Landspítalalóð – 817 gerðu athugasemdir við deiliskipulagið 16. nóvember 2012 06:00 Samtals gerðu 817 aðilar athugasemdir við tillögu að deiliskipulagi á Landspítalalóð. Þar af voru þrjár frá opinberum aðilum, fjórar frá íbúa- og/eða hverfasamtökum og 810 frá einstaklingum. Flestar athugasemdir voru vegna mengunar, byggingarmagns, aðlögunar að umhverfi, staðarvals og framkvæmdarinnar sjálfrar. Einnig voru gerðar athugasemdir við kostnað og arðsemisútreikninga. Í 519 samhljóða athugasemdum er m.a. skorað á borgina að falla frá deiliskipulaginu.Er 817 mikið eða lítið? Þetta er gríðarlegur fjöldi athugasemda og miklu meiri en verið hefur vegna annarra deiliskipulagstillagna. Fjöldann ber að meta í ljósi þess að engin skipuleg samtök stóðu bak við þær og engar auglýsingar hvöttu fólk til að mótmæla. Fjöldi athugasemda þarf ekki að koma á óvart. Strax eftir staðarvalið árið 2002 byrjuðu athugasemdirnar að birtast. Síðan hafa verið skrifaðar mörg hundruð greinar með málefnalegum athugasemdum í prentmiðla og mörg þúsund pistlar og umsagnir á móti framkvæmdinni í netmiðla. Það sem kemur á óvart er að þeir sem standa að þessum stærstu byggingaráformum Íslandssögunnar skuli enn ekki hafa séð ljósið.Hvað næst? Það segir sig sjálft að umhverfislega og framkvæmdalega er erfitt að koma þessum tröllauknu byggingum fyrir og reisa þær innan um fínlega íbúðabyggð. Í opinberri stefnu íslenskra stjórnvalda í byggingarlist segir m.a. að gætt skuli að „heildarmynd og mælikvarða þegar byggt er í og við eldri byggð“. Jafnframt skuli „tryggja heildrænt og sögulegt yfirbragð húsa, götumynda og byggðamynsturs“. Þessi stefnumörkun ætti að tryggja að ekki sé byggt á þann máta sem stendur til að gera á Landspítalalóð. Eðlilegast væri að talsmenn áformanna einhentu sér í að endurskoða þau frá grunni með það fyrir augum að finna þeim betri farveg. Jafnframt mætti byrja að skipuleggja blandaða byggð íbúða og þjónustu á Landspítalalóðinni. Þetta er eftirsóttur staður sem myndi henta vel margs konar starfsemi og íbúum á öllum aldri. Líklegast er þó að gerðar verði minniháttar breytingar á tillögunni til málamynda og síðan haldið áfram. Að lokum munu borgarbúar e.t.v. þurfa að láta reyna á nýtt ákvæði um íbúakosningu samkv. sveitarstjórnarlögum. Til þess að slík kosning verði að veruleika þurfa um 20 sinnum fleiri að óska eftir henni en gerðu athugasemdir núna. Það verður að teljast frekar líklegt að það geti náðst með skipulegu átaki. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Mest lesið Hver á arfinn? Gunnar Ármannsson Skoðun Skuggamansal á Íslandi Sævar Þór Jónsson Skoðun Grateful Dead á Sæbrautinni Júlíus Valsson Skoðun Baráttan er ekki búin Mordekaí Elí Esrason Skoðun Þjóðarsjúkrahúsið seinkar Sigurður Sigurðsson Skoðun Er Þórarinn Tyrfings nýja framtíð Vogs? Bergþóra Haralds Eiðsdóttir Skoðun Í hvaða vitleysu erum við stödd? Ragnheiður Stephensen Skoðun Skattlagning til velsældar Hannes Lúðvíksson Skoðun Til hamingju Reykjanesbær með leikskólana okkar Guðný Birna Guðmundsdóttir Skoðun Hvað segja gögnin í raun um ásakanir á hendur séra Friðriki Theódór S. Halldórsson Skoðun Skoðun Skoðun Í hvaða vitleysu erum við stödd? Ragnheiður Stephensen skrifar Skoðun Skattlagning til velsældar Hannes Lúðvíksson skrifar Skoðun Baráttan er ekki búin Mordekaí Elí Esrason skrifar Skoðun Hver á arfinn? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Að tala um dauðann er að tala um lífið Ingrid Kuhlman skrifar Skoðun Til hamingju Reykjanesbær með leikskólana okkar Guðný Birna Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Skuggamansal á Íslandi Sævar Þór Jónsson skrifar Skoðun Grateful Dead á Sæbrautinni Júlíus Valsson skrifar Skoðun Þjóðarsjúkrahúsið seinkar Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Er gervigreindin spegill mannkyns Kristján Logason skrifar Skoðun Er Þórarinn Tyrfings nýja framtíð Vogs? Bergþóra Haralds Eiðsdóttir skrifar Skoðun Tólf ára ákvað ég að gera bíó Arnar Benjamín Kristjánsson skrifar Skoðun Hvað segja gögnin í raun um ásakanir á hendur séra Friðriki Theódór S. Halldórsson skrifar Skoðun Það er sárt að tapa kosningum Heimir Már Pétursson skrifar Skoðun Er enn þess virði að leggja á sig langt háskólanám? Gunnar Alexander Ólafsson skrifar Skoðun Engin fjölskylda á að þurfa að standa ein Eydís Ásbjörnsdóttir skrifar Skoðun Þegar reglurnar gilda ekki jafnt Ágúst Karlsson skrifar Skoðun Utanríkisstefna án ábyrgðar? Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar Skoðun PISA-skellur en hvað svo? Inga Sæland skrifar Skoðun Hver verndar velferð barna þegar náttúran blandar kynjunum? Jón Þór Ólafsson skrifar Skoðun Einhliða bergmálshellir og heimildir sem hrynja Lilja Benatov Hjartar skrifar Skoðun KEMUR TÓLFAN? Hilmar Jökull Stefánsson skrifar Skoðun Ábyrgðinni má ekki útvista til tækninnar Karen Ósk Nielsen Björnsdóttir skrifar Skoðun Gervigreindin kaupir ekki það sem hún skilur ekki Jens Gunnarsson skrifar Skoðun Fólkið á bak við öruggt flug Elísabet Heiða Valdemarsdóttir skrifar Skoðun Fjöldi opinberra starfsmanna - deilt um keisarans skegg Ingvar Freyr Ingvarsson skrifar Skoðun Stafrænt heilbrigðiskerfið byggt á skilvirkni Hilmar Ingimundarson skrifar Skoðun Hvað þarf barn í grunnskóla að kunna til að fá 10 í grunnskóla? Þorsteinn Mar Gunnlaugsson skrifar Skoðun Reykjalundur endurhæfir – Endurhæfum Reykjalund Svana Helen Björnsdóttir skrifar Sjá meira
Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar
Skoðun Hvað þarf barn í grunnskóla að kunna til að fá 10 í grunnskóla? Þorsteinn Mar Gunnlaugsson skrifar