Ég er gömul markvarðargoðsögn | myndband 27. nóvember 2012 23:00
Kári Kristján Kristjánsson, landsliðsmaður í handknattleik, sýndi lipra takta á fótboltaæfingu hjá þýska úrvalsdeildarfélaginu Mainz á dögunum. Kári var þar mættur með félögum sínum í handknattleiksliði Wetzlar en þeir fengu að taka eina æfingu með knattspyrnuliðinu. "Það var móralskur dagur hjá okkur í liðinu. Ég var engan veginn að nenna þessu þegar við lögðum af stað í rútunni en þetta var síðan virkilega skemmtilegt," sagði Kári sem henti á sig markmannshönskunum í fyrsta skipti í langan tíma. "Ég er náttúrulega gömul goðsögn í markinu. Stóð á milli markanna hjá KFS í 3. deildinni um aldamótin er við lögðum Fjölni og fórum upp. Menn gleyma því seint." Skóbúnaður Kára á æfingunni vakti athygli fjölmiðlamanna en hann var í einum hlaupaskó og einum takkaskó. Það á sér allt eðlilegar skýringar. "Ég er með einhverja viðbjóðssýkingu í tá og auglýsi hér með eftir sérfræðingi til þess að koma henni í stand. Ég gat engan veginn verið í takkaskóm á vinstri út af því. Ég er réttfættur og gat því verið í takkaskóm þegar kom að því að sýna alvöru spyrnur." Leikmenn Mainz munu síðan koma á handboltaæfingu hjá Wetzlar á næsta ári enda þótti þessi viðburður heppnast vel og allir kátir þó svo Kári hefði ekki fengið samningstilboð frá Mainz. "Ég átti ekki alveg minn besta dag í búrinu að þessu sinni en það er aldrei að vita hvað gerist síðar," sagði Eyjamaðurinn léttur. Myndband af þessari uppákomu má sjá hér.
Mest lesið Leggur skóna á hilluna eftir tímabilið Íslenski boltinn Gómuð við gróft svindl í Berlín Sport Einkunnir Íslands: Takmörkuð gæði í Tallinn Fótbolti Uppgjörið: Færeyjar - Ísland 0 - 2 | Umspilssæti Íslendinga staðreynd Fótbolti Æfði með rúgbíliði í Frakklandi á undirbúningstímabilinu Körfubolti Fimmtán leikmenn meiddir: Er lengra landsleikjahlé betra eða verra? Sport Messi var farinn að hágráta fyrir leik en kvaddi með stæl Fótbolti „Hefðum tapað ef Hákon væri ekki í markinu“ Fótbolti KR vann erkifjendurna sannfærandi Körfubolti Uppgjörið: Eistland - Ísland 0-0 | Markalaust en strákarnir á toppnum Fótbolti Fleiri fréttir „Náðum ekki að klukka þá framan af“ Náðu að vinna sterkt spænskt lið FH - Limoges 33-46 | FH-ingar grófu sér of djúpa holu í fyrri hálfleik Slakur fyrri hálfleikur varð Val að falli Langmarkahæst í Olís-deildinni en áfram úti í kuldanum „Þeir eiga allt þetta hrós fyllilega skilið“ Verður sjö á móti sex sókn úr sögunni í handbolta? Dýrmætur sigur HK-inga Ómar markahæstur í öruggum sigri FH hélt Selfossi á botninum Sættast eftir lætin á Ísafirði og allt dregið til baka Elín Klara í ham í Austurríki | Sveinar Guðjóns misstu Kiel fram úr sér Eyjakonur juku á raunir HK Brynjar sé Lamine Yamal handboltans: „Hef aldrei séð annað eins“ Mögnuð Jóhanna með yfir helming marka Hauka í sigri Fyrsti sigur lærisveina Arnórs kom í spennutrylli Gunnar með ellefu mörk í sigri Vals Haukur skoraði sjö í Íslendingaslag Viktor og Janus fengu silfur á HM eftir að gamall félagi stal senunni Hákon Daði Styrmisson: „Standardinn þarf að vera hærri“ Haukar halda sigurgöngunni áfram KA með sannfærandi sigur á Eyjamönnum Uppgjörið: Fram - Afturelding 24-42 | Niðurlæging í Úlfarsárdal Markmenn beggja liða áttu stórleik í sigri Fram Guðjón Valur fær Orra óstöðvandi til Þýskalands Svekkjandi tap FH eftir góðan lokasprett Ellefu marka Ómar kom Magdeburg á toppinn Kannast ekki við krísufund á Hlíðarenda Danir fjalla um niðurlæginguna á Hlíðarenda „Held að fólk átti sig ekki á því sem við vorum að gera í kvöld“ Sjá meira