Enginn hefur tilkynnt lögreglu um horfna ketti BBI skrifar 11. október 2012 17:57
Það hafa engar tilkynningar um horfna ketti á Eyrarbakka borist til lögreglunnar í Árnessýslu samkvæmt upplýsingum frá embættinu. Fyrr í vikunni kom fram í fréttum að kettir hefðu ítrekað horfið sporlaust á Eyrarbakka en Þorgrímur Óli Sigurðsson, aðstoðaryfirlögregluþjónn á Selfossi, efast um að það sé rétt. „Þessa umræðu hef ég ekki heyrt um," segir hann. „Ég man eftir sögu eftir H. C. Andersen sem ég held að eigi vel við," bætir hann við og rekur söguna, sem nefnist Það er alveg áreiðanlegt. Eitt sinn var hæna í hænsnakofa að snyrta sig og kroppa í fiður sitt. Við það losnaði fjöður sem féll á gólfið. Hænan sagði: Þar fór þessi, og hélt áfram að kroppa í sig. Hinar hænurnar í kofanum heyrðu á tal hennar og sögðu síðar frá því að ein hæna í kofanum hefði reitt af sér fjaðrirnar til að ganga í augun á hananum. Og sagan gekk áfram meðal dýranna og nú hafði hænan reitt af sér allar fjaðrirnar til að skera sig úr hópnum. Í hvert sinn sem sagan var endursögð var einhverju bætt við hana og brátt voru hænurnar sem reittu allar fjaðrirnar af sér orðnar fimm og búnar að drepa hver aðra vegna öfundsýki frammi fyrir hananum. Þannig varð ein fjöður að fimm hænum. Þorgrímur Óli telur sem sagt að dæmisagan eigi vel við um kattahvörfin á Eyrarbakka og efast um að 16-18 dýrir kettir hafi horfið í bænum.
Tengdar fréttir Kettir hverfa sporlaust á Eyrarbakka Fjölmargir kettir hafa horfið sporlaust á Eyrarbakka það sem af er ári. Það eru alla jafna skógarkettir eða aðrir dýrir kettir sem hverfa og eftir það sést hvorki tangur né tetur af þeim. 9. október 2012 22:39 Mest lesið Sakborningur í 28 málum sendur úr landi Innlent Bandamaður Trumps skotinn til bana á fjölmennum viðburði Erlent Vaktin: Leitin að morðingja Charlie Kirk í fullum gangi Erlent Hver var Charlie Kirk? Erlent „Súrrealísk og skelfileg upplifun“ Innlent Trump segir öfga-vinstrið bera ábyrgð á morðinu Erlent Quang Le stefnir Landsbankanum Innlent Tilkynningum um „spoofing“ fjölgað verulega síðustu ár Innlent 3,7 stiga skjálfti í Árnesi Innlent Kosti þrjár milljónir fyrir alþjóðlega nemendur að læra á Íslandi Innlent Fleiri fréttir Fjárlögin litlaus líkt og hann sjálfur Tekist á um fjárlagafrumvarpið og morðið á Charlie Kirk Tilkynningum um „spoofing“ fjölgað verulega síðustu ár „Súrrealísk og skelfileg upplifun“ Bein útsending: Daði Már mælir fyrir fjárlögum næsta árs Ofbeldi foreldra gegn börnum jókst um nær helming 3,7 stiga skjálfti í Árnesi Ákall um íslenskukennslu: „Oft var þörf en nú er nauðsyn“ Vilja styttu af Gunnari í Gunnarsbrekku Líkamsárás og skartgripaþjófnaður Sakborningur í 28 málum sendur úr landi Kosti þrjár milljónir fyrir alþjóðlega nemendur að læra á Íslandi Quang Le stefnir Landsbankanum Fékk milljón vegna afmælis kattarins Ríkisstjórnin feli sig á bak við mistök þeirrar fyrri Um 100 þúsund lömbum slátrað hjá SS á Selfossi „Ísland á betra skilið“ Biður þingmenn að gæta orða sinna Stefnuræða forsætisráðherra á dagskrá í kvöld Óásættanlegt hversu margir falla fyrir eigin hendi Áhyggjuefni að menn missi stjórn á atburðarásinni Fundu fyrir jarðskjálfta í Hveragerði Kærður fyrir fjársvik fyrir að neita að borga Einbeittur brotavilji og óásættanlegur fjöldi sjálfsvíga Ellefu vilja vera ritstjóri Kveiks Samfélagslega mikilvæg innviðafjárfesting að efla íslenska tungu Alþingi efnir til stefnuræðubingós Stúdentar klóra sér í kollinum yfir hækkun Loga Húsbrot á höfuðborgarsvæðinu: Oft sama fólkið sem brýst ítrekað inn í fleiri fjölbýlishús „Sérstök“ ræða forseta sem hafi hoppað á umræðuvagninn Sjá meira
Kettir hverfa sporlaust á Eyrarbakka Fjölmargir kettir hafa horfið sporlaust á Eyrarbakka það sem af er ári. Það eru alla jafna skógarkettir eða aðrir dýrir kettir sem hverfa og eftir það sést hvorki tangur né tetur af þeim. 9. október 2012 22:39