Innlent

Bremsulaus vörubíll með of þungan farm

Brumm, brumm.
Brumm, brumm. mynd úr safni
Lögreglan hafði afskipti af vörubíl með eftirvagn í austurborginni í gærmorgun en grunsemdir vöknuðu um að verið væri að flytja farm sem væri í engu samræmi við heimild.

Samkvæmt upplýsingum frá lögreglu var bílstjóranum gert að aka á næstu vigt þar sem kom í ljós að hlassið var langtum meira en leyft var og munaði þar allmörgum tonnum.

„Reyndust tonnin hátt í þriðjung umfram leyfða heildarþyngd. Við svo búið var haldið beint á losunarstað og þaðan á skoðunarstöð og að sjálfsögðu í lögreglufylgd. Á skoðunarstöðinni voru ennfremur gerðar ýmsar athugasemdir við bæði vörubílinn og eftirvagninn, m.a. við bremsurnar. Niðurstaðan varð að lokum sú að eftirvagninn þarf að færa í endurskoðun en akstursbann var sett á vörubílinn," segir í tilkynningu frá lögreglu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×