Karen: Í þessari viku vorum við bara of langt frá þessum liðum Óskar Ófeigur Jónsson í Vrsac skrifar 7. desember 2012 20:39 Karen Knútsdóttir. Mynd/Stefán
Karen Knútsdóttir var ákveðin í kvöld og fann sig betur en í fyrstu tveimur leikjunum. Hún skoraði þrjú mörk og var valin besti leikmaður íslenska liðsins í leiknum af mótshöldurum. Íslenska liðið byrjaði leikinn illa og lenti 0-4 undir eftir sjö mínútna leik. „Það var ekkert búið þótt að þær skoruðu fyrstu fjögur mörkin því við gátum alveg skorað fjögur mörk í röð eins og þær. Auðvitað er betra að byrja vel, ég segi það ekki. Það gerði það að verkum að við vorum að elta allan leikinn og Rússlandi er bara of gott lið til að landa svona mikið undir á móti og þurfa að elta allan tímann," sagði Karen. „Þetta eru þvílík vonbirgði en við vorum bara lélegri á öllum sviðum í dag. Þetta eru margfaldir meistarar og vita alveg hvað er að vinna. Þær eru fara svolítið á hefðinni í kvöld en við hefðum þurft að fara á karakternum," sagði Karen. „Möguleikar okkar lágu fyrr í riðlinum en fyrst að þetta spilaðist svona þá var þetta úrslitaleikur á móti Rússum. Auðvitað ætluðum við að gera betur en þær voru einfaldlega bara betri en við í dag," sagði Karen sem var valin best í íslenska liðinu. „Það hefur enga þýðingu fyrir mig að fá þessi verðlaun því maður á það ekki skilið eftir svona leik. Það er mitt mat ef að við ætlum að reyna að nálgast þessi lið þá þurfum við að vera fljótari upp völlinn," sagði Karen. „Við þurfum að koma boltanum hratt í leik og nýta annað tempó. Við getum ekki verið að skora 25 plús mörk í uppsettum sóknarleik. Það er einfaldlega of erfitt. Þær eru 190 sm og standa bara inn á sex metrunum og bíða eftir okkur," sagði Karen. „Við vorum að láta það trufla okkur í fyrsta leiknum hvað þær voru að koma út til að negla okkur. Við vorum hikandi í sendingum og þá var ekkert flæði sem þýðir að við erum ekkert að opna varnirnar. Við þurfum að fá hratt spil sem er það sem hefur skilað mörkum hingað til. Það var engan veginn að gerast núna," sagði Karen. „Það hefði verið gríðarlega mikilvægt fyrir okkur að komast áfram upp á næsta HM og næsta HM því þá hefðum við fengið auðveldari andstæðinga í umspilinu. Við vorum að spila fína vörn í fyrstu tveimur leikjunum og voru með góða markvörslu. Til þess að eiga möguleika þá þurfum við að geta keyrt upp völlinn og fá boltann fyrr í leik. Þá koma auðveldari mörk og við getum notað hraðann sem við búum yfir. Í þessari viku vorum við bara of langt frá þessum liðum," sagði Karen.
Mest lesið Reyna að hefja leik á U.S. Open á ný Golf Eiður lagði símanúmer Messi undir í veðmáli við Albert Fótbolti Lengri útsending frá Gunnlaugi á U.S. Open Golf Leið Íslands í umspili fyrir HM í Brasilíu orðin ljós Fótbolti Fossblæddi af stressi fyrir þátttöku Gulla á U.S. Open Sport Spila æfingarleik á meðan HM stendur Fótbolti Henry gagnrýnir Ronaldo harðlega Fótbolti Fylgstu með þessu á sögulegu U.S. Open móti fyrir Íslendinga Golf Mörk í uppbótartíma og frammistaða liða kom á óvart Fótbolti Þurfa að breyta reglum til að stytta högg kylfinga Golf Fleiri fréttir Þrír íslenskir landsliðsmenn tilnefndir til virtra verðlauna Viktor Gísli vann Meistaradeildina með Barcelona Magdeburg fékk bronsið Viktor Gísli í úrslitaleik Meistaradeildarinnar Magdeburg tapaði í undanúrslitum Strákarnir okkar stálheppnir með riðil á HM Benedikt verður lærisveinn Arnórs Engin Ungverjagrýla á HM Orri Freyr hetjan og Sporting bikarmeistari Valskonur styrkja sig Markakóngurinn endaði tímabilið með látum Lið Blæs bjargaði lærisveinum Rúnars „Hann breytti kúlturnum“ Örn tekur við karlaliði Selfoss Guðjón Valur þjálfari ársins í Þýskalandi Löðrandi sveittur Donni þurfti að sætta sig við silfur Silfurdrengurinn Ingimundur þjálfar Aftureldingu ásamt Hrannari Stórt tap tryggði sæti í Meistaradeildinni Lovísa og Arnór Snær best í Olís deildinni Missti af dýrmætum stigum gegn meisturunum Jafnir leikir hjá Íslendingunum Guðjón Valur ósáttur því lið gæti grætt á tapi Ráða Svíann sem var einu sinni orðaður við íslenska landsliðið „Þetta hefði ekki getað endað betur“ Bjarki Már ungverskur meistari fjórða árið í röð Hættur og farinn í meistaranám til Bandaríkjanna Hættir með vefinn sinn Handbolti.is Íslendingalið Melsungen er Evrópudeildarmeistari Íslenska þríeykið þýskur meistari Donni lék Landin grátt en mátti þola sárt tap í fyrsta leik um titilinn Sjá meira