Hrafnhildur: Það var virkilega erfitt að vera til í gærkvöldi Óskar Ófeigur Jónsson í Vrsac skrifar 5. desember 2012 14:38
Hrafnhildur Ósk Skúladóttir, fyrirliði íslenska kvennalandsliðsins, átti eins og fleiri í liðinu erfitt með að sofna eftir skellinn á móti Svartfjallalandi í gær. Stelpurnar ætla að koma sterkar til baka á móti Rúmeníu í kvöld. „Staðan er nokkuð góð á liðinu. Það var skelfilegt að vera til í gærkvöldi og það var erfitt að sofna. Ég er þreytt núna en við fáum góðan tíma til að leggja okkur og hlaða batterín," sagði Hrafnhildur. „Við erum klárar í næsta verkefni og tilbúnar að gera betur. Það voru gríðarlega mikil vonbrigði að þurfa að labba útaf vellinum í gær eftir svona leik. Það er erfitt að tapa þegar bara tveir leikmenn skila sínu en restin varla með. Það var virkilega erfitt að vera til í gærkvöldi," sagði Hrafnhildur en framundan er leikur við Rúmeníu í kvöld. „Rúmenarnir eru með gríðalega öflugt lið en þær eru rokkandi og eiga það til að detta niður á mjög lágt plan. Við þurfum að sjá til þess að þær geri það í kvöld því það erum við sem getum gert þær lélegar," sagði Hrafnhildur en Rúmenía missti niður fimm marka forskot á lokakafla síns leiks í gær og gerði fyrir vikið 21-21 jafntefli við Rússland. „Þær spiluðu rosalega hraðann leik á móti Rússunum í gær og það hlýtur að vera meiri þreyta í þeim heldur en okkur miðað við hraða leikjanna í gær. Við verðum að spila okkar vörn, keyra meira en við gerðum í gær og sjá til þess að þær verði lélegar," sagði Hrafnhildur en það má sjá allt viðtalið við Hrafnhildi með því að smella hér fyrir ofan.
Mest lesið Uppgjörið: Þór - Víkingur 2-1 | Þórsarar fyrstir til að vinna Víkinga Íslenski boltinn Fjórtán ára í byrjunarliði Vals Íslenski boltinn „Sturlað“ að mæta Yamal eftir að hafa baðað hann Fótbolti Bætti heimsmet í míluhlaupi sem hafði staðið í 27 ár Sport Valur - Fram 2-3 | Framarar upp í annað sætið Íslenski boltinn Martínez sleppti aðgerð og spilar meiddur Fótbolti Frakkland - England | Tárin þerruð og tekist á um brons Fótbolti Ætlaði allt um koll að keyra: „Óttuðust að það yrðu óeirðir“ Sport DeChambeau refsað eftir hringinn og dettur niður í fimmta sæti Golf Taylor fagnar ákaft: „Sjáið hvað hún er reið, alveg brjáluð“ Íslenski boltinn Fleiri fréttir Önnum kafinn Arnór óskar Benedikt góðs bata Ungu strákarnir okkar rúlluðu yfir Ísrael Ljóst hvaða lið bíða Vals og FH í breyttri Evrópudeild Missti mátt í hendinni eftir að hafa fengið golfkúlu í höfuðið Landsliðsfólk trúlofar sig: „Ekki flókið já“ Spila um þrettánda sæti eftir tap gegn Noregi Handboltinn hleypir Rússum aftur inn Frábær lokakafli dugði ekki til Sárt tap fyrir Króatíu Hansen leikur í mynd um einelti eftir að hafa sjálfur þurft að þola það Strákarnir áfram í milliriðil á EM „Eitthvað sem maður verður að læra af honum“ Tólf mörk Ágústs en tap gegn meisturunum Upplifun að koma á svæðið og skrifa undir Frábær byrjun hjá ungu strákunum okkar Bjarki Már til franska stórveldisins Sjokkið breyttist í ævintýri Ásthildur Jóna með tíu mörk á HM og Ísland í undanúrslit Forsetabikarsins Segja Breka á leiðinni til Benfica Børge Lund tekur við stórliði Kiel Díana tekur dóttur sína með sér yfir í Fram Fjórar heiðraðar sem spiluðu fyrsta landsleikinn fyrir sjötíu árum Einar hjá Fram næstu þrjú árin Miðar í sölu á HM í handbolta í dag Þrír íslenskir landsliðsmenn tilnefndir til virtra verðlauna Viktor Gísli vann Meistaradeildina með Barcelona Magdeburg fékk bronsið Viktor Gísli í úrslitaleik Meistaradeildarinnar Magdeburg tapaði í undanúrslitum Strákarnir okkar stálheppnir með riðil á HM Sjá meira