Sebrahestarnir slátruðu ljónunum 28. nóvember 2012 20:53 Alfreð tók sinn gamla vin og félaga, Guðmund Guðmundsson, í bakaríið í kvöld.
Sebrahestarnir frá Kiel voru fyrstir til þess að leggja Rhein-Neckar Ljónin í þýsku deildinni í kvöld. Meistarar Kiel gerðu gott betur því þeir hreinlega slátruðu lærisveinum Guðmundar Guðmundssonar, 17-28. Kiel komst með sigrinum upp í toppsæti þýsku úrvalsdeildarinnar á nýjan leik. Það var talsverður taugatitringur í mönnum í upphafi leiks og fyrsta mark leiksins kom ekki fyrr en eftir tæpar sjö mínútur. Það gerði Christian Zeitz með þrumuskoti. Sóknarleikurinn hjá Löwen gekk afar illa og í stöðunni 3-8 var Guðmundi Guðmundssyni, þjálfara Löwen, nóg boðið og hann tók leikhlé. Varnarleikur Kiel var með hreinum ólíkindum. Alfreð Gíslason, þjálfari Kiel, algjörlega búinn að kortleggja sóknarleik Ljónanna sem áttu engin svör og komu vart skoti á markið. Á stunum neyðarskotum sem Thierru Omeyer varði næsta auðveldlega. Þegar blásið var til leikhlés var munurinn sjö mörk, 7-14. Hreint ótrúlegar hálfleikstölur og Sebrahestarnir í raun að gera grín að Ljónunum. Ef Niklas Landin hefði ekki varið vel í marki Löwen hefði munurinn verið enn stærri. Þrumuræða Guðmundar í leikhléi skilaði litlu því aftakan hélt áfram í síðari hálfleik. Hans menn áttu sem fyrr engin svör við leik Kiel og meistararnir sigldu þægilegum sigri í höfn. Guðjón Valur Sigurðsson skoraði fimm mörk fyrir Kiel en Aron Pálmarsson komst ekki á blað. Thierry Omeyer átti síðan ótrúlegan leik í marki Kiel og varði vel yfir 20 skot. Alexander Petersson skoraði aðeins tvö mörk fyrir Löwen í kvöld en hann komst hvorki lönd né strönd. Ólafur Gústafsson spilaði sinn fyrsta leik fyrir Flensburg í kvöld og skoraði tvö mörk í öruggum sigri, 37-26, á Neuhausen. Fín byrjun hjá Ólafi með Flensburg sem er í fimmta sæti deildarinnar. Sverre Andreas Jakobsson og félagar í Grosswallstadt töpuðu naumlega gegn Göppingen, 27-28. Liðið í erfiðum málum í næstneðsta sæti deildarinnar.
Mest lesið Uppgjörið: Þór - Víkingur 2-1 | Þórsarar fyrstir til að vinna Víkinga Íslenski boltinn Frakkland - England | Tárin þerruð og tekist á um brons Fótbolti Fjórtán ára í byrjunarliði Vals Íslenski boltinn „Sturlað“ að mæta Yamal eftir að hafa baðað hann Fótbolti Bætti heimsmet í míluhlaupi sem hafði staðið í 27 ár Sport Uppgjörið: Valur - Fram 2-3 | Framarar upp í annað sætið Íslenski boltinn Martínez sleppti aðgerð og spilar meiddur Fótbolti Ætlaði allt um koll að keyra: „Óttuðust að það yrðu óeirðir“ Sport DeChambeau refsað eftir hringinn og dettur niður í fimmta sæti Golf Taylor fagnar ákaft: „Sjáið hvað hún er reið, alveg brjáluð“ Íslenski boltinn Fleiri fréttir Önnum kafinn Arnór óskar Benedikt góðs bata Ungu strákarnir okkar rúlluðu yfir Ísrael Ljóst hvaða lið bíða Vals og FH í breyttri Evrópudeild Missti mátt í hendinni eftir að hafa fengið golfkúlu í höfuðið Landsliðsfólk trúlofar sig: „Ekki flókið já“ Spila um þrettánda sæti eftir tap gegn Noregi Handboltinn hleypir Rússum aftur inn Frábær lokakafli dugði ekki til Sárt tap fyrir Króatíu Hansen leikur í mynd um einelti eftir að hafa sjálfur þurft að þola það Strákarnir áfram í milliriðil á EM „Eitthvað sem maður verður að læra af honum“ Tólf mörk Ágústs en tap gegn meisturunum Upplifun að koma á svæðið og skrifa undir Frábær byrjun hjá ungu strákunum okkar Bjarki Már til franska stórveldisins Sjokkið breyttist í ævintýri Ásthildur Jóna með tíu mörk á HM og Ísland í undanúrslit Forsetabikarsins Segja Breka á leiðinni til Benfica Børge Lund tekur við stórliði Kiel Díana tekur dóttur sína með sér yfir í Fram Fjórar heiðraðar sem spiluðu fyrsta landsleikinn fyrir sjötíu árum Einar hjá Fram næstu þrjú árin Miðar í sölu á HM í handbolta í dag Þrír íslenskir landsliðsmenn tilnefndir til virtra verðlauna Viktor Gísli vann Meistaradeildina með Barcelona Magdeburg fékk bronsið Viktor Gísli í úrslitaleik Meistaradeildarinnar Magdeburg tapaði í undanúrslitum Strákarnir okkar stálheppnir með riðil á HM Sjá meira