Upplýsingafulltrúi tékkneska tollsins segir að þeir hafi viljað ná fleirum Gunnar Reynir Valþórsson skrifar 11. nóvember 2012 18:47
Ekkert liggur fyrir um hvort fíkniefnin sem tvær íslenskar stúlkur voru handteknar með í Tékklandi á dögunum hafi átt að koma hingað til lands. Enn er ekki að fullu ljóst hve mörg kíló kókaíns voru í farangri þeirra. Eins og við greindum frá í gær voru stúlkurnar sem báðar eru átján ára gamlar handteknar fyrir utan flugstöðina í Prag í Tékklandi en þær voru að koma frá Sao Paulo í Brasilíu með viðkomu í Munchen í Þýskalandi. Það voru þýskir tollverðir sem töldu sig sjá eitthvað óhreint í pokahorni stúlknanna en þrátt fyrir það var þeim hleypt áfram til Tékklands þar sem þær voru handteknar með nokkur kíló af kókaíni vandlega falin í töskum sínum. Jiri Bartak, upplýsingafulltrúi tékknesku tollgæslunnar segir í samtali við fréttastofu að ástæða þess að þeim var leyft að halda för sinni áfram hafi verið sú að menn vonuðust eftir því að ná fleirum sem viðriðnir væru málið. „En nú höfum við bara þessar tvær stúlkur," segir Jiri. Slóðin varð köld í Prag þar sem þeirra beið leigubílstjóri sem aðeins hafði fengið fyrirmæli frá óþekktum aðila um að aka þeim á járnbrautarstöðina en þaðan átti leiðin að liggja til Kaupmannahafnar. Bartak segir að rannsókn málsins sé enn í fullum gangi og meðal annars sé verið að kanna styrkleika efnanna sem voru í töskum stúlknanna. Þá liggi ekki nákvæmlega fyrir um hve mikið magn sé að ræða. Bartak segist ekki geta tjáð sig um hvort íslensk lögregluyfirvöld hafi komið eitthvað að rannsókn málsins og Karl Steinar Valsson yfirmaður fíkniefnadeildarinnar hér á landi vildi aðspurður ekkert tjá sig um málið. Faðir annarrar stúlkunnar sem fréttastofa hefur rætt við segist í raun lítið vita um málið. Erfitt sé að vita af dóttur sinni einni í fangelsi í ókunnu landi. En stúlkurnar sem eru góðar vinkonur hafa nú verið úrskurðaðar í sjö mánaða gæsluvarðhald. Hann segir fjölskylduna hafa fengið þær fréttir að málið eigi eftir að skýrast frekar í næstu viku, en eftir því sem fréttastofa kemst næst stendur til að yfirheyra stúlkunnar nú strax eftir helgi.
Mest lesið Rabbíni drepinn í árásinni Erlent Tvinn-rafmagnsflugvél sem lækka á fargjöldin Erlent Tíu drepnir í skotárás á gyðingahátíð Erlent Mikið myrkur þegar ekið var á konu á rafhlaupahjóli Innlent Segir Kristrúnu verja „lögbrot“ samráðherra síns Innlent Skýrsla ráðherra svari ekki mikilvægum spurningum um brúun bilsins Innlent Skilur að starfsfólk hafi ekki viljað afgreiða manneskju með hakakross Innlent Tveir látnir eftir skotárás í háskóla Erlent Tveir fluttir á spítala vegna umferðarslyss í Biskupstungum Innlent Grunaðir um að skipuleggja hryðjuverk á jólamarkaði Erlent Fleiri fréttir Íslendingur í Brown-háskóla: Oftast í tímum í sömu stofu og árásin var gerð Ekkert því til fyrirstöðu að Ísland taki þátt í drónakaupum Ekkert ákveðið varðandi framboð: „Ég er í tveimur flokkum“ Hálka þegar bíll valt í Biskupstungum Mikið myrkur þegar ekið var á konu á rafhlaupahjóli 270 íbúðir í byggingu í Þorlákshöfn Ástandið á bráðamóttökunni sýni viðkæmni kerfisins Segir Kristrúnu verja „lögbrot“ samráðherra síns Hryðjuverkaárás í Ástralíu og ástand í heilbrigðiskerfinu Sanna segir frá nýju framboði Dyraverðir handteknir vegna líkamsárásar Skýrsla ráðherra svari ekki mikilvægum spurningum um brúun bilsins Aðstæður bágbornar á spítalanum til að mæta svo miklu álagi Tveir fluttir á spítala vegna umferðarslyss í Biskupstungum Bjarnveig Birta og Stein Olav sigurvegarar forprófkjörs „Ég fæddist inn í pólitískan líkama“ Eldur í íbúð við Snorrabraut Skilur að starfsfólk hafi ekki viljað afgreiða manneskju með hakakross Sjúklingar ekki lengur í bílageymslu bráðamóttökunnar Sameiningu Dalabyggðar og Húnaþings vestra hafnað Píratar vilja ganga til viðræðna um sameiginlegt framboð Mikilvægt að geyma stafræn gögn innan lögsögunnar Bæjarskrifstofur fluttar: „Þetta húsnæði er barn síns tíma“ Óttast að fólk sleppi að kaupa lyf vegna minni greiðsluþátttöku Munu reyna að fá nýju virkjunarleyfi hnekkt Vara fólk við póstum og skilaboðum frá Grundarheimilunum Vara við póstum frá Grund og „jafnréttisþreyta“ Stuðningsyfirlýsing Össurar eins og koss dauðans Fjárlög, skattar og skipti á dánarbúum á laugardagsþingi Þau fái heiðurslaun listamanna Sjá meira