Biðlað til Ólafs Stefánssonar Guðjón Guðmundsson skrifar 14. desember 2012 11:41
Ekki er loku fyrir það skotið að Ólafur Stefánsson leiki með íslenska landsliðinu í handknattleik á HM á Spáni í janúar. Aron Kristjánsson, landsliðsþjálfari Íslands, staðfesti í samtali við Stöð 2 í gærkvöldi að HSÍ hefði haft samband við Ólaf þegar ljóst var að Alexander Petersson ætti við meiðsli að stríða. Að sögn Arons er málið í skoðun. Aron sagði ennfremur að það væru helmingslíkur á því að Alexander gæti leikið með íslenska landsliðinu en auðvitað væri staðan alvarleg. Rúnar Kárason væri einnig frá vegna meiðsla og hugsanlega þyrfti liðið að nota rétthentan mann hægra megin á vellinum. Þá kæmi Ólafur Guðmundsson, leikmaður Kristianstad í Svíþjóð, fyrst upp í hugann. Hann hefði leikið þessa stöðu með góðum árangri. Aron segir ennfremur ljóst að það verður erfitt að fylla skarð Alexanders fari svo að hann verði ekki með. Sama staða kom upp á síðasta ári í aðdraganda Evrópumótsins í Serbíu. Alexander hafði farið á kostum með Füchse Berlín í þýsku úrvalsdeildinni en kenndi sér meins í öxl. Læknateymi íslenska landsliðsins mat stöðuna þannig að hann gæti leikið sem hann og gerði. Eftir Evrópumótið kom hins vegar í ljós að Alexander þurfti á hvíld að halda, fór ekki í aðgerð og var frá í nokkurn tíma þegar þýska úrvalsdeildin hófst á nýjan leik að Evrópumótinu loknu. Guðmundur Guðmundsson, þáverandi landsliðsþjálfari Íslands, stýrði þá einnig Rhein-Neckar Löwen líkt og hann gerir enn með góðum árangri. Þær breytingar hafa hins vegar orðið að Alexander Petersson er í dag leikmaður Löwen og þeir mega illa við því að missa hann í síðari hluta þýsku úrvalsdeildarinnar ætli liðið sér meistaratitilinn.
Mest lesið Stöðvaði leikinn og skutlaði sér á eftir gæs Íslenski boltinn Uppgjörið: KR - ÍA 5-1| Markahæstir í sögunni Íslenski boltinn Stórmerkileg byrjun Freys hjá Rosenborg Fótbolti Arteta heitt í hamsi: „Þetta er óásættanlegt“ Enski boltinn Kemur fyrirliða KR til varnar: „Talar beint frá hjartanu“ Íslenski boltinn „Hver einasti maður ákveðið að við færum beint niður“ Íslenski boltinn Andri Lucas svaraði fautaskap með marki Enski boltinn Manchester United - Manchester City | Baráttan um Manchester-borg Enski boltinn Uppgjörið: FH - KA 3-0 | FH-ingar fjórum stigum frá fallsvæðinu Íslenski boltinn Þróttarar brutu bikarinn Íslenski boltinn Fleiri fréttir Íslendingarnir fóru ekki mjúkum höndum um lærisveina Rúnars „Við höfum óbilandi trú á okkur sjálfum “ Uppgjörið: HK - ÍR 18-20 | Tæpur sigur ÍR í Kópavoginum Haukar á flugi Sautján mörk Gunnars dugðu skammt Fram á toppinn og flautumark á Selfossi Haukur leiddi endurkomu Löwen Danskt stórlið búið að klófesta Elínu Klöru ÍBV samdi við bandarískan hermann „Pirraðastur er ég yfir þessum tíu lokamínútum“ Uppgjörið: Afturelding - FH 33-33 | Allt jafnt eftir háspennuleik Þórsarar komnir á blað Sextán íslensk mörk í Meistaradeildinni Kanalausir Eyjamenn unnu Suðurlandsslaginn Reynir að skáka og máta „einn efnilegasta þjálfara í heimi“ ÍBV fær bandarískan liðsauka Íslendingaliðin ekki í vandræðum í Meistaradeildinni Fullkomin skotnýting Bjarka Más í spennutrylli Meistaradeildin spiluð með nýju fyrirkomulagi Guðjón Valur með augastað á landsliðsmanni Íslands ÍBV hreppir Magnús Dag frá KA „Eru og voru ekki mínir bestu vinir“ Aron og Kúveit redda strákunum okkar eftir svik Egypta Tveir nýliðar í landsliðshópnum Hættur hjá danska landsliðinu eftir samskipti við unga leikmenn Freyr frábær í stórsigri á ÍBV Varamaður Ómars hetja Magdeburgar Skoraði fimmtán mörk Díana og Elín Rósa töpuðu í Meistaradeildinni Afturelding vann síðari hálfleikinn sem var leikinn tveimur dögum eftir þann fyrri Sjá meira