Fréttu af leigjendunum fyrir nokkrum dögum Hugrún Halldórsdóttir skrifar 4. maí 2012 12:00 Kamil Lewicki, íbúi við Vesturgötu 27, sagði í fréttum Stöðvar 2 að ef hann hefði vaknað klukkutíma seinna, hefði hann dáið. mynd/stöð 2
Talsmaður Dróma segir fyrirtækið hafa frétt af leigjendum og ástandi brunavarna í ósamþykktu íbúðarhúsnæði í Kópavogi fyrir nokkrum dögum. Eignin er í eigu fyrirtækisins en leigusamningur var gerður við fyrrum eiganda. Fjórir fullorðnir og lítil stúlka voru hætt komin þegar eldur kom upp í ósamþykktu íbúðarhúsnæði að Vesturvör 27 í kópavogi í fyrrinótt. Húsnæðið hefur verið í eigu Dróma frá því í febrúar, en fyrrum eigandi gerði samning við aðila sem leigði húsið út. Ranglega var farið með það í kvöldfréttum í gær að Drómi hefði endurnýjað samninginn við eigandaskiptin en hann er þó enn í gildi og rennur út í ágústmánuði. Magnús Steinþór Pálmarsson er talsmaður Dróma. „Í sjálfum sér hefur ekki verið tekin ákveðið um að rifta ekki, við fengum fyrst upplýsingar um hvaða aðili væri með húsið í heildarleigu af okkur síðasta föstudag og hittum hann núna á mánudaginn og fengum þá í rauninni þá fyrsta veður af því hvað er verið að gera með þessa eign," segir Magnús. Eignin var yfirtekin með samkomulagi við eiganda á sínum tíma og því er leigusamningurinn enn í gildi. „Við höfðum aldrei komið þangað inn og höfðum ekki hugmynd um hvernig ástatt væri með brunamál eða neitt annað varðandi þetta húsnæði enda er það svo nýkomið til okkar." Magnús segir tilfellið ekki einfalt ef rifta eigi samningnum því oft þurfi að fara í útburð ef íbúar neita að fara.
Tengdar fréttir "Ef ég hefði vaknað klukkutíma seinna hefði ég dáið" Þriggja ára gömul stúlka og fjórir fullorðnir voru í lífshættu þegar eldur kom upp í ósamþykktu íbúðarhúsnæði í eigu Dróma í Kópavogi í nótt. Íbúi segir engar brunavarnir vera í húsinu og að það hafi verið lán að ekki fór verr. 3. maí 2012 18:30 Mest lesið Tveir bandarískir hermenn látnir eftir árásir Írans Erlent Forseti Ungverjalands segir af sér Erlent „Stefnum að því að koma meira en tvíefld til baka“ Innlent Lögregla klippti á plöturnar Innlent „Þetta er bara toppurinn á ísjakanum“ Innlent Þriðja hitabylgjan nálgast: Hiti gæti náð 45 gráðum á Spáni Erlent Nálægt því að útrýma moskítóflugu á Suðurlandi Innlent Skógræktarstarfsmönnum haldið í gíslingu í hjólhýsi Erlent Fjölskyldur kvennanna í sárum eftir nýjar fréttir Erlent Drykkurinn komi úr flösku ráðherra Innlent Fleiri fréttir „Stefnum að því að koma meira en tvíefld til baka“ Fyrri hluti júlí sá blautasti í sögu Reykjavíkur Lögregla klippti á plöturnar Einbreiðar brýr við Berufjörð og Reyðarfjörð líklega næstar „Þetta er bara toppurinn á ísjakanum“ Ferðamaðurinn fundinn heill á húfi á Suðurlandi Drykkurinn komi úr flösku ráðherra Dagrún ráðin sveitarstjóri Strandabyggðar Nálægt því að útrýma moskítóflugu á Suðurlandi Slasaðist alvarlega við heyskap Stórbruni í Drammen og dularfull staða moskítóflugunnar Tjaldsvæðisgestir vöknuðu við að þyrla lenti á vellinum Sjötugur maður tapað hundrað og átta milljónum til fjárkúgara Brotist inn í þrjá gáma og dýr verkfæri tekin ófrjálsri hendi Mótorhjól og bíll skullu saman „Mér finnst þau komin í ansi mikla meðvirkni með þessu félagi“ Kvöldfréttir Sýnar í beinni Nýja brúin átti að bæta flæðið: Mislæga lausnin vék fyrir ljósum Alltaf jafn óþægilegt að heyra af nálægri árás Þungt högg í magann með tvíburastelpur á vökudeild Gluggar þaktir klósettpappír og túrblóð í lakinu: „Aldrei séð annað eins“ Sveitarfélögin óþreyjufull og krefjast svara frá ráðherrum Fiskibátur varð aflvana við Stykkishólm Vegabréfsgjaldið hækkaði um fimm þúsund milli ára „Galið að komast að þessari niðurstöðu“ Krefjast lögbanns við laxveiðum Iðufólks í Stóru-Laxá Telur bikblæðingu hafa valdið brunanum Fólk eigi að hugsa sig tvisvar um ef því er ekki hleypt inn á heimilið Þyrla Gæslunnar kölluð út á Landmannaleið Segir gríðarlegt álag á miðakaupendum í sumar Sjá meira
"Ef ég hefði vaknað klukkutíma seinna hefði ég dáið" Þriggja ára gömul stúlka og fjórir fullorðnir voru í lífshættu þegar eldur kom upp í ósamþykktu íbúðarhúsnæði í eigu Dróma í Kópavogi í nótt. Íbúi segir engar brunavarnir vera í húsinu og að það hafi verið lán að ekki fór verr. 3. maí 2012 18:30