Þórir og norsku stelpurnar ekki í vandræðum með Ungverja Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 15. desember 2012 14:55 Camilla Herrem fagnar. Mynd/AFP
Norska kvennalandsliðið í handbolta er komið í úrslitaleik Evrópumótsins í Serbíu eftir sannfærandi ellefu marka sigur á Ungverjalandi, 30-19, í undanúrslitaleik þjóðanna í Belgrad í dag. Norska liðið mætir annaðhvort Serbíu eða Svartfjallalandi í úrslitaleiknum á morgun. Íslendingurinn Þórir Hergeirsson þjálfar norska liðið en hann og stelpurnar eiga möguleika á því að vinna fjórða stórmótið í röð. Þetta er ennfremur sjötta Evrópumótið í röð þar sem norska liðið spilar til úrslita en liðið getur unnið fimmta Evrópumeistaratitilinn í röð á morgun. Anja Edin skoraði sex mörk í leiknum og Linn-Kristin Riegelhuth Koren og Camilla Herrem voru með 5 mörk hvor. Katrine Lunde Haraldsen varði síðan 12 skot í markinu. Sigur norska liðsins var aldrei í hættu eftir frábæran sprett í lok fyrri hálfleiks og annar góður sprettur í seinni hálfleik kláraði endanlega leikinn en þær komust mest tólf mörkum yfir. Liðin skiptust á að hafa forystuna í upphafi leiks en ungverska liðið náði síðan tveggja marka forystu, 9-7, þegar 17 mínútur voru liðnar af leiknum. Þá fóru norsku stelpurnar í gang því þær skoruðu fjögur mörk í röð á tæpum þremur mínútum og komust yfir í 11-9. Norska liðið vann síðustu þrettán mínútur hálfleiksins 9-2 og var með fimm marka forskot í hálfleik, 16-11. Norsku stelpurnar skoruðu fyrsta mark seinni hálfleiksins (17-11) en Ungverjar gáfust ekki upp, svöruðu með þremur mörkum í röð og minnkuðu muninn í 17-14. Norska liðið var hinsvegar mun sterkara og gerði nánast út um leikinn með því að skora næstu fjögur mörk og komast í 21-14. Sigur norsku stelpnanna var aldrei í hættu eftir það.
Mest lesið Gómuð við gróft svindl í Berlín Sport Leggur skóna á hilluna eftir tímabilið Íslenski boltinn Fimmtán leikmenn meiddir: Er lengra landsleikjahlé betra eða verra? Sport Æfði með rúgbíliði í Frakklandi á undirbúningstímabilinu Körfubolti Einkunnir Íslands: Takmörkuð gæði í Tallinn Fótbolti Uppgjörið: Færeyjar - Ísland 0 - 2 | Umspilssæti Íslendinga staðreynd Fótbolti „Náðum ekki að klukka þá framan af“ Handbolti Uppgjörið: Eistland - Ísland 0-0 | Markalaust en strákarnir á toppnum Fótbolti „Hefðum tapað ef Hákon væri ekki í markinu“ Fótbolti KR vann erkifjendurna sannfærandi Körfubolti Fleiri fréttir „Náðum ekki að klukka þá framan af“ Náðu að vinna sterkt spænskt lið FH - Limoges 33-46 | FH-ingar grófu sér of djúpa holu í fyrri hálfleik Slakur fyrri hálfleikur varð Val að falli Langmarkahæst í Olís-deildinni en áfram úti í kuldanum „Þeir eiga allt þetta hrós fyllilega skilið“ Verður sjö á móti sex sókn úr sögunni í handbolta? Dýrmætur sigur HK-inga Ómar markahæstur í öruggum sigri FH hélt Selfossi á botninum Sættast eftir lætin á Ísafirði og allt dregið til baka Elín Klara í ham í Austurríki | Sveinar Guðjóns misstu Kiel fram úr sér Eyjakonur juku á raunir HK Brynjar sé Lamine Yamal handboltans: „Hef aldrei séð annað eins“ Mögnuð Jóhanna með yfir helming marka Hauka í sigri Fyrsti sigur lærisveina Arnórs kom í spennutrylli Gunnar með ellefu mörk í sigri Vals Haukur skoraði sjö í Íslendingaslag Viktor og Janus fengu silfur á HM eftir að gamall félagi stal senunni Hákon Daði Styrmisson: „Standardinn þarf að vera hærri“ Haukar halda sigurgöngunni áfram KA með sannfærandi sigur á Eyjamönnum Uppgjörið: Fram - Afturelding 24-42 | Niðurlæging í Úlfarsárdal Markmenn beggja liða áttu stórleik í sigri Fram Guðjón Valur fær Orra óstöðvandi til Þýskalands Svekkjandi tap FH eftir góðan lokasprett Ellefu marka Ómar kom Magdeburg á toppinn Kannast ekki við krísufund á Hlíðarenda Danir fjalla um niðurlæginguna á Hlíðarenda „Held að fólk átti sig ekki á því sem við vorum að gera í kvöld“ Sjá meira