Hefndi sín eftir hrekk á bland.is 11. október 2012 16:38 Páfagaukur af sömu tegund og Seifur, Scarlet Macaw
Um miðjan júní síðastliðinn var lögreglunni á Selfossi tilkynnt um þjófnað á Scarlet Macaw páfagauki úr búri í dýragarðinum á Slakka í Laugarási. Síðast var vitað um fuglinn í búri sínu að kvöldi 16. júní en var horfinn að morgni þjóðhátíðardagsins. Ekkert hefur spurst til fuglsins fyrr en í síðustu viku að fuglinn var auglýstur til sölu á bland.is og þar gefið upp símanúmer sem átti að hringja í. Páfagaukurinn heitir Seifur og er 12 ára. Þessi tegund er mjög dýr og nokkuð stór, vænghaf hátt í 120 sentimetrar og geta orðið meira en 50 ára gamlir. Úrskurð dómara þurfti til að afla upplýsinga frá símafyrirtæki um hver stæði á bak við auglýsinguna. Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu aðstoðaði við eftirfylgni og fór á heimili þess sem sendi inn auglýsinguna sem reyndist vera unglingur. Þar var enginn páfagaukur en skýring á auglýsingunni var sá að um hrekk væri að ræða. Unglingar höfðu tekið upp á því að auglýsa ísskáp á bland.is og gáfu upp símanúmer hjá félaga sínum. Til að ná fram hefndum afréð sá sem varð fyrir hrekknum að taka upp frétt úr DV frá í vor þar sem lýst var eftir páfagauknum og nota upplýsingar og mynd úr fréttinni til að setja í auglýsinguna og gefa þar upp símanúmer þess sem upphóf hrekkinn. Eftir sem áður er Seifur týndur og ekkert til hans spurst. Lögreglan biður því alla sem vita um afdrif páfagauksins Seifs eða hvar hann gæti verið niðurkominn að hafa samband í síma 480 1010.
Mest lesið Játaði fjárdrátt og endurgreiðir samkvæmt samkomulagi Innlent Hommar mega enn ekki gefa blóð Innlent Ísraelsmenn hafi gengist við skilyrðum vopnahlés Erlent Tekjur af bjórsölu orðnar meiri en af miðasölu Innlent Matargjöfum Fjölskylduhjálpar hætt: „Stingur okkur í hjartastað“ Innlent Umræðum haldið áfram eftir langan fund þingflokksformanna Innlent Magnús Þór lést við strandveiðar Innlent Kviðdómur komst að niðurstöðu í fjórum fimm ákæruliða Diddy Erlent Hvammsvirkjun bíður dóms Hæstaréttar Innlent Andlát í Garðabæ: Úrskurðuð í gæsluvarðhald umfram hámarkslengd Innlent Fleiri fréttir Umræðum haldið áfram eftir langan fund þingflokksformanna Hommar mega enn ekki gefa blóð Hvammsvirkjun bíður dóms Hæstaréttar Játaði fjárdrátt og endurgreiðir samkvæmt samkomulagi Matargjöfum Fjölskylduhjálpar hætt: „Stingur okkur í hjartastað“ Tekjur af bjórsölu orðnar meiri en af miðasölu Hryssan Hlökk er „Dekurprinsessa“ hjá Ásmundi Erni Taka þurfi ákvörðun um sameiningu vinstrisins fyrr en síðar Samfélagið fari ekki á hliðina án tíufrétta Yfir helmingur drengja í sjötta bekk lent í slagsmálum Þjónusta sérgreinalækna við börn nú án endurgjalds Mesta fylgi síðan 2009 Börn í slagsmálum, arðbær bjórsala og dekurprinsessa Beðið eftir krufningarskýrslu Stefna á að þrefalda fjölda hjúkrunarrýma í Mosfellsbæ Vill tryggja bráðaviðbragð í Öræfum allan ársins hring Lágkúra og della að mati ráðherra Ræðurnar verði nógu margar til að taka veiðigjöldin af dagskrá Ræddu við sextíu manns í tengslum við hvarf Jóns Þrastar Magnús Þór lést við strandveiðar Seinkun fréttatímans seinkað Andlát í Garðabæ: Úrskurðuð í gæsluvarðhald umfram hámarkslengd Tvöfalt siðgæði EBU mikið áhyggjuefni Landris heldur áfram í Svartsengi Með barnaníðsefni í símanum þegar hann var „laminn í stöppu“ Samstöðin hafi aldrei verið í hættu „Þetta er komið út fyrir öll mörk“ „Held að þau átti sig ekki á því hvað þetta skiptir okkur miklu máli“ Læknanemar fái víst launahækkun Prófessor segir málþófið komið út fyrir öll mörk Sjá meira