Innlent

Heppnasti lottó-spilari á Íslandi? - hefur unnið stóra pottinn þrisvar á stuttum tíma

Nú hefur hinn vinningshafinn sem vann rúmar 29 milljónir króna í lottóinu á laugardaginn gefið sig fram. Það má með sanni segja að spilarinn sé aldeilis heppinn því þetta er í þriðja skiptið á stuttum tíma sem hann vinnur stóran vinning í lottóinu.

Samkvæmt upplýsingum frá Íslenskri Getspá spilar vinningshafinn reglulega í Víkingalottóinu en ákvað í þetta sinn að vera með í Lottóinu sem borgaði sig heldur betur. Miðinn góði sem er 10 talna kerfismiði var keyptur á N1 við Ártúnshöfða í Reykjavík. Á þessu ári hafa þrír stórir vinningar komið á miða sem hafa verið keyptir þar - og þar af hefur þessi sami vinningshafi hlotið tvo þeirra.

„Vinningshafanum er málefnið sem Íslensk getspá stendur fyrir sérstaklega hugleikið og hann tók það fram að hann spilar til að styrkja. Íslensk getspá óskar vinningshafanum innilega til hamingju," segir í tilkynningu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×