Lífið

Fagna nýja árinu í lúxushúsi

MYNDIR / COVER MEDIA
Stjörnuparið Brad Pitt og Angelina Jolie ætla að hringja inn nýja árið á Turks- og Caicos-eyjum í Karabíska hafinu í glæsihúsi sem er í eign fatahönnuðarins Donnu Karan.

22 af nánustu fjölskyldumeðlimum og vinum parsins eru með í för og á að blása til heljarinnar teitis á gamlárskvöld.


Brangelina.
Glæsihýsinu fylgir einkaströnd, sundlaug og kvikmyndasalur. Því fylgir einnig þrjú hús þar sem fjölskylda Brangelinu getur slakað á.

Donna Karan.
Brad og Angelina trúlofuðu sig í apríl en hafa lítið gefið upp um brúðkaupsundirbúninginn.



Þú gætir unnið - vertu með okkur á Facebook.







Fleiri fréttir

Sjá meira


×