Svartfjallaland ekki í miklum vandræðum með Rússland Óskar Ófeigur Jónsson í Vrsac skrifar 5. desember 2012 18:27 Mynd/Stefán
Svartfjallaland er með fullt hús á toppi okkar riðils eftir þriggja marka sigur á Rússlandi, 30-27, í fyrri leik dagsins í Vrsac á EM kvenna í handbolta í Serbíu. Svartfjallaland hefur þar með unnið tvo fyrstu leiki sína sannfærandi en liðið vann Ísland 26-16 í gær. Svartfjallaland náði mest tíu marka forystu um miðjan seinni hálfleik en Rússum tókst að laga stöðuna með því að vinna síðustu fimmtán mínútur leiksins 9-2. Jovanka Radicevic spilaði bara fyrri hálfleikinn og var markahæst hjá Svartfjallalandi með sex mörk. Stóskyttan Katarina Bulatovic skoraði einnig sex mörk en reyndar úr talsvert fleiri skotum. Rússar skoruðu fyrsta markið í leiknum en Svartfjallaland tók síðan frumkvæðið, komst í 7-4 og 10-7 áður en Rússum tókst að minnka muninn í 14-13 þegar fimm mínútur voru eftir af hálfleiknum. Svartfjalland náði síðan frábærum 6-1 spretti í lok hálfeiksins sem skilaði liðinu sex marka forystu í hálfleik, 20-14. Hornamaðurinn Jovanka Radicevic var komin með sex mörk í hálfleik. Svartfellingar skoruðu fimm af sjö fyrstu mörkum seinni hálfleiks og voru allt í einu komnar í 25-16 eftir að hafa unnið fimmtán mínútna kafla 11-3. Svartfjallaland komst tíu mörkum yfir, 28-18, þegar rúmar fimmtán mínútur voru eftir en Rússar náðu þá góðum kafla og minnkuðu muninn í 28-23. Sigur Svartfjallalands var þó aldrei í verulegri hættu þótt að Rússum hafi tekist að minnka muninn niður í þrjú mörk í lokin.
Mest lesið Uppgjörið: Þór - Víkingur 2-1 | Þórsarar fyrstir til að vinna Víkinga Íslenski boltinn Fjórtán ára í byrjunarliði Vals Íslenski boltinn Frakkland - England | Tárin þerruð og tekist á um brons Fótbolti „Sturlað“ að mæta Yamal eftir að hafa baðað hann Fótbolti Bætti heimsmet í míluhlaupi sem hafði staðið í 27 ár Sport Uppgjörið: Valur - Fram 2-3 | Framarar upp í annað sætið Íslenski boltinn Martínez sleppti aðgerð og spilar meiddur Fótbolti Ætlaði allt um koll að keyra: „Óttuðust að það yrðu óeirðir“ Sport DeChambeau refsað eftir hringinn og dettur niður í fimmta sæti Golf Taylor fagnar ákaft: „Sjáið hvað hún er reið, alveg brjáluð“ Íslenski boltinn Fleiri fréttir Önnum kafinn Arnór óskar Benedikt góðs bata Ungu strákarnir okkar rúlluðu yfir Ísrael Ljóst hvaða lið bíða Vals og FH í breyttri Evrópudeild Missti mátt í hendinni eftir að hafa fengið golfkúlu í höfuðið Landsliðsfólk trúlofar sig: „Ekki flókið já“ Spila um þrettánda sæti eftir tap gegn Noregi Handboltinn hleypir Rússum aftur inn Frábær lokakafli dugði ekki til Sárt tap fyrir Króatíu Hansen leikur í mynd um einelti eftir að hafa sjálfur þurft að þola það Strákarnir áfram í milliriðil á EM „Eitthvað sem maður verður að læra af honum“ Tólf mörk Ágústs en tap gegn meisturunum Upplifun að koma á svæðið og skrifa undir Frábær byrjun hjá ungu strákunum okkar Bjarki Már til franska stórveldisins Sjokkið breyttist í ævintýri Ásthildur Jóna með tíu mörk á HM og Ísland í undanúrslit Forsetabikarsins Segja Breka á leiðinni til Benfica Børge Lund tekur við stórliði Kiel Díana tekur dóttur sína með sér yfir í Fram Fjórar heiðraðar sem spiluðu fyrsta landsleikinn fyrir sjötíu árum Einar hjá Fram næstu þrjú árin Miðar í sölu á HM í handbolta í dag Þrír íslenskir landsliðsmenn tilnefndir til virtra verðlauna Viktor Gísli vann Meistaradeildina með Barcelona Magdeburg fékk bronsið Viktor Gísli í úrslitaleik Meistaradeildarinnar Magdeburg tapaði í undanúrslitum Strákarnir okkar stálheppnir með riðil á HM Sjá meira