Prófkjörin í gegnum tölfræði - Kristján með mestan stuðning VG skrifar 11. nóvember 2012 13:14 Kristján L. Möller í sæti skipstjórans.
Það er hægt að lesa í prófkjör með ýmsum hætti og þannig má meðal annars skoða prófkjör helgarinnar í gegnum tölurnar. Þannig kemur í ljós að kjörsókn í prófkjöri Samfylkingarinnar í Suðvesturkjördæmi var 37% en á kjörskrá voru 5.693 flokksfélagar og stuðningsmenn Samfylkingarinnar - 2.129 greiddu atkvæði. Þó var ögn minni þátttaka í prófkjöri Sjálfstæðismanna í sama kjördæmi, en þar var kjörsóknin 34%. raunar kusu næstum jafn margir í prófkjör Sjálfstæðisflokksins og eru skráðir í Samfylkinguna í Suðvesturkjördæmi, eða 5070. Tæplega fimmtán þúsund eru skráðir í Sjálfstæðisflokkinn í Suðvesturkjördæmi, Vísir hefur raunar ekki nákvæma tölu um meðlimi flokksins í kjördæminu undir höndum og notast því við 15 þúsund við útreikningana. Má því gera ráð fyrir einhverjum skekkjumörkum þarna. Kjörsókn dregst dálítið saman hjá báðum flokkum síðan í prófkjörinu árið 2009. Séu sigurvegarar prófkjaranna skoðuð kemur í ljós að Bjarni Benediktsson er með 54% kosningu. Ef auðir og ógildir eru ekki teknir með, aðeins atkvæði þeirra sem tóku afstöðu, þá er Bjarni með 55,5% stuðning í 1. sætið. Í síðasta prófkjöri Sjálfstæðisflokksins fékk Bjarni 62% kosningu. Nú fékk hann aftur á móti tvö mótframboð, annars vegar Ragnar Önundarson, sem nær ekki í efstu sjö sætin, og svo Vilhjálm Bjarnason, sem hafnaði í 4. sætinu. Sigurvegari Samfylkingarinnar, Árni Páll Árnason, fékk 48% atkvæða eða tæpan meirihluta. Hann hlaut því verri kosningu en Bjarni. Aftur á móti fékk mótframbjóðandi Árna, Katrín Júlíusdóttir fjármálaráðherra, 64% atkvæða en hún hafnaði í öðru sætinu í prófkjöri Samfylkingarinnar. Þá ber auðvitað að taka fram að Árni Páll og Katrín háðu baráttu um fyrsta sæti listans og baráttan þar auðvitað ekki sambærileg þeirri sem átti sér stað innan Sjálfstæðisflokksins og svo öfugt. Sá sem hlaut mestan stuðning í prófkjörum helgarinnar var Kristján L. Möller í prófkjöri Samfylkingarinnar í Norðausturkjördæmi, en hann fékk 73% atkvæði. Aðeins Árni Páll og Margrét Gauja Magnúsdóttir, sem kemur ný inn í fjórða sæti lista Samfylkingarinnar, fá undir helming greiddra atkvæða í prófkjöri Samfylkingarinnar. Innan Sjálfstæðisflokksins voru það fjórir frambjóðendur af sjö sem fengu minna en helming, en aðeins Bjarni, Elín Hirst (5. sæti) og Óli Björn Kárason (6. sætið) fengu yfir helming greiddra atkvæða í prófkjörinu. Elín fékk 50% og Óli Björn 52%. Það er því ljóst af þessum tölum að niðurstöðurnar eru yfirleitt ekki afgerandi út frá tölfræðinni, nema þá helst hjá Kristjáni L. Möller.
Mest lesið Lífið umturnaðist í kjölfar slyssins Innlent Sendi ekki reikning og fær því ekki greitt Innlent Banaslys í Skorradalsvatni Innlent Þetta sé bæjarstjórn Kópavogs til skammar Innlent Höfðinginn átti sig ekki á lokuninni Innlent „Dapurlegt pólitískt útspil“ Innlent Ofurölvi reyndi að opna bíla í akstri Innlent Safna í sérstakt sjóherlið á Norðurslóðum Erlent Langhæsti styrkurinn fer til Eyja Innlent Vasaþjófnaður aukist að undanförnu Innlent Fleiri fréttir Farfuglar koma marktækt fyrr til landsins en áður „Dapurlegt pólitískt útspil“ Höfðinginn átti sig ekki á lokuninni Myndaveisla: Verkalýðsdagurinn haldinn hátíðlegur Sinueldur í Grafarvogi Þetta sé bæjarstjórn Kópavogs til skammar Framboðum Miðflokksins fjölgar um átta milli kosninga Lífið umturnaðist í kjölfar slyssins Bein útsending: Verkalýðsdagurinn haldinn hátíðlegur Sendi ekki reikning og fær því ekki greitt Langhæsti styrkurinn fer til Eyja Vasaþjófnaður aukist að undanförnu „Bjóða fram“ Biðlistann í Reykjavík Ofurölvi reyndi að opna bíla í akstri „Við erum með lengri óskalista heldur en þetta“ Segist ekkert hafa fengið greitt: „Pólitískur hráskinnaleikur“ „Þetta er bara eins og að missa vini sína“ Andar köldu milli Viðreisnar- og Miðflokksmanna Föst í umferð í tæpa fjóra sólarhringa á ári og kostnaðurinn yfir hundrað milljarðar Banaslys í Skorradalsvatni Glæný könnun gæti varpað ljósi á meirihlutamyndun Hlaðvarpsstjórnendur fá nýjar leiðbeiningar Urðu eftir í Flatey á meðan Baldur sigldi suður Halla fagnaði áttræðum Karli Gústafi Sömdu um stækkun á Fylkisseli Kannast ekki við meint rán í Lágafellskirkju Ákærður fyrir að eitra fyrir samstarfsfélaga með kannabis Tjáir sig ekki um greiðslur frá Rúv en boðar yfirlýsingu Skipulagt niðurbrot á réttindum launafólks hafi náð til Íslands „Konur upplifa ekki öryggi í íslensku samfélagi“ Sjá meira