Handbolti

Ég er gömul markvarðargoðsögn | myndband

Kári Kristján Kristjánsson, landsliðsmaður í handknattleik, sýndi lipra takta á fótboltaæfingu hjá þýska úrvalsdeildarfélaginu Mainz á dögunum.

Kári var þar mættur með félögum sínum í handknattleiksliði Wetzlar en þeir fengu að taka eina æfingu með knattspyrnuliðinu.

"Það var móralskur dagur hjá okkur í liðinu. Ég var engan veginn að nenna þessu þegar við lögðum af stað í rútunni en þetta var síðan virkilega skemmtilegt," sagði Kári sem henti á sig markmannshönskunum í fyrsta skipti í langan tíma.

"Ég er náttúrulega gömul goðsögn í markinu. Stóð á milli markanna hjá KFS í 3. deildinni um aldamótin er við lögðum Fjölni og fórum upp. Menn gleyma því seint."

Skóbúnaður Kára á æfingunni vakti athygli fjölmiðlamanna en hann var í einum hlaupaskó og einum takkaskó. Það á sér allt eðlilegar skýringar.

"Ég er með einhverja viðbjóðssýkingu í tá og auglýsi hér með eftir sérfræðingi til þess að koma henni í stand. Ég gat engan veginn verið í takkaskóm á vinstri út af því. Ég er réttfættur og gat því verið í takkaskóm þegar kom að því að sýna alvöru spyrnur."

Leikmenn Mainz munu síðan koma á handboltaæfingu hjá Wetzlar á næsta ári enda þótti þessi viðburður heppnast vel og allir kátir þó svo Kári hefði ekki fengið samningstilboð frá Mainz.

"Ég átti ekki alveg minn besta dag í búrinu að þessu sinni en það er aldrei að vita hvað gerist síðar," sagði Eyjamaðurinn léttur.

Myndband af þessari uppákomu má sjá hér.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×