Ágúst: Nú fer maður og talar við þær - Við getum betur en þetta Óskar Ófeigur Jónsson í Vrsac skrifar 4. desember 2012 19:39 Ágúst á hliðarlínunni í Vrsac í dag. Mynd/Stefán
Ágúst Þór Jóhannsson, landsliðsþjálfari, var að sjálfsögðu ekki ánægður eftir tíu marka tap á móti Svartfjallalandi í kvöld, 16-26, í fyrsta leik Íslands á EM kvenna í handbolta í Serbíu. „Við vorum að spila undir getu. Eitt er að tapa á móti frábæru liði og silfurhöfunum frá því á Ólympíuleikunum í sumar en mér fannst mínar stelpur ekki vera nógu harðar og hreinlega frekar linar sóknarlega. Við gáfum pínu eftir og bökkuðum á undan baráttunni," sagði Ágúst og bætti við: „Í ofanálag vorum við að klára illa þegar við komum okkur í færi. Markmaðurinn er besti maðurinn hjá þeim með 23 bolta varða og það er hrikalega erfitt. Við erum aldrei almennilega í takt sóknarlega á móti þeim," sagði Ágúst. „Við þurfum heldur betur að gera betur á morgun. Það eina jákvæða við þetta er að ég veit að við spilum ekki tvo leiki svona illa, það verða ekki aftur svona margar sem spila undir getu," sagði Ágúst en íslenska landsliðið mætti Svartfjallalandi í hefndarhug í kvöld. „Við vissum að þetta væri hrikalega erfitt verkefni þó að við höfum að sjálfsögðu farið inn í þennan leik með því hugarfari að vinna hann. Þær eru númeri of stórar og við þurfum bara að einbeita okkur að næsta verkefni sem eru Rúmenar. Nú þurfum við að nota tímann og undirbúa okkur að kostgjæfni fyrir það," sagði Ágúst sem þarf að rífa upp sínar stelpur í kvöld. „Nú fer maður og talar við þær. Við reynum að peppa okkur saman og fara í sjúkraþjálfun og annað í kvöld. Við þurfum að vinna aðeins í vídeó-vinnu og undirbúa okkur. Við sjáum til hvort við getum ekki reynt að töfra eitthvað fram á morgun. Við getum betur en þetta," sagði Ágúst.
Mest lesið Uppgjörið: Þór - Víkingur 2-1 | Þórsarar fyrstir til að vinna Víkinga Íslenski boltinn Fjórtán ára í byrjunarliði Vals Íslenski boltinn „Sturlað“ að mæta Yamal eftir að hafa baðað hann Fótbolti Bætti heimsmet í míluhlaupi sem hafði staðið í 27 ár Sport Valur - Fram 2-3 | Framarar upp í annað sætið Íslenski boltinn Martínez sleppti aðgerð og spilar meiddur Fótbolti Frakkland - England | Tárin þerruð og tekist á um brons Fótbolti Ætlaði allt um koll að keyra: „Óttuðust að það yrðu óeirðir“ Sport DeChambeau refsað eftir hringinn og dettur niður í fimmta sæti Golf Taylor fagnar ákaft: „Sjáið hvað hún er reið, alveg brjáluð“ Íslenski boltinn Fleiri fréttir Önnum kafinn Arnór óskar Benedikt góðs bata Ungu strákarnir okkar rúlluðu yfir Ísrael Ljóst hvaða lið bíða Vals og FH í breyttri Evrópudeild Missti mátt í hendinni eftir að hafa fengið golfkúlu í höfuðið Landsliðsfólk trúlofar sig: „Ekki flókið já“ Spila um þrettánda sæti eftir tap gegn Noregi Handboltinn hleypir Rússum aftur inn Frábær lokakafli dugði ekki til Sárt tap fyrir Króatíu Hansen leikur í mynd um einelti eftir að hafa sjálfur þurft að þola það Strákarnir áfram í milliriðil á EM „Eitthvað sem maður verður að læra af honum“ Tólf mörk Ágústs en tap gegn meisturunum Upplifun að koma á svæðið og skrifa undir Frábær byrjun hjá ungu strákunum okkar Bjarki Már til franska stórveldisins Sjokkið breyttist í ævintýri Ásthildur Jóna með tíu mörk á HM og Ísland í undanúrslit Forsetabikarsins Segja Breka á leiðinni til Benfica Børge Lund tekur við stórliði Kiel Díana tekur dóttur sína með sér yfir í Fram Fjórar heiðraðar sem spiluðu fyrsta landsleikinn fyrir sjötíu árum Einar hjá Fram næstu þrjú árin Miðar í sölu á HM í handbolta í dag Þrír íslenskir landsliðsmenn tilnefndir til virtra verðlauna Viktor Gísli vann Meistaradeildina með Barcelona Magdeburg fékk bronsið Viktor Gísli í úrslitaleik Meistaradeildarinnar Magdeburg tapaði í undanúrslitum Strákarnir okkar stálheppnir með riðil á HM Sjá meira