Innlent

Ekkert refsivert komið fram - rannsóknin á lokastigi

Rannsókn ríkissaksóknara á andláti manns sem lést á lögreglustöðinni við Hverfisgötu í lok október er á lokastigi.

Í tilkynningu frá Sigríði Friðjónsdóttur, ríkissaksóknara, segir að fram að þessu hafi ekkert komið fram við rannsóknina sem bendi til refsiverðar háttsemi af hálfu þeirra lögreglumanna sem afskipti höfðu af manninum. Hlé verður á rannsókninni þar til niðurstaða réttarlæknis liggur fyrir um dánarorsök.

Maðurinn, sem var á fimmtugsaldri, hafði skömmu áður verið handtekinn í miðborginni. Á lögreglustöðinni fékk hann skyndilega hjartastopp og báru lífgunartilraunir ekki árangur.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×