ekki rekstur gagnaveitu sem hluta af kjarnastarfsemi OR. Mikilvægustu búsetuskilyrði nútímans eru aðgangur að heitu og köldu vatni, rafmagni, fráveitu og síðast en ekki síst aðgangur að ljósleiðarakerfi fyrir m.a. internetsamband, sjónvarpsútsendingar og talsíma. Sýnt hefur verið með rannsóknum að aðgangur að öflugum gagnaflutningum í gegnum ljósleiðara eykur hagsæld á viðkomandi svæði. Þessu til stuðnings má benda á rit sem FTTH Council í Bandaríkjunum gefur út varðandi kosti þess að leggja ljósleiðara og þá sérstaklega kaflann „FTTH and Economic Development“. Hægt er að nálgast ritið á slóðinni www.05.is/ljos_gogn/ftthprimer2011.pdf og á heimasíðu FTTH Council. Styr hefur staðið um Gagnaveitu Reykjavíkur (GR) allt frá stofnun hennar. Lagt hefur verið til á ýmsum tímum að GR yrði seld. Þetta væri misráðið og hefur undirritaður áður gagnrýnt hugmyndir um sölu GR (sjá www.05.is/netmal/gagnaveitar.htm). Rekstur OR hefur verið þungur eftir hrun og eignir verið seldar til að grynnka á skuldum. Aldrei hefur þó komið til umræðu að selja vatnsveitu, hitaveitu, fráveitu eða rafveitu. Að sama skapi væri fráleitt að selja GR vegna skammtímaerfiðleika í rekstri OR. Ég vil hvetja til þess að kjarnastarfsemi OR verði skilgreind upp á nýtt og rekstri gagnaveitu verði bætt við kjarnastarfsemi fyrirtækisins. Það er mikilvægt að GR verði að fullu í eigu OR og þar með í eigu þeirra sveitarfélaga sem standa að OR, íbúum og fyrirtækjum til hagsældar. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Mest lesið Hver á arfinn? Gunnar Ármannsson Skoðun Í hvaða vitleysu erum við stödd? Ragnheiður Stephensen Skoðun Skuggamansal á Íslandi Sævar Þór Jónsson Skoðun Grateful Dead á Sæbrautinni Júlíus Valsson Skoðun Baráttan er ekki búin Mordekaí Elí Esrason Skoðun Skattlagning til velsældar Hannes Lúðvíksson Skoðun Til hamingju Reykjanesbær með leikskólana okkar Guðný Birna Guðmundsdóttir Skoðun Er Þórarinn Tyrfings nýja framtíð Vogs? Bergþóra Haralds Eiðsdóttir Skoðun Þjóðarsjúkrahúsið seinkar Sigurður Sigurðsson Skoðun Hvað segja gögnin í raun um ásakanir á hendur séra Friðriki Theódór S. Halldórsson Skoðun Skoðun Skoðun Við erum ekki jafn ömurleg og við höldum Þorsteinn Tjörvi Sigurðsson skrifar Skoðun Bjórinn sem slapp við suðurferðina Elís Pétur Elísson skrifar Skoðun Í hvaða vitleysu erum við stödd? Ragnheiður Stephensen skrifar Skoðun Skattlagning til velsældar Hannes Lúðvíksson skrifar Skoðun Baráttan er ekki búin Mordekaí Elí Esrason skrifar Skoðun Hver á arfinn? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Að tala um dauðann er að tala um lífið Ingrid Kuhlman skrifar Skoðun Til hamingju Reykjanesbær með leikskólana okkar Guðný Birna Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Skuggamansal á Íslandi Sævar Þór Jónsson skrifar Skoðun Grateful Dead á Sæbrautinni Júlíus Valsson skrifar Skoðun Þjóðarsjúkrahúsið seinkar Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Er gervigreindin spegill mannkyns Kristján Logason skrifar Skoðun Er Þórarinn Tyrfings nýja framtíð Vogs? Bergþóra Haralds Eiðsdóttir skrifar Skoðun Tólf ára ákvað ég að gera bíó Arnar Benjamín Kristjánsson skrifar Skoðun Hvað segja gögnin í raun um ásakanir á hendur séra Friðriki Theódór S. Halldórsson skrifar Skoðun Það er sárt að tapa kosningum Heimir Már Pétursson skrifar Skoðun Er enn þess virði að leggja á sig langt háskólanám? Gunnar Alexander Ólafsson skrifar Skoðun Engin fjölskylda á að þurfa að standa ein Eydís Ásbjörnsdóttir skrifar Skoðun Þegar reglurnar gilda ekki jafnt Ágúst Karlsson skrifar Skoðun Utanríkisstefna án ábyrgðar? Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar Skoðun PISA-skellur en hvað svo? Inga Sæland skrifar Skoðun Hver verndar velferð barna þegar náttúran blandar kynjunum? Jón Þór Ólafsson skrifar Skoðun Einhliða bergmálshellir og heimildir sem hrynja Lilja Benatov Hjartar skrifar Skoðun KEMUR TÓLFAN? Hilmar Jökull Stefánsson skrifar Skoðun Ábyrgðinni má ekki útvista til tækninnar Karen Ósk Nielsen Björnsdóttir skrifar Skoðun Gervigreindin kaupir ekki það sem hún skilur ekki Jens Gunnarsson skrifar Skoðun Fólkið á bak við öruggt flug Elísabet Heiða Valdemarsdóttir skrifar Skoðun Fjöldi opinberra starfsmanna - deilt um keisarans skegg Ingvar Freyr Ingvarsson skrifar Skoðun Stafrænt heilbrigðiskerfið byggt á skilvirkni Hilmar Ingimundarson skrifar Sjá meira
Þann 23. ágúst sl. var lögð fram ný eigendastefna á stjórnarfundi Orkuveitu Reykjavíkur (OR). Í lið 3.4 er fjallað um kjarnastarfsemi OR en hún felst í „rekstri vatnsveitu, hitaveitu, rafveitu og fráveitu, sölu og framleiðslu á rafmagni og heitu og köldu vatni“. Einnig er tiltekið að OR geti „nýtt þekkingu þess í öðrum veiturekstri, s.s. rekstri gagnaveitu, enda þjóni hann markmiðum eigenda og þátttakan hljóti samþykki þeirra“. Það voru mistök að skilgreina ekki rekstur gagnaveitu sem hluta af kjarnastarfsemi OR. Mikilvægustu búsetuskilyrði nútímans eru aðgangur að heitu og köldu vatni, rafmagni, fráveitu og síðast en ekki síst aðgangur að ljósleiðarakerfi fyrir m.a. internetsamband, sjónvarpsútsendingar og talsíma. Sýnt hefur verið með rannsóknum að aðgangur að öflugum gagnaflutningum í gegnum ljósleiðara eykur hagsæld á viðkomandi svæði. Þessu til stuðnings má benda á rit sem FTTH Council í Bandaríkjunum gefur út varðandi kosti þess að leggja ljósleiðara og þá sérstaklega kaflann „FTTH and Economic Development“. Hægt er að nálgast ritið á slóðinni www.05.is/ljos_gogn/ftthprimer2011.pdf og á heimasíðu FTTH Council. Styr hefur staðið um Gagnaveitu Reykjavíkur (GR) allt frá stofnun hennar. Lagt hefur verið til á ýmsum tímum að GR yrði seld. Þetta væri misráðið og hefur undirritaður áður gagnrýnt hugmyndir um sölu GR (sjá www.05.is/netmal/gagnaveitar.htm). Rekstur OR hefur verið þungur eftir hrun og eignir verið seldar til að grynnka á skuldum. Aldrei hefur þó komið til umræðu að selja vatnsveitu, hitaveitu, fráveitu eða rafveitu. Að sama skapi væri fráleitt að selja GR vegna skammtímaerfiðleika í rekstri OR. Ég vil hvetja til þess að kjarnastarfsemi OR verði skilgreind upp á nýtt og rekstri gagnaveitu verði bætt við kjarnastarfsemi fyrirtækisins. Það er mikilvægt að GR verði að fullu í eigu OR og þar með í eigu þeirra sveitarfélaga sem standa að OR, íbúum og fyrirtækjum til hagsældar.
Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar