Ágúst: Getum brotið blað í sögunni Óskar Ófeigur Jónsson í Vrsac skrifar 7. desember 2012 09:30 Ágúst Jóhannsson. Mynd/Stefán „
Það gengur ágætlega að skipuleggja þetta. Æfingin í kvöld var ágæt þar sem reyndum að fara aðeins yfir sóknarleikinn. Við erum að reyna að fá aðeins meiri breidd í sóknarleikinn og að stelpurnar noti betur völlinn en fari ekki of mikið inn á miðjuna. Við þurfum að geta teygt aðeins á Rússunum og þurfum líka að skjóta bæði undirskotum og skotum í skrefinu á þær því þær eru gríðarlega hávaxnar og sækja okkur ekki langt út," sagði Ágúst Jóhannsson eftir æfingu íslenska liðsins í gær. Kvennalandsliðið mætir Rússlandi í kvöld í lokaleik sínum í riðlinum og jafnframt hreinum úrslitaleik um sæti í milliriðlinum. Ísland verður að vinna leikinn en Rússum nægir jafntefli. „Við myndum brjóta blað í sögunni með því að vinna þær, bæði með því að vinna fyrsta sigurinn á EM og líka með því að komast upp úr riðlinum. Það er því mikið undir í þessum leik," sagði Ágúst. „Rússarnir eru gríðarlega sterkir og þetta er frábært lið. Við þurfum að ná upp algjörum toppleik til þess að geta unnið þær," sagði Ágúst. Rússar hafa farið mikinn á lokakafla leikjanna en hvaða skýringu hefur Ágúst á því. „Þær skipta gríðarlega mikið inn á og hann notar þrettán leikmenn í fyrri hálfleik í leiknum við Svartfjallaland í gær. Hann er að rúlla á liðinu sem er dæmigert fyrir Rússana. Þetta eru allt vel þjálfaðir leikmenn og atvinnumenn í greininni. Rússar eru maskína og þær halda alltaf áfram og vinna eftir sínu kerfi. Við teljum okkur eiga að ráða ágætlega við þær varnarlega en þær keyra mikið hraðaupphlaup, bæði fyrsta og ekki síður annað tempó. Stelpurnar þurfa að vera fljótar til baka og tilbúnar að mæta þeim þegar þær koma á okkur," sagði Ágúst.
Mest lesið Skemmdi búningsklefann í klúbbhúsinu í fyrra en setti met í ár Golf Segir að Liverpool verði að berjast um titilinn á fyrsta ári Iraola Enski boltinn Leggja inn kvörtun til FIFA vegna Messi Fótbolti Fjórar heiðraðar sem spiluðu fyrsta landsleikinn fyrir sjötíu árum Handbolti Fyrrum markakóngur Seríu A lést 58 ára gamall Fótbolti FIFA breytti því hvernig stöðutöflur virka á HM Fótbolti Marokkómenn skoruðu sigurmarkið eftir 71 sekúndu Fótbolti Zlatan trúir því að Bandaríkin geti orðið heimsmeistari Fótbolti Freyr varð dapur: „Fáir en valdamiklir menn sem fannst þetta góð hugmynd“ Fótbolti Fyrstur til að fá rautt fyrir að hylja munninn en Tyrkir úr leik á HM Fótbolti Fleiri fréttir Fjórar heiðraðar sem spiluðu fyrsta landsleikinn fyrir sjötíu árum Einar hjá Fram næstu þrjú árin Miðar í sölu á HM í handbolta í dag Þrír íslenskir landsliðsmenn tilnefndir til virtra verðlauna Viktor Gísli vann Meistaradeildina með Barcelona Magdeburg fékk bronsið Viktor Gísli í úrslitaleik Meistaradeildarinnar Magdeburg tapaði í undanúrslitum Strákarnir okkar stálheppnir með riðil á HM Benedikt verður lærisveinn Arnórs Engin Ungverjagrýla á HM Orri Freyr hetjan og Sporting bikarmeistari Valskonur styrkja sig Markakóngurinn endaði tímabilið með látum Lið Blæs bjargaði lærisveinum Rúnars „Hann breytti kúlturnum“ Örn tekur við karlaliði Selfoss Guðjón Valur þjálfari ársins í Þýskalandi Löðrandi sveittur Donni þurfti að sætta sig við silfur Silfurdrengurinn Ingimundur þjálfar Aftureldingu ásamt Hrannari Stórt tap tryggði sæti í Meistaradeildinni Lovísa og Arnór Snær best í Olís deildinni Missti af dýrmætum stigum gegn meisturunum Jafnir leikir hjá Íslendingunum Guðjón Valur ósáttur því lið gæti grætt á tapi Ráða Svíann sem var einu sinni orðaður við íslenska landsliðið „Þetta hefði ekki getað endað betur“ Bjarki Már ungverskur meistari fjórða árið í röð Hættur og farinn í meistaranám til Bandaríkjanna Hættir með vefinn sinn Handbolti.is Sjá meira